Ferðir - 01.03.1940, Page 8
6. blaðsíða
[Ferðir
Fjallaskálar.
Þegar Ferðaíélag Islands var stofnað fyrir rúmum 12
árum síðan, var eitt helzta stefnuskráratriði þess að opna
mönnum nýjar leiðir til íerðalaga og beina ferðamanna-
straumnum upp um fjöll og inn á öræfi, þar sem áður
höfðu fáir f'arið vegna þess, hve þar var torfært og dýrt
að komast þangað sakir mikils ferðaútbúnaðar. Þó var
mönnum ljóst, að hvergi væri náttúra íslands mikilíeng-
legri né meira laðandi, en einmitt inn til i'jalla. F. í. tók
þegar að vinna að þessu steinumáli, en brátt kom í ljós,
að eitt höfuðatriði þess, að öræfaferðir yrðu almennar
var, að reist yrðu sæluhús á þeim slóðum, sem fjölfarn-
astar yrðu. Hófst F. í. handa með því að reisa sæluhús í
Hvítárnesi 1930. Síðan hefir félagið látið reisa 3 sæluhús
á Kili, á Hveravöllum, í Árskarði í Kerlingaríjöllum og í
Þjófadölum. Auk húss á Jökulhálsi við Snæfellsjökul.
Jafnframt þessu átti F. í. frumkvæði að því, að Kjalveg-
ur var gerður bílfær. Þar er því nú næsta fjölfarið og
gestkvæmt mjög í skálum félagsins. Varla leikur vafi á,
að nú fara fleiri menn um Kjöl á einu sumri en áður öld-
um saman. Því hef'ir vegagerð og sæluhús Ferðafélagsins
áorkað.
Hver sá, sem gistir sæfuhús F. í., f'innur bezt muninn á
hinum vistlegu húsum þess og kof'um þeim, sem áður
hafa reistir verið um öræfin, bæði vegna ferðalaga og
fjallleitarmanna. Kofar þeir eru að vísu góðra gjalda
verðir, en hins vegar er of lítið til þeirra vandað, því að
ékki aðeins eru flestir þeirra gjörsnauðir af öllum þæg-
indum, heldur eru þeir dimmir, þröngir og saggasamir.
Gildi sæluhúsa fyrir fjallaferðir er augljóst. Ef þau eru
nógu mörg og hæfiléga þétt sett og á heppilegum stöðum,
þá er rutt úr vegi einum mesta örðugleikanum á fjalla-
ferðum, þeim, að hafa með sér mikinn farangur, jafnvei
(Framhald á bls. U).