Heimili og skóli - 01.10.1951, Side 10

Heimili og skóli - 01.10.1951, Side 10
86 HEIMILI OG SKÓLl en ekki knýja þá fram,“ segja Englend- ingar. Þannig á það að vera í uppeldis- og skólamálum. Hið nýja og full- komnara, sem vel hefur reynzt, á að seytla inn í starfið smátt og smátt. Með því fáum við eðlilega þróun þessara mála og komumst hjá hinum liættu- legu gelgjuskeiðum. Eg vænti mikillar hjálpar í framtíð- inni af uppeldisfræðingum og barna- sálfræðingum, en hvað sem þeir segja, megum við þó aldrei hætta að hlusta á hið gamla brjóstvit, sem hert er í reynsludeiglu margra kynslóða. Því skulum við jafnan hafna með mikilli gát. En eitt er virðingarvert við okkar tíma og gefur tilefni til bjartsýni, þrátt fyrir allt: Þeir auðkennast af mikilli leit. Ekki aðeins leit að nýrri og full- komnari vélum, lieldur einnig leit að meiri þroskamöguleikum, leit að að- ferðunt til að skapa betri skóla, leit að betri kennsluaðferðum, kennslubók- um, og síðast en ekki sízt: betri upp- eldisaðferðum, og þar hafa uppeldis- fræðingarnir forustuna. Eg trúi því, að þessi leit beri árang- ur, eins og öll önnur leit mannsins, sem stofnað er til af einlægni og góð- um hug. Allt líf mannkynsins frá upp- hafi vega hefur verið ein óslitin leit. Þessi viðleitni á sviði uppeldis- og skólamála, sem ég gat um, er aðeins einn þáttur þessarar eilífu leitar. Við kennarar og foreldrar, já, einmitt við, skulum vera með í þessari leit og ég fullyrði, að hún ber árangur, því að þar er hið bezta í sjálfum okkur að verki: Það er ábyrgðartilfinningin, skylduræknin, samvizkusemin og holl- ustan við heilagt hlutverk. Við skulum lesa það, sem við eigum kost á, er uppeldisfræðingar og skóla- menn hafa til þessara mála að leggja, og bera það saman við okkar eigin reynslu, og umfram allt okkar eigið brjóstvit, og við skulum vega það á vog okkar eigin dómgreindar. Ég mæli ekki með uppeldi eða kennslu ná- kvæmlega eftir forskrift einhverra ákveðinna manna, þótt lærðir séu, slíkt ber vott um átakanlegt ósjálfstæði og persónulega fátækt, þótt ætíð megi treysta nokkrum sameiginlegum grundvallarreglum, sem jafnan fara saman við dómgreind okkar og brjóst- vit. Nær sanni væri að ætla, að aðferð- irnar við uppeldi og kennslu þyrftu að vera jafnmargar og einstaklingarnir. Og kannske er það einhver veikasta hliðin á starfi allra skóla, að þar er naumast hægt að komast hjá múgupp- eldi á vissu stigi. En múguppeldi leið- ir til andlegrar hnignunar, menning- arleysis og persónulegs ósjálfstæðis. Það sýnir saga heilla stórvelda. Sá skóli er því beztur, sem leyft get- ur einstaklingnum að njóta sín og hæfileika sinna, þó því aðeins, að hann jafnframt alizt upp í félagslegum dyggðum, læri að lifa og starfa með ná- unga sínum og virði rétt hans. Þarna standa heimilin betur að vígi en skól- arnir. Gott heimili er smækkuð mynd af fullkomnu lýðræðisþjóðfélagi. Því er það, að flestar okkar vonir um batn- andi menn og batnandi heim eru bundnar við heimilin, betri og full- komnari heimili. Ég vil helzt minna á þetta við hverja skólasetningu, ekki til þess að draga athyglina frá ábyrgð og skyldum skólanna, heldur til að und- irstrika hina þungu, menningarlegu

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.