Smárit Handíðaskólans - 01.08.1943, Page 5

Smárit Handíðaskólans - 01.08.1943, Page 5
Kennum börnunum að vinna! Frá fálmi til markvíss starfs. Þeim, sem fylgzt hafa með þróun skólamála okkar hin síðari ár, dylst ekki, að hér er vakinn allalmennur áhugi á eflingu verklegs náms í barna- og unglingaskólum landsins, Áhuga þessa gætir furðu víða, og eigi síður utan en innan kennarastéttarinnar. Svo virðist sem menn séu að rumska til skilnings á því, að í verklega náminu kunni að vera fólginn verðmætur þroska- og menntagjafi, sem vert sé að sinna og hlúa að, betur en gert hefir verið til þessa. Það mun þó sannast sagna, að fylgi það, sem málefni þetta nú nýtur svo víða, styðst hjá mörgum frekar við eölisávísun en þekkingu, rök eða reynslu. Er því engin furða, þótt margt af því, sem hér hefir verið brotið upp á hin síðari ár, sé með nokkrum óvaningsbrag, fálmkennt og laust í reipunum. Að vonum hafa líka mörg víxlsporin verið stigin, margri krónunni kastað á glæ og margri stundinni eytt til lítils gagns, — ef ekki beinlínis til tjóns. Það er mér þó fjarri skapi, að fordæma allt, sem hér hefir verið gert á þessu sviði. Margt af því er mjög mark- vert, og vænlegt til þroska. En margt líka harla lítils virði og sumt hygg ég, að stefni beinlínis til ófarnaðar. Ég hygg því, að nú sé tímabært að staldra við stundar- korn, meta fengna reynslu og marka stefnuna, sem halda skal. Vænti ég þess þó einkum, að kennarar, sem þetta mál varðar fyrst og fremst, taki nú verklega námið almennt til gaumgæfilegrar íhugunar og umræðu, og geri sér glögga grein fyrir því, hvað þeir vilja, hvað kenna skuli, hvers- vegna og hvernig. Með þessu móti einu fáum við hafið markvíst, jákvætt

x

Smárit Handíðaskólans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Smárit Handíðaskólans
https://timarit.is/publication/1881

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.