Heimili og skóli - 01.10.1951, Side 9

Heimili og skóli - 01.10.1951, Side 9
HEIMILI OG SKÓLI 85 HANNES ]. MAGNUSSON: „Leitið og þér munuð finna“ Kafli úr skólasetningarræðu haustið 1951. Víða um hinn menntaða heim er nú mikið ritað og rætt um skóla- og upp- eldismál, og sums staðar kannske full mikið, þótt það láti ef til vill undar- lega í eyrum. En það má ræða svo mik- ið um þessi mál, benda á svo margar leiðir, halda fram svo mörgum kenn- ingum, að almenningur verði átta- villtur, missi trúna á gamlar venjur og gamlar hefðir, án þess þó að gera sér grein fyrir, hvað velja beri af hinu nýja. Slíkt getur skapað hið mesta rótleysi og ringulreið, að finna hvergi fast land undir fótum. Þetta hefur þó ekki enn gerzt hér á landi, sem betur fer. Uppeldisfræðingar okkar hafa ekki verið neinir niðurrifsmenn, held- ur tekið upp jákvæða stefnu á þessu sviði. Kennarar og uppalendur verða að vera glaðvakandi fyrir (illum nýjung- um á þessu sviði, en taka þeim samt með hæfilegxi gagnrýni. Hér sem víð- ar hentar betur þróun en bylting. Þró- unin hlýtur að eiga sér stað með vax- andi menntun og reynzlu. Hún kem- ur ósjálfrátt með auknum þroska mannanna, en það má flýta fyrir henni með ýmsu móti, og það eigum við að gera. „Við eigum að láta hlutina vaxa, 3. Þegar börnin yfirgæfu barnaskól- ann fengju þau sína sparisjóðsbók, og héldi framhaldsskólinn starfseminni áfram um lengri eða skemmri tíma. Skal svo ekki um þetta fjölyrt meir. En það skal tekið skýrt fram og á það lögð alveg sérstök áherzla, að löggjöf- um og landsstjórn verður nú þegar að skiljast það, að það verður að skapa trú manna og traust á það, að spari- sjóðsbókin hafi sitt gildi, að það sé þess vert að vera sparsamur, hygginn og nýtinn í orðsins beztu merkingu. Það verður að afnema skatta af sparifé og hækka þá upphæð, sem skattfrjáls er nú, og það verður að tryggja það, að innstæðan njóti vaxtanna. Og umfram allt verður að tryggja það, að hvernig sem veltur með verðgildi krónunnar, þá sé a. m. k. viss lágmarksupphæð þessa fjár örugg að verðgildi. Þetta er hin nauðsynlega undirstaða, ef hefjast á handa um aukna sparifjársöfnun, sem telja verður uppeldislega nauðsyn og þjóðarnauðsyn. Fáum þjóðum mundi nauðsynlegra uppeldi til sparnaðar en okkar fá- mennu þjóð, með öll sín margþættu, óleystu verkefni, þjóð, sem virðist vanta ærið margt til að kunna fótum sínum forráð í þessum efnum. Henni verður að skiljast það, að það er menn- ingarleysi að fara gálauslega með fjár- muni sína, og að það er á engan hátt minni vandi að gæta fengins fjár eu afla þess.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.