Heimili og skóli - 01.02.1949, Síða 21
HEIMILI OG SKÓLI
17
um árum áunnið sér vinsældir kaup-
enda, því að margir þeirra hafa látið
svo ummælt, að það þyrfti að komast
inn á hvert heimili í landinu. Er það
og von og ósk útgefenda, að takast
mætti að komast sem næst því marki.
Ritið er helgað þeim málefnum, sem
fæstir, sem til vits og ára komast, geta
sneitt hjá að hugsa um. Verð ritsins
hefur verið ákveðið svo lágt, að ekkert
tímarit, sem út er gefið í landinu, mun
ódýrara, aðeins 10 kr. árg., sem er 6
hefti, 24 bls. hvert. Auk þess fá nýir
kaupendur síðasta árg. ókeypis, meðan
til er. Þá fæst ritið keypt frá byrjun,
nema 1. heftið, sem nú er uppselt.
Þegar Heimili og skóli hóf göngu
síns, voru það einkum barnakennarar,
sem unnu að útbreiðslu þess. Svo er og
enn, þótt margir fleiri hafi reynzt þar
góðir og tryggir liðsmenn. Eru það
vinsamleg og eindregin tilmæli útgef-
enda til kennara og annarra unnenda
ritsins, að þeir hefji nú á ný sókn að
litbreiðslu þess.
Hafa sumir kennarar í bæjum og
þorpum haft þá aðferð að senda sýnis-
blöð heim á heimilin með skólabörn-
um, ásamt spurningu um, hvort menn
vildu gerast áskrifendur, eða hafið
söfnun á annan hátt. Má geta þess, að
12 ára drengur í Barnaskóla Akureyrar
safnaði á sl. vori, á fáum dögum, 50
nýjum kaupendum í bænum. Annað-
ist hann einnig innheimtu á verði rits-
ins.
Eins og oft vill verða, greiðast blaða-
gjöld misjafnlega. Þó er ekki svo mjög
undan því að kvarta með Eleimili og
skóla, því að langflestir kaupendur og
útsölumenn greiða ritið skilvíslega. —
Nokkrir eru þeii þó, sem ekki hafa
gert nein skil fyrir síðasta ár, og sumir
jafnvel ekki fyrir 2—3 ár. Eru það vin-
samleg tilmæli til þessara manna, að
þeir geri nú skil á verði ritsins hið allra
fyrsta. Verð ritsins er svo lágt, að ekk-
ert má tapast af verði þess, eigi það að
geta borið sig fjárhagslega.
Útsölu- og innheimtumönnum eru
greidd 20% af verði ritsins í sölu- og
innheimtulaun. Skal þess þó getið, að
nokkrir hafa aldrei tekið innheimtu-
laun og eru þeim hér með færðar beztu
þakkir fyrir velvild þeirra.
Kennarar og foreldrar! Heimili og
skóli vill eftir beztu getu miðla fræðslu
um reynslu og þekkingu góðra karla
og kvenna á vandamálum uppeldisins.
Það vill einnig leita til lesenda sinna
um ráð og leiðir til úrbóta á ýmsu, sem
betur þyrfti að fara úr hendi um upp-
eldi og skólastörf. Sökum þess eru þess-
<ar línur ritaðar og sökum þessa til-
gangs vilja aðstandendur ritsins auka
útbreiðslu þess og heita á yður til góðr-
ar liðveizlu.
Útgefendur.
Það var munur.
Ása litla fær að heimsækja Margréti frænku
sína og hefur með sér brúðuna sína, sem væg-
ast sagt er illa farin. T. d. vantar á hana
annan handlegginn og annan fótinn, og eitt-
hvað af hárinu er dottið af. Á meðan á heim-
sókninni stendur, fær Ása að sjá litlu frænku
sína, dóttur Margrétar. Hún er auðvitað vel
vaxin og hnellin, eins og heilbrigð börn eru
vön að vera.
„Hve lengi hefur þú átt hana þessa?“ spyr
Ása, þegar hún hefur skoðað þá litlu nokkra
stund.
„í þrjá mánuði, Ása mín,“ svaraði frænka
hennar.
„Þú hefur sannarlega farið vel með hana,“
segir Ása litla með aðdáunarhreim í rödd-
inni.