Heimili og skóli - 01.10.1951, Side 12

Heimili og skóli - 01.10.1951, Side 12
88 HEIMILI OG SKÓLI það í skáldsögu, þar sem hann gerir heimilið að uppeldisstofnun og dreg- ur þá einkum fram hlut móðurinnar. í sögu þessari verða þau ógleymanlegust hjónin, Ljónharður og Geirþrúður. Ljónharður er veikgeðja maður og drykkfelldur, en ekki slæmur maður. Geirþrúður stjórnar heimili sínu og elur upp börnin, þangað til maður hennar skammast sín og bætir ráð sitt. En Geirþrúður fær hjálp frá mörgum góðum mönnum, sem hafa löngun til að hefja þorp sitt úr því menningar- leysi og drabbi,sem það var sokkiðí,og þar á meðal er liðsforingi einn. Hann sér brátt, að fólkið þarf fyrst og fremst menntun — upplýsingu, og hann segir við sjálfan sig: „Ég ætla að verða kenn- ari!“ En hvernig átti hann að fara að því? Hvar átti hann sjálfur að fá nauð- synlega undirbúningsmenntun til þess? Þarna voru engir skólar, og allra sízt kennaraskóli. En þá dettur honum ráð í hug: Hann fær að koma heim til Geirþrúðar, dvelja þar tíma og tíma og sjá, hvernig Geirþrúður fer að því að ala börn sín upp. Hann leitar til hinn- ar góðu móður og húsmóður. Þetta var hans kennaraskóli. Þannig vill Pestalozzi gera heimilið að eins konar fyirrmynd skólans. — Hann lætur dagstofuna eða baðstof- una, sem stjómað er af góðri móður, verða miðstöð betra og heilbrigðara uppeldis, meiri menningar, meiri þjóðargæfu. Kannske er þetta allt orðið gamal- dags, nú á tímum vöggustofa, leik- skóla, barnagarða, dagheimila og allra okkar skóla? — Nei, það er ekki gam- aldags. Það er eins satt og rétt nú og það var fyrir 170 árum, þegar Pesta- lozzi skrifaði þessa sígildu bók, en tím- arnir hafa breytzt. Skólarnir eru orðn- ir óhjákvæmileg nauðsyn og því meiri nauðsyn, senr heimilin hafa, fyrir rás viðburðanna, orðið veikari uppeldis- stofnanir. Og Pestalozzi hafði enga ótrú á skólunum, hann var þvert á móti einn liinn mesti brautryðjandi á því sviði. En þó að margt hafi breytzt síðan, stendur þó óhaggaður sá grund- völlur, sem Pestalozzi lagði, eða vildi byggja á, en það var: heimilið, skól- inn og trúin á Guð, og þá einnig kirkj- an sem boðberi hennar. Þeir, sem mestu ráða í stjórnmálum heimsins, hafa vafalaust margir góðan vilja á að skapa nýjan og betri heim, en siðbótin kemur ekki þaðan. Betrun mannkynsins og farsæld verður að koma frá mér og þér. Hún verður að koma frá ykkur, foreldrar, í hinum mörgu heimilum. Hún verður að koma frá okkur kennurunum í skóla- stofunni og hún verður að koma frá kirkjunni, sterkri kirkju, ekki aðeins frá prestinum, heldur frá okkur öll- um, þar sem við mætumst í kirkju okkar. Þetta er grundvöllurinn sem við eigum að byggja uppeldi barna okkar á. — Gott heimili, góður skóli og áhrifa- rík og sterk kirkja eru þau stórveldi, sem við verðum að setja traust okk- ar á.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.