Læknaneminn - 01.10.1960, Blaðsíða 8
8
LÆKN ANEMINN
fundizt veirulaga agnir, um 270
npi að stærð, en mikið er óunnið
á því sviði.
Enn virðist lítið til frásagna af
veirum í sambandi við æxli í
mönnum. Með rafeindasjá og vef ja-
ræktun eru komin tæki, sem jafnt
er hægt að beita við menn og dýr.
Dmochowski hefur lýst veiruleg-
um ögnum í eitlum frá acut
lymphatiskri leukemiu og einnig
myeloid leukemiu. Ekki þarf að
efa, að mikið er nú unnið með
krabbamein á þessum grundvelli.
Á því stigi, sem rannsóknir á
Rous-sarkmeini í vefjagróðri eru,
virðist mikils mega vænta um það,
hvað það er, sem skeður með frum-
unni, þegar hún verður illkynja.
Þær æxlisveirur, sem þegar eru
fundnar, virðast ekki í neinum
grundvallaratriðum frábrugðnar
veirum, sem valda annars konar
sjúkdómum, né heldur eru þau
æxli, sem vitað er að veirur valda,
frábrugðin öðrum krabbameinum.
Þeir tímar eru nú næstum liðnir,
að sá, sem skila þóttist jákvæðum
árangri á þessu sviði, væri annað-
hvort sagður hafa lausa skrúfu
eða leka síu.
Helztu heimildarrit.
Andervont, H. B., 1959: Problems concerning the tumor viruses, í The Viruses
eftir Burnet og Stanley, Vol. III.
Beard, J. W., 1957: Etiology of Avian Leucosís. Ann. N. Y. Acad. of Sci.
1958: Viruses as a Cause of Cancer. Am. Scientist, 46, 226—254.
— — 1959: Viral Tumors in Cancer Research.
Beard, J. W., Sharp, D. G. and Eckert, E. A., 1955: Tumor Viruses. Adv. in Virus
Research, 3, 149—197.
Burmester, B. R., 1957: Routes of natural Infection in Avian Lymphomatosis.
Annual N. Y. Acad. of Sci.
Dmochowski, L.: Viruses and Tumors. Bacteriological Reviews, vol 23, no. 1.
— 1960: Viruses and Tumors in the Light of Electronic Microscopie
Studies. Cancer Research 20, 7.
Eddy, B. E., Stewart, S. E., Berkeley, W., 1958: Proc. Soc. Exptl Biol. Med. 98,
848—851.
Gross, L., 1951: Proc. Soc. Exptl. Biol. Med. 78, 343—348.
1953: Proc. Soc. Exptl. Biol. Med. 83, 414—421.
— — 1958: Review of Cancer Research, 18, 371—381.
— 1959: Proc. Soc. Exptl. Biol. Med., 100, 102—105.
Oberling, C. and Guérin, M. 1954: Advances in Cancer Research, 2, 353—423.
Stewart, S. E. and Eddy, B. E., 1958: Journ. Natl. Cancer Inst. 20, 1223—1236.
— — — — 1959 :Perspectives in Virology, 245—255.
Knt fil samkeppni
Ritstjórn Læknanemans hefur
ákveðið að efna, til samkeppni um
merki fyrir félag okkar. Ekkert
félag getur verið án félagsmerkis,
sízt jafnmerkilegt félag og okkar.
Ákveðið er að verðlauna það
merki, sem valið verður. Dóm-
nefndin verður skipuð stjórn fé-
lagsins og ritstjórn blaðsins. TJtlit
merkisins er algerlega gefið
frjálst. Þess skal getið hér, að heiti
félagsins er Félag Læknanema.
Tillögur skulu merktar dulnefni,
en nafn tillöguhöfundar skal
fylgja í lokuðu umslagi. Tillögur
skulu hafa borizt fyrir 31. janúar
1961, og skulu þær sendar Páli
Ásmundssyni, Birkimel 10,