Læknaneminn - 01.10.1960, Síða 20
20
LÆKNANEMINN
Þessi saga er um konu, sem
kvartaði um meltingartruflun við
lækni sinn.
Læknirinn skoðaði konuna og
spurði m. a. hinnar klassisku
spurningar: „Eru hægðir reglu-
legar?“
„Eins og klukka“ svaraði konan,
„á 3ja tíma fresti, kortér yfir
heila tímann.“ „Jæja,“ sagði
læknirinn, „ætli þetta læknist
ekki með pencillini."
Sagt er, að stethoscop læknisins
hafi greint eftirfarandi samtal úr
iðrum konunnar.
Fyrsta rödd (í angist): „Félag-
ar! Nú er úti um okkur. — Nei
annars! Ég ætla að hlaða mér
vígi úr gallsteinum. Þá nær
penicillinið aldrei í mig.“
Önnur rödd: „Ég ætla að fela
mig bak við hjartað. Það er sterkt
og gott.“
Þriðja röddin: „Þið tveir getið
haft það eins og þið viljið, en ég
ætla ekki að bíða eftir pencillin-
inu. Ég tek 7,15 ferðina héðan.“
★ ★ ★
Góð móðir diagnosticerar oft
miklu betur en lélegur læknir.
(Bier)
★ ★ ★
Hví byggjum við ekki fleiri
sjúkrahús en færri kirkjur? Þú
getur beðið til Guðs, hvar sem þú
ert staddur, en þú getur ekki
skorið upp í göturæsinu.
(Axel Munthe.)
★ ★ ★
Sjúklingur (í geðveikrahæli):
„Okkur líkar betur við yður en
gamla lækninn.“
Læknir: „Hversvegna?"
Sjúklingur: „Þér eruð svona
eins og einn úr okkar hóp!“
★ ★ ★
„Almáttugur!“ sagði konan,
sem var að skoða geðveikrarhælið.
„Hvílíkur voðasvipur var á kon-
unni, sem við mættum. Er hún
hættuleg?“
„Stundum," svaraði læknirinn,
sem fylgdi konunni um hælið.
„Hversvegna fær hún að ganga
laus?“
„Ég ræð því ekki.“
„Er hún ekki sjúklingur eða
undir yðar stjórn?“
„Nei, hún er hvorugt. Hún er
konan mín.“
★ ★ ★
Fyllibytta (horfir á mynd
tunglsins í vatninu): „Hvað er
þetta þarna niðri?“
Lögregluþjónn: „Það er tungl-
ið.“
Fyllibytta: „Hvernig í andskot-
anum hef ég komizt hingað upp?“
Frestur til að innrita sig til prófs-
ins mun renna út 18. des. n. k.
Þar sem leggja þarf fram próf-
skírteini um íslenzkt embættis-
próf með umsókninni, er auðsætt,
að þeir, sem fara í lokapróf í jan-
úar 1961, geta ekki gengið undir
prófið í marz. Blaðið hefur fregn-
að, að stjórn Félags læknanema
geri um þessar mundir tilraun til
að afla undanþágu fyrir þessa
menn, svo þeir geti tekið prófið
í marz, ef þeir kæra sig um.
P. Á