Heimili og skóli - 01.10.1951, Síða 16

Heimili og skóli - 01.10.1951, Síða 16
92 HEIMILI OG SKÖLÍ foreldrar allt of margir, sem láta sig þetta litlu skipta. Gullið, sem við fáum fyrir málma okkar og trjávið, er ekki hið mikil- vægasta. Börn okkar eru öllu slíku verðmætara. Útgjöld ríkis og bæja til barnaskólanna, gagnfræðaskólanna og menntaskólanna eru nú um 3 mill- jarðar króna. Ef útgjöld heimilanna til skólabarnanna eru hér talin með, verða þau útgjöld einnig 3 milljarðar króna. Þessi fjárveiting, í þágu barna innan 15 ára aldurs, verður því álíka og öll útgjöld til bygginga, verksmiðja, vega og samgangna. En örlög þjóðar- innar velta á getu æskunnar til að leysa hlutverk framtíðarinnar, og meðal annars hin félagslegu. Virðingarleysi fyrir smápeningun- um er vanmat á þeirri vinnu, sem liggur á bak við alla fjármuni. Æskan í dag er haldin af fyrirlitningu á öllu því, sem heimtar úthald, þolinmæði, sjálfsafneitun. En líf án þrautseigju og þolinmæði leiðir til eymdar óskapnaðar — en þannig er ekki allurt æskulýður nútímans. Kaffihúsalífið kostar líka peninga. A einu laugardagskvöldi er eytt 1l/£ milljón í kaffihúsum Stokkhólmsborg- ar einnar. Og þorrinn af þessum kaffi- húsagestum eru unglingar, sem van- rækja að greiða foreldrum sínum fyrir fæði og húsnæði. Meðal hinna miklu vandamála nú- tímans er sælgætisárið eitt hið alvar- legasta, en sæigæti er nú selt í Svíþjóð fyrir 415 milljónir kr. á ári. Börnum nú á tímurn virðist ómögulegt að ganga fram hjá sælgætisbúð, án þess að kaupa eitthvað, og til eru þær sæl- gætisbúðir, sem lána bömuni sælgæti, til þess að missa ekki af viðskiptun- um.“ „Sænska þjóðin er sælgætissjúk,“ sagði tannlæknir einn, og frá sjónar- miði tannlæknanna er þetta mál því einnig alvarlegt. „Já, síðastliðið ár var eytt til kaupa á súkkulaði, karamellum og brjóst- sykri 415 milljónum króna. Ef gert er ráð fyrir, að helmingurinn sé notaður af börnum og unglingum innan 19 ára, gæti hver einasti íbúi í Uppsölum (ca. 60.000) keypt sér fyrir þá upphæð bifreið af beztu gerð. Öll kartöflu- neyzla þjóðarinnar kpstar ekki helm- ing á við þetta. Fyrir sælgætispeninga sænsku barn- anna árið 1948 hefði mátt kaupa 80.000 ný reiðhjól. Ef þessi reiðhjól hefðu verið tekin á filmu, sem sýndi eitt reiðhjól á sekúndu, hefði verið hægt að sitja og horfa á endalausa röð af reiðhjólum í 45 skóladaga sam- fleytt. Ef súkkulaðineyzlu síðasta árs hefði verið komið fyrir á vöruvögnum, 2 smálestir á hvern vagn, hefði til þessara flutninga þurft 25.000 bifreið- ir. Ef einn vagn færi frarn hjá okkur 5. hverja sekúndu, þyrfti 7 skóladaga til að horfa á alla bifreiðalestina fara frani ltjá. Við eigum ekki að öfunda börnin af ánægju- og gleðistundum þeirra, en við eigum að berjast af alefli gegn allri- misnotkun og óhófi.“ Þá kom Andersson einnig að vanda- málinu um börnin og kvikmyndirnar. Hann taldi, að kvikmyndirnar hefðu geysileg áhrif á líf barnanna, allt frá 3—4 ára aldri. Einn fjórði hluti allra barna í Stokkhólmi fer í kvikmynda- hús á hverjum sunnudegi, og þó eru

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.