Heimili og skóli - 01.02.1949, Page 24

Heimili og skóli - 01.02.1949, Page 24
20 HEIMILI OG SKÓLI aður um stund, en gleymdi því svo strax aftur. I huga hans var heldur ekki neitt á þeim stað, sem það átti að vera. Fjárprettir, lygar og sviksemi voru þar, ásamt ýmsum dyggðum, í einum hrærigraut, alveg eins og skó- burstinn og vasaklútarnir, sem lágu í sama hólfi í herberginu hans. Ef til vill hefði þetta allt gengið slysalaust, ef hann hefði getað verið heima alla sína ævi. A heimili drengsins er ekki tekið svo mjög hart á þessari framkomu hans. Mamma hans lagar til eftir hann og burstar af þá bletti, sem hann hef- ur sett á sig og annað. Pabbi hans fyr- irgefur honum mikið, af því að hann er einkabarnið og ávítar hann sjaldan. — En því miður er veruleikinn sjálfur ekki þannig. Hann tekur ekki til eftir slíka snáða. Hann burstar enga bletti. Hann fyrirgefur ekkert. Hann hefur glöggar og greinilegar deildir, áletrað- ar svörtum stöfum, yfir sérhverja at- höfn mannsins. Og hann hefur hólf, sem á er letrað „sjóður“. Þar fær hver maður greitt, með ítrustu nákvæmni það, sem hann verðskuldar fyrir verk sín. Heima var oft sagt: „Hann meinar ekkert illt með þessu, hann gerir það aldrei aftur.“ En veruleikinn sjálfur segir allt annað. Hann segir: Slík van- ræksla er mjög hættuleg fyrir aðra menn og því til stór tjóns fyrir sam- félagið. Og launin eru eftir því: Hann verður rekinn, frá starfi sínu, fleygt út á götuna og síðan settur í fangelsi, rú- inn öllu mannorði. Ef hann ber sig illa yfir þessari meðferð, verður honum svarað eitthvað á þessa leið: Heldurðu að þú hefðir getað, þegar þú varst lít- ill. fengið viðurværi þitt og fatnað, ef allir hefðu hagað sér eins og þú, — ef bakarinn hefði gleyrnt að útvega sér mjöl í tíma, ef mjólkursalinn hefði sofið yfir sig og klæðskerinn gleymt að máta á þig fötin? Og lieldurðu, að nokkur maður mundi þora að fara með járnbraut, ef járnbrautarverðirn- ir, sem eiga að breyta sporinu, væru eins og þú? Sérðu ekki, að án trú- mennsku og góðrar reglu fer allt í mola í þessari veröld? — Gerðu þér í hugarlund, að þessar tvær dyggðir, trúmennska og reglusemi yrðu úr gildi numdar aðeins einn stundarfjórð- ung. Mundi það ekki vera nóg til að eyðileggja allt. Himinninn yrði rauð- ur sem blóð af eldbjarmanum af þeim mörgu húsum, sem brynnu. Allir járn- brautarteinar yrðu þaktir líkum. Haf- ið yrði einnig þakið skipaflökum og dauðum mönum. Allt innra samband, bæði heima og annars staðar, mundi slitna og verða lævi blandið. Og samt heldur þú, að hægt sé að kalla fram- komu þína ósaknæma! Ertu frá Marz, eða hvaðan kemur þú? — — — A eftir boðorðunum tíu í fræðum Lúthers, stendur: Hvað segir nú guð um öll þessi boðorð? Hann segir: „Eg, herra þinn og guð þinn, er strangur og vandlætingarsamur og vitja synda feðranna, er hata mig, í þriðja lið.“ Þegar ég gekk í skóla, var eitt sinn drengur, sem spurði: Það er sagt, að guð sé kærleikur. Hvernig getur hann þá verið vandlætingasamur og framið hermdarverk? — Já, haldið þið raunverulega, að það mundi vera ástúðlegt gagnvart mönnunum, ef því væri svo til hagað í heiminum, að hið illa hefði engar afleiðingar, að menn gætu logið og stolið, svikið og barið (

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.