Læknaneminn - 01.10.1960, Síða 22
LÆKN ANEMINN
FUNDIR.
Fundur haldinn í Félagi lœknanema
11. marz 1960
Gestui1 fundarins var Valtýr Bjarna-
son læknir. Flutti hann erindi: „Cardiac
standstill undir svæfingu". Var Valtý
þakkað erindið með lófataki.
Var síðan tekið að ræða félagsmál.
Fyrir fundinum lá beiðni S. H. 1. um
að félagið legði fram kr. 25.000 úr sjóð-
um sinum sem baktryggingu fyrir láni,
er stúdentaráð hygðist taka hjá Verzl-
unarsparisjóðnum til að standa straum
af stofnkostnaði vegna væntanlegs
hótelrekstur á stúdentagörðunum, en
fyrir lá loforð frá Skemmtifélagi Garð-
búa um kr. 25.000 og frá Félagsheimilis-
sjóði um kr. 45.000 í sarna skyni. Varð
fundurinn einróma við þessari beiðni.
Þá skýrði formaður frá nefndaráliti
hcilbrigðis- og félagsmálanefndar efri
deildar Alþingis um lagafrumvarp
varðandi framhaldsnám o. fl. Lagði
nefndin til að:
1) fellt yrði niður ákvæði það, er
skyldaði kandidata til framhalds-
náms hér á landi.
2) 1 stað heimildar landlæknis til
ráðstöfunar á námsvist kandi-
data komi heimild til ráðherra til
að setja reglur um ráðstöfun
námsvistar kandidata.
Mun Alþingi hafa samþykkt frum-
varpið með þessum breytingum.
Þá fór formaður nokkrum orðum um
bandaríska læknaprófið fyrir erlenda
kandidata.
Að endingu voru sýndar tvær kvik-
myndir: Surgical Anatomy of the
Stomach and Pancreas og Vesprin in
Surgery.
Fundur í Félagi lœknanema 20. júlí 1960
Arinbjörn Kolbeinsson læknir, for-
maður Læknafélags Reykjavíkur,
ræddi þar nokkuð kjarabaráttu þá, er
kandidatar áttu í um þær mundir. Að
LÆKNA NEMINN
BLAÐ FÉLAGS LÆKNANEMA
Ritnefnd:
Páll Ásmundsson,
ritstjóri og ábm.
Sigurður Þorvaldsson,
Tryggvi Ásmundsson.
Fjármál og dreifing:
Guðjón Sigurbjörnsson.
Auglýsingar:
Björgúlfur Lúðvíksson,
Lúðvík Albertsson.
Áskriftarverð 50 krónur.
Prentað í Steindórsprenti h.f.
líkindum verður nánar greint frá
kjarabaráttu þessari síðar.
Skemmti- og frœðsluferð.
sem Félag læknanema gekkst fyrir,
var farin þann 12. apríl s. 1. Farið var
að Keldum, í Kópavogshæli og í sjúkra-
hús varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli.
Vegna þess, hve staðir þessir gátu tek-
ið á móti takmörkuðum fjölda, var
þátttaka í ferðinni takmörkuð við II.
og III. hluta.
Starfsfrœðsludagur
var haldinn í Háskólanum á vegum
stúdentaráðs þann 25. september. Voru
þar gefnar upplýsingar um háskóla-
nám. Var þar jafnan prófessor frá
hverri deild, er gaf upplýsingar um
nám í sinni deild, nema frá lœknadeild,