Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1960, Qupperneq 27

Læknaneminn - 01.12.1960, Qupperneq 27
LÆKNANEMINN 27 SKÁKÞÁTTUR Stór fyrirsögn á forsíðu — jafn- vel í ramma — kunngerir, að á morgun muni þetta eða hitt birt- azt. Þannig eru uppsett og skrifuð þau blöð, sem lengst eru komin í menningunni. Ég tilkynni nú les- endum þáttarins (ef einhverjir eru), að í næsta þætti verður á sögulegan og mjög svo vísinda- legan hátt rætt um undrabörn á sviði skáklistarinnar. í raun og sannleika er þó hér ekki um það eitt að ræða að tolla í tízkunni heldur fremur uppbót á efni þátt- arins nú — afsökun á því, að hann verður að þessu sinni hálfgerður samtíningur, því auðvitað er það skammarlegt svona rétt fyrir jólin. I síðasta þætti ræddi ég um heimsmeistaramót stúdenta í skák og þá skömm, að íslenzkir stúdentar hefðu ekki verið þátt- takendur á tveimur síðustu slíkum mctum. Ekki veit ég, hvort þessi skrif hafa nokkuð ýtt við þeim, sem hér eiga hlut að máli. Þeir eru ekki í okkar ágætu deild og mér er sagt, að Læknaneminn sé lítt lesinn utan deildarinnar og er skömm til þess að vita um jafn merkilegt rit. Það skal þó sagt, að formaður skáknefndar stúdenta hefur tjáð mér, að íslenzkir stú- dentar muni taka þátt í næsta heimsmeistaramóti hvað sem það kostar og engar refjar. Jafnframt hefur formaðurinn sagt mér, að nefnd sú, hverrar höfuðprestur hann er, muni verða ötul mjög og stórvirk og er þá ekki um það að efast. Með tilliti til þessa þykir mér einsýnt, að hér í þættinum verði ekki framar nauðsynlegt að vera með ábendingar um hvað gera skuli til þess að nota skákina sem lyftistöng í félagslífi stúdenta heldur færizt efni hans inn á aðrar brautir eins og ljóst er af viðfangs- efni hins næsta. Hér skal þó kom- ið á framfæri hugmyndinni um skólamót í skák, sem á var drepið í síðasta þætti. Um þetta þarf ekki langt mál. Almennur áhugi er fyr- ir því í ýmsum framhaldsskólum hér í bænum, að koma á fót sveita- keppni í skák milli skóla. Þetta mætti skáknefndin athuga. Hins vegar lét nefndur formaður liggja orð að því, að við læknanemar værum daufir í félagslífinu a. m. k. skákinni, rétt eins og við hefðum aldrei tíma frá skruddunum. Hinu fyrrnefnda hef ég auðvitað mót- mælt sem hinum versta áróðri en úr seinna atriðinu hvergi dregið. Um þessar mundir fer fram svæðismót í Hollandi. Mót þetta er liður í baráttunni um heims- meistaratitilinn í skák. Það hefur gerzt í sambandi við þetta mót, staka stofu, en slíkar stofur eru hvorki til í menntaskólunum né í öðrum æðri skólum hér á landi, nema í háskólanum. Efnafræðikennslan hér á landi mun því ekki komast í viðunandi horf fyrr en nýjar skólabygging- ar með sérstökum tilraunastofum fyrir efnafræði rísa af grunni“. Hér ljúkum við svo þessu spjalli og þökkum prófessor Steingrími fyrir ánægjulega stund. Megi há- skólinn og læknadeild njóta krafta hans sem lengst og bezt. T

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.