Heimili og skóli - 01.10.1951, Qupperneq 26
102
HEIMILI OG SKÓLI
um hin efnislegu vísindi, sem notuð
eru, sem tæki til þekkingar. Oft eru
þessir menn vantrúaðir og efagjarnir,
en hneigjast að sjálfstæðum rannsókn-
um á lífinu og tilverunni. Hugsunin,
er sterkasta vopn þeirra í þessu efni.
í Austurlöndum nota menn alls
konar andlegar æfingar til að þjálfa
hugann. Hér á Vesturlöndum þjálfa
menn hugann við nám í skólum og
svo við algeng störf. Vélamenning nú-
tímans þjálfar menn mjög í þessu efni.
Má í því sambandi nefna bifreiðar-
stjóra, skipstjóra og flugmenn. Allir
fá þeir þroskaða athyglisgáfu.
Helztu gallar þessa flokks eru þekk-
ingarhroki og þröngsýni. Vísinda-
manni,sem stöðugt vinnur ásamasviði
hættir við þessum skapgerðargöllum.
Ekki verður sagt, að þetta eðli sé
mjög áberandi hjá börnum. Þó kann-
ast flestir við litla snáðann, sem efast
um flest það, sem honum er sagt, ef
ekki verður bent á sýnilegar sannanir.
Einnig drengurinn, sem safnar öllum
náttúrugripum, sem hann finnur, er
líklegur til að verða vísindamaður í
náttúrufræði. oftast eru þessi börn
góðir nemendur í skólum, því að
þekkingarþráin er rík í eðli þeirra.
Þessi börn hafa gott af að eiga kær-
leiksríka og trúhneigða móður, sem
glæðir kærleiksþel þeirra.
Sjötti geislinn er blár. Þetta er geisli
tilbeiðslu og trúarþels. þessi flokkur
manna keppir að góðleika og göfgi, en
hirðir minna um sjálfstæða þekking-
arleit. Það lætur að líkum, að þetta er
geisli trúmálafræðara, presta og trú-
boða. Þeir, sem eiga þessa-eiginleika í
ríkum mæli í sál sinni, leita fyrr eða
síðar inn á þessar brautir.
Þessi manngerð er skyld flokki ann-
ars geislans. Þó eru þeir meiri trú-
menn í eðli sínu og því þröngsýnni í
dómum sínum um aðra. En eftir eðli
sínu eru báðir þessir flokkar mjög á
sviði tilfinninganna, enda er trú-
hneigðin aðalþáttur þeirra.
Mjög er misjöfn trúhneigð barna.
En þó eiga mörg börn hana í ríkum
mæli. Varasamt er að vekja efa hjá
barni um hin eiginlegu trúarverð-
mæti. Getur þá svo farið, að það bíði
þess aldrei bætur. í trúarbragða-
kennslu skólanna er hér vandsiglt
rnilli skers og báru. Því að varast ber
einnig að fullyrða um ýmis atriði í
trúfærðibókum, sem vitað er að geta
orkað tvímælis.
Sjöundi geislinn er fjólublár. Hug-
sjónir þessa geisla er skipulag, röð og
regla. Þess vegna teljast margir iðnað-
armenn til hans og einnig sumir lista-
menn. Sennilegt er einnig, að þeir
stjórnmálamenn, sem trúa mjög á hið
ytra skipulag, séu í þessum flokki. Þá
teljast hér til allmargir kaupmenn.
Þessi flokkur manna hneigist mjög að
helgisiðum, ef þeir koma nærri and-
legum málum. Annars eru þeir taldir
mjög háðir hinu ytra formi.
Þessi geisli er talinn skyldur geisla
stjórnandanna. Oft á stjórnandinn
einhverja þá eiginleika, sem samræm-
ast þessum geisla.
Flestir munu kannast við börn, sem
hneigjast mjög að fastri reglu og
skipulagi. Telja má víst, að uppalend-
ur vinni gott verk með því að stuðla
að því að festa þessa eiginleika í fari
barnanna.
Þá hef ég drepið lauslega á þessar
sjö manngerðir, sem skýrt er frá í guð-