Heimili og skóli - 01.02.1949, Blaðsíða 27

Heimili og skóli - 01.02.1949, Blaðsíða 27
HEIMILI OG SKÓLI 23 nú löngu uppseldar. Annars eru þetta skemmtilegar barnabækur í gömlum og þjóð- legum ævintýrastíl. Efast ekki um að þeim verði vel tekið nú. Bækurnar eru myndum prýddar. FRÁ H. F. LEIFTUR: Kata frcenka eftir Kate Seredy. Steingr. Arason þýddi. Það er óhætt að treysta því, að Steingr. Arason velur ekki nema góðar bækur til þýðingar. Kata frænka er ótamið borgarbarn frá Buda-Pest, sem enginn ræður við. En svo er henni komið í sveit til frænda síns og þar verður úr henni allt annað barn. Þetta er bráðskemmtileg telpusaga prýdd mörgum myndum. Þá hefur Heimili og skóla borist frá sama forlagi tvær glæsilegar ævintýrabækur, er nefnast Bangsi og Gosi. Báðar eru þær prýdd- ar forkunnar vönduðum myndum og hefði íslenzkum börnum fyrir nokkrum árum þótt þetta miklir kjörgripir. Stóri-Björn og Litli-Björn eftir Halvor Floden. Freysteinn Gunnarsson þýddi. Það ættu að vera næg meðmæli með bókinni, að Freysteinn hefur þýtt hana, en annars segir hún frá litlum, munaðarlausum dreng, sem hrekst úr einum stað í annan, þar til hann að lokum kemst til Stóra-Björns, sem kemur honum til manns. Þetta er skemmtileg drengjasaga, full af ævintýrum og lifandi Irásögn. H. J. M. Kennarar settir og skipaðir. Kennarar settir, ráðnir, eða skipaðir i stöður við barnaskóla frá 1. september 1948. Reykjavik: 1. Ari Gíslason, lieimavistarsk. Jaðri. 2. Eyjólfur Guðmundsson. 3. Guðný Halldórsdóttir, matr.k. 4. Gunnar Sigurðsson. 5. Halldór Sölvason. 6. Hróðmar Margeirsson. 7. Ragnar Georgsson. 8. Sigvaldi Kristjánsson. 9. Sveinbjörn Einarsson. 10. Sveinn Kristjánsson. 11. Stefán Ólafur Jónsson. 12. Þorgerður Þorgeirsdóttir, matr.k. 13. Þórey Stefánsdóttir, handavinnuk Akranes: Ingvar Björnsson. Karl Guðmundsson, íþróttakennari. Isafjörður: Matthías Guðmundsson. Olafsfjörður: Þóra Gunnarsdóttir. Akureyri: Einar M. Þorvaldsson. Seyðisfjörður: Grímur Helgason. Sigurður Kristmundsson. Þorgerður Jónsdóttir. Vestmannaeyjar: Arnþór Arnason. Friðrik Pétursson. Þórarinn Magnússon. Njarðvikurskólahverfi: Sigríður Ingibjörnsdóttir. Bessastaðaskólahverfi: Ármann Kr. Einarsson, skólastjóri. Grindavik: Ásrún Kristmundsdóttir. Seltjarnarnes: Ólöf H. Pétursdóttir. Kópavogsskólahverfi: Guðmundur Eggertsson, skólastjóri. Áslaug Eggertsdóttir. Sæmundur Sæmundsson. Mosfellsskólahverfi: Guðmundur Magnússon. Reykholtsskólahverfi: Ólafur Jóhannsson. Borgarnes: Ingólfur Pálmason. Þorsteinn Ólafsson. Stykkishólmur: Ingólfur Árnason. Patreksfjörður: Kristján Halldórssón, skólastjóri. Baldur Bjarnason. }ón Guðjónsson. Tálknafjörður: Ólafur Kr. Þórðarson. Bíldudalur. Valgarður Haraldsson, skólastjóri. Ólafur Jónsson. Hnifsdalur: Kristján Júlíusson.

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.