Læknaneminn - 01.10.1960, Qupperneq 15
LÆKNAZl EMINN
15
Læknirinn: Þér verðið annað-
hvort að neita yður um vín eða
konur.
Sjúklingurinn: Jæja, þá ætla ég
heldur að hætta við vínið núna og
skipta svo um, þegar ég verð
eldri.
★ ★ ★
„Þetta er nýi svæfingalæknirinn“.
★ ★ ★
Konan hafði tekið léttasóttina,
og föðurnum fannst tími til kom-
inn að fara að búa soninn undir
komu nýja ættingjans. „Dreng-
ur minn, þú veizt að . . . að stork-
urinn hefur. .. hefur flögrað
nokkuð lágt yfir húsinu dálítinn
tíma. Já, nú . . . nú hamast hann
með vængjunum eins . . .“
,,Hvurt í veinandi maður!“ gall
í strák, ,,ég ætla bara að vona að
hann hræði ekki mömmu. Þú
veizt, hún er ólétt!“
Það var í fimmtugsafmæli
augnlæknisins. Vinir hans og
kollegar höfðu fært honum herj-
ans mikið málverk af auga eftir
frægan meistara.
Þá hnippti hálslæknirinn í vin
sinn gynækologinn og spurði:
„Hlakkarðu ekki til, þegar þú
verður fimmtugur?“
★ ★ ★
„Læknir, ég hef haft hiksta í 3
daga. Get ég fengið eitthvað við
honum?“
Læknirinn hellti einhverju í glas
og sjúklingurinn skellti því í sig.
„Uúúhú! hvað var þetta!!?“
„Tvöfaldur skammtur af laxer-
olíu,“ svaraði læknirinn rólega,
„og nú er ekki þorandi að hiksta."
★ ★ ★
★ ★ ★
Það, sem skrifað hefur verið
um krabbamein, fyllir marga
bókaskápa, en það, sem við raun-
verulega vitum um það, kæmist
fyrir á einu nafnspjaldi.
(August Bier.)