Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1960, Síða 3

Læknaneminn - 01.10.1960, Síða 3
LÆ KNANEMINN tJtg. Fél. Læknanema Háskóla Islands. Reykjavík, október 1960 3. tbl., 13. árg. Bergþóra Sigurðardóttir, cand. med. et. chir. Um veirur og krabhamein. Sú hugmynd, að veirur eigi þátt í myndun krabbameins, er engan veginn ný. Frakkinn Borrel setti fram þá tilgátu þegar á árinu 1903, en hún naut þá lítilla vinsælda. Fyrstu krabbameinin, sem sann- að var að orsökuðust af veirum, voru ýmis hænsnakrabbamein. Þannig tókst Peyton Rous árið 1911 að sýkja kjúklinga með frumu- og bakteríufríu síi úr hænsnasarkmeini, sem síðan er við hann kennt. Reyndar höfðu Ellermann og Bang árið 1908 sannað, að leukosis í hænsnum or- sakaðist af veiru, en á þeim tíma var ekki almennt litið á þann sjúk- dóm sem krabbamein. Þrátt fyrir þessar niðurstöður, þótti sú tilgáta, að veirur yllu krabbameini, langsótt, enda mis- heppnuðust flestar tilraunir, sem gerðar voru á þeim grundvelli. Þó fundust í hænsnum fleiri sarkmein, sem orsökuðust af veirum og um 1930 voru þau orðin 18. Var al- mennt litið svo á, að þetta væri einstakt fyrirbrigði, bundið við hænsni. Stóð svo til ársins 1933 er Shope einangraði veiru úr þekjufrumuæxli í kanínum, og 1936 fannst svo kallaður ,,milk- factor“ í músum, og um líkt leyti veira, er veldur nýrnakrabba í froskum. Þótt líkurnar fyrir því, að krabbamein í fleiri dýrategundum orsökuðust af veirum, ykjust, var enn töluverð tregða í þessum rann- sóknum, og verulegt fjör komst ekki í þær fyrr en eftir 1951, er Ludwik Gross fann veiru, er olli hvítblæði í músum, og í kjölfar þess fannst 1958 svokölluð Ste- wart-Eddy polyoma veira, sem eftir ræktun í vefjagróðri veldur margs konar æxlum í músum. Leukosis í hænsnum.. Eins og áður er sagt, var leu- kosis í hænsnum fyrsta krabba- meinið, sem sýnt var fram á, að orsakaðist af veiru. Síðar kom reyndar í ljós, að um marga sjúk- dóma er að ræða, hvern með sín- um einkennum og orsakast af mismunandi veirum. Verður hér aðallega rætt um svokallaða visceral lymphomatosis, sem ein- kennist af offjölgun á vanþroska, hvítum blóðkornum, sem setjast að í lifur. lungum, milta og fleiri líffærum. Er þessi sjúkdómur ein- stakur í sinni röð, sem krabba- mein. Hefur komið í ljós, að hann

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.