Heimili og skóli - 01.02.1949, Síða 26
22
HEIMILI OG SKÓLI
BÆKUR OG RIT
Eftirtaldar bækur og rit bárust Heimili
og skóla svo seint fyrir jólin, að ekki var
hægt að geta þeirra í síðasta hefti, og verður
nú vakin atliygli á þeim, þótt seint sé.
FRÁ BÓKAFORLAGI ÆSKUNNAR:
Vala eftir Ragnheiði Jónsdóttur. Höfund-
ur þessarar sögu er orðinn svo góðkunnur
barnabókahöfundur, að það ætti að vera
óþarfi að mæla með bókum hennar, enda
gefur þessi bók ekki fyrri bókum hennar
eftir. Vala er bráðskemmtileg saga, sem eng-
inn hættir við að lesa fyrr en hann hefir lok-
ið við hana.
Adda lcerir að synda eftir kennarahjónin
Jennu og Hreiðar á Akureyri. Fyrri Oddu-
bækur eftir þessa höfunda hafa jafnan selzt
upp á skömmum tíma, og svo mun hafa
verið um þessa bók. Adda, sem í fyrstu var
lítil og munaðarlaus stúlka, verður eftirlæti
allra hinna yngstu lesenda. Bókin er prýdd
nokkrum myndum eftir frú Þórdísi Tryggva-
dóttur.
Litli bróðir eftir A. Chr. Westergaard. Sig-
Ágætt er líka að venja sig á, að skilja
ekki allt eftir á ringulreið, þegar við
förum frá starfsstað okkar. Sjálfsagt er
að ganga frá öllu í röð og reglu. Þessi
venja hefur oft þær afleiðingar, að þeg-
ar við t. d. erum við skriftir, förum
við blátt áfram að þrá að skrifa snyrti-
lega og reglulega og fáum einnig ó-
sjálfráða löngun, til þess að hafda ná-
kvæman reikning yfir allar tekjur okk-
ar og gjöld.
Þið sjáið því, að við verðum alltaf —
og líka í því góða — að feta frá því
smæsta til hins stærsta, ef við eigum að
ná einhverjum árangri. Sá, sem strax
ætlar að byrja með því að drýgja hetju-
dáðir, er eins og byggingameistari, sem
urður Gunnarsson skólastjóri í Húsavík
þýddi. Westergaard er einn þekktasti og vin-
sælasti barnabókahöfundur Dana, og mjög
kunnur hér á landi. Þetta er saga um lítinn
drenghnokka, sem hefir það til sins ágætis,
að hann er alltaf að lenda í einhverjum ævin-
týrum. Bókin er einkum ætluð hinum yngstu
lesendum og er prýdd allmörgum myndum.
FRÁ BÓKAÚTGÁFUNNI BJÖRK:
Kári litli í sveit eftir Stefán Júlíusson yfir-
kennara. Hvert barn á íslandi kannast við
Kárabækurnar svonefndu, og hafa þær orðið
mjög vinsælar. Þetta er þriðja Kárabókin, og
segir nú frá Kára litla, þegar hann fer í
sveitina til afa og ömmu. Sagan er bráð-
skemmileg, og ég trúi ekki öðru en að allir
litlir drengir vilji eiga hana. Bókin er prýdd
mörgum myndum eftir Halldór Pétursson.
FRÁ BÓIÍAÚTGÁFUNNI HLAÐBÚÐ:
Kóngsdóttirin fagra og Alfagull eftir Bjarna
M. Jónsson, námsstjóra.
Bækur þessar komu báðar út fyrir allmörg-
um árum og urðu mjög vinsælar þá, en eru
ætlar að byggja stóra höll, án þess að
hafa lagt traustan grundvöll. Þið vitið
vafalaust, að snigillinn byggir húsið
sitt úr munnvatnsrennsli sínu. í raun-
inni gera mennirnir það líka. Ekki þó
híbýli sín, heldur örlögin sjálf. Þeir
skapa sér þau í samræmi við þær venj-
ur, sem þeir hafa tamið sér, meðan
þeir voru ungir. Þegar svo örlagahúsið
er fullgert, núa þeir oft hendur sínar
í örvæntingu og segja: Hvernig gat ég
byggt svona smekklaust og svona
hræðilega?
Lauslega þýtt úr „Selvopdragelse"
e. Fr. W. Foerster af Sigurði
Gunnarssyni.