Heimili og skóli - 01.10.1951, Qupperneq 20

Heimili og skóli - 01.10.1951, Qupperneq 20
96 HEIMILI OG SKÓLl Hér kemur önnur óvænt niður- staða: „Það er athyglisverður munur á góðum og slæmum drengjum að því er snertir heilbrigði á taugum.“ Og hver er munurinn? Fleiri góðir dreng- ir sýna merki taugaveiklunar en slœm- ir! Hvernig er svo ~ gáfnafar afbrota- unglingsins? Skýrslan sýnir, að tregar gáfur eru ekki samkenni afbrotaungl- inga. Sumar greinar gáfnaprófs leystu þeir ver af hendi en jafnaldrar þeirra, en aðrar betur. Af þúsundum prófa á „handlagni" sannfærðust Gluecks- hjónin um það, að afbrotaunglingar eru þar jafnöldrum sínum heldur fremri. En hvar er þá að finna þá eiginleika, sem mestu ráða um afbrotahneigðina? í lunderni og tilfinningalífi. Tilfinn- ingar okkar ráða meiru um mótun skapgerðar og hegðunar en heilinn. Við rannsókn á þessum eiginleikum er notað svonefnt Rorschachpróf, sem sálfræðingar telja máttugt tæki til að kanna tilfinningalífið. Með aðstoð tíu blekbletta á spjaldi dregur könnuður- inn fram leyndustu hræringar í huga drengsins. Hvaða hugsanir vekja þess- ir margvíslega löguðu blekblettir hjá honum. Með því að segja það opnar drengurinn innsýn í dýpstu hugar- fylgsni sín. Könnuðurnir komust að því, að frá blautu barnsbeini hefur afbrotaungl- ingurinn átt erfitt með að „hugsa og breyta eins og aðrir,“ sem merkir, að hann skortir það, sem við köllum heil- brigða skynsemi (common sense). Honum virðist að eðlisfari vera ókleift að beita rökréttri hugsun við lausn nokkurs vandamáls; „félagslegar kröf- ur“ hans eru þar þrándur í götu. Þess- ar „félagslegu kröfur“ eru ásetningur hans að fá framgengt, ekki rétti sínum og skoðunum, heldur vilja sínum. Hann heimtar að fá vilja sinn án tillits til þess hvað aðrir segja eða hugsa. Undirgefni er andstæð eðli hans. Eins og af eðlishvöt neitar hann að hlýða nokkrum reglum. Þetta er mikilvægt sérkenni. í þessum hættulega mismun er fólgin andúð drengsins á náttúrleg- um hömlum. Það er fjarri því, að afbrotadrengur- inn kenni öryggisleysis og kvíða, eða þjáist af vanmetakennd. Hann hefur ekki áhyggjur út af því að missa at- vinnuna, heimilið eða frelsið. Hann er hjartanlega sannfærður um, að hann sé nógu kænn til að sjá um sig. Hann er mikilmenni, sem er ekki metið að verðleikum. Vegna bjargfastrar trúar á örlög sjálfs sín óttast hann hvorki ólán né ósigur. Bjartsýni hans er ódrepandi; þó að hann lendi í klóm lögreglunnar, er hann sannfærður um, að hann muni „sleppa næst“. Hann treystir meira á mátt sinn og megin en aðrir drengir, og leitar síður aðstoðar eða uppörvunar hjá öðrum. Afbrota- unglingurinn finnur ekki hjá sér neina löngun til að uppfylla vonir, sem aðrir hafa bundið við hann. En hann er sífellt að gera axarsköft, án nokkurrar sjálfsstjórnar. Enginn veit hverju hann kann að taka upp á næst. Af öllu þessu geislar frá honum lífsþróttur, sem marga trausta og áreiðanlega drengi virðist skorta. Sál- fræðingar segja, að hann sé „úthverf- ur“ (extrovert), því að hann veitir innibyrgðum tilfinningum útrás í

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.