Heimili og skóli - 01.10.1951, Side 23
HEIMILI OG SKÓLI
99
EIRIKUR SIGURÐSSON:
Geislafræði í þjónustu uppeldisins.
Þáttur sá, sem hér fer á eftir, er erindi,
sem höf. flutti á aðalfundi Kennarafélags
Eyjafjarðar haustið 1949. Þótt hér sé kom-
ið inn á nokkuð óvenjulegt svið uppeldis-
mála, sem sé svið sjálfsuppeldis og sjálfs-
ræktunar, er því treyst, að það sé ekki
fjarri áhugasviðum lesenda Heimilis og
skóla. Allir uppalendur þurfa að vera leit-
andi sálir og hagnýta sér öll uppeldisleg
verðmæti, hvaðan, sem þau koma. Og
skyldi það vera nokkur fjarstæða að álíta,
að við eigum eftir að finna ný lögmál, nýj-
ar orkulindir, og nýja og betri heima í
okkar eigin sál? Ritstj.
Ein a£ kenningum guðspekinnar er
um geislafrœðina. En hér er í raun og
veru um hagnýta sálarfræði að ræða
og grípur því inn á svið uppeldisins
bæði á heimili og í skólum.
Guðspekifélagið er í eðli sínu náms-
félag fyrir leitandi og fróðleiksfúst
fólk. Þessi stefna hefur haft mikil á-
hrif á hugsunarhátt þjóðarinnar og
virðist falla vel við eðli íslendinga
Þeir eru frjálslyndir og leitandi í and-
legum efnum, hneigðir fyrir heim-
spekilegar athuganir og dulfræðileg
anleg verkefni en stærðfræðileg tákn
og afstæð hugtök.
Umfrarn allt þarf að skapa viðfangs-
efni er veiti útrás umframlífsorku
þeirra, sem hungrar og þyrstir eftir
ævintýrum. „Leikir undir eftirliti"
nægja ekki. Allir afbrotaunglingarnir,
sem prófaðir voru, höfðu haft aðgang
að tómstundaheimilum og leikvöllum.
Höfundur þessarar greinar álítur,
að minnsta kosti, að „lögreglulið æsku-
lýðsins", sem stofnuð hafa verið í sum-
um amerískum borgum, gefi bend-
ingu um lausn þessa vandamáls.
Drengir, sem fá tækifæri til að aðstoða
við að halda uppi lögum og reglu, fá
síður tilhneigingu til að brjóta lögin.
En langmestu máli skiptir þó að efla
og bæta heimilin og fjölskyldulífið.
Það verður með einhverju móti að
finna ráð til að rjúfa. þann vítahring
skapgerðarspillandi áhrifa, er börn
verða fyrir af hendi foreldra, sem sjálf
eru gallaðir vegna slæmra uppeldis-
áhrifa.