Ferðir - 01.03.1940, Side 7
Ferðir]
5. blaðsíða
Að lokum ofurlítið kvæði, við getum kallað það
ÞEISTAREYKJASONNETTU.
Ort sunnan í Stórahversmó, á leið frá Þeistareykjum,
á þriðja í Hvítasunnu, 30. maí 1939.
Titrar í lofti tíbrá yfir heiðum,
teygja sig fjöll til himinblárra ranna
og lýsa skært í litum hvítra fanna,
lífþrunginn blærinn strýkur móabreiðum.
í suðri hitinn silkiskýjum hreykir,
sólstafir ljóma yfir hraunasprungum,
hillingar lyfta dyngju breiðum bungum,
brosa í austri grænir Þeistareykir.
Landið er allt í sumar vafið sól,
Sál mína ég baða í ljóssins mjúku öldum.
Ekkert er betra en gönguferð um fjöll.
Blasa við grundir klæddar gróðurkjól,
kraumandi hverir veifa reykjaföldum.
Hér ætti að reisa helgidómnum höll.
Ólafur Jónsson.