Smárit Handíðaskólans - 01.08.1943, Page 11

Smárit Handíðaskólans - 01.08.1943, Page 11
9 muninn á alúð í starfi og flumbruhætti, muninn á sam- vizkusemi og kæruleysi o. s. frv. Töfrar handrænna starfa og hið mikla þroskagildi þeirra fyrir börnin, eru fólgnir í því, að hvert handbragð, sem unnið er, kveður jafnskjótt upp dóm yfir þeim, sem verkið vinnur, og flytur þann dóm á mali, sem hann skilur. Drengurinn, sem flaustrar af smíði kassans síns og klambrar honum „einhvernveginn" saman, fær engin mál til að falla rétt, og kassinn verður annað hvort of víður eða of þröngur, of djúpur eða of grunnur og ef til vill hornskakkur og skældur í þokkabót. Brúðukjóllinn, sem skakkt er sniðinn og illa saumaður, fellur aldrei að bol brúðunnar, en ber handbragði telpunn- ar, sem gerði hann, illt vitni, á meðan hann endist. Barn- ið, sem vinnur illa og vanhirðir garðbeðið sitt, fær litla uppskeru og lélegan ávöxt. Af ávöxtunum skulu þér þekkja þá! Verkið lofar meist- arann, en lastar fúskarann. Svo hér, í heimi barnanna, sem annars staðar. Árangur, eða útkoma sérhvers starfs, andlegs eða líkam- legs, svarar ætíð til þeirrar orku, þekkingar og alúðar, sem í það er lagt. En munurinn á þeim vanda, að meta afköst handræns starfs og andlegs, er oft ýkja mikill. Handræn afköst eru, eins og áður segir, að jafnaði auðmetnari, sýni- leg, áþreifanleg, veganleg eða mælanleg. En mat á gildi andlegra afkasta er oftast vandasamt mál og flókið og mjög háð þekkingu, skarpskyggni og persónulegu viðhorfi dómarans. Hver, sem vill, getur sannfærst um þetta með einfaldri tilraun. Látið t. d. nokkra 10 ára gamla drengi saga jafn stóra búta af ferstrendri stöng. Látið þá síðan sjálfa dæma um vinnubrögðin. Ég hefi sannprófað það, að flestir dreng- ir með meðalgreind sjá mjög fljótt alla helztu kosti og galla vinnunnar. Látið síðan sömu drengi skrifa stíl, t. d. um ferð, sem þeir

x

Smárit Handíðaskólans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Smárit Handíðaskólans
https://timarit.is/publication/1881

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.