Ferðir - 01.03.1940, Side 15
Ferðir]
13. blaðsíða
Náttúruskoðun.
Á fáu hefur jafnmikil breyting orðið í þjóðlífi voru nú
seinasta áratuginn og því, hve mikið menn ferðast, og
hversu ferðahraðinn hefur aukist. Það, sem áður var
dagleið, er nú nokkurra stunda ferð. Jafnframt þessu
hafa skapast ný ferðalög, skemmtiferðirnar. Hefur Ferða-
félagið átt drjúgan þátt í að koma þeim á fót.
asta viðfangseíni félagsins sem stendur, og yfirleitt er
vafasamt að Ferðafélagið geti á annan hátt unnið meira
almennt gagn, en með því að reisa fjallaskála.
Fyrir örfáum árum voru Herðubreiðarlindir einhver
fjarlægur æfintýrablettur í augum alls þorra landsmanna.
Nærri lét, að telja mætti á fingrum sér þá menn, sem þar
höfðu komið. Vegna þess starfs sem F. F. A. hefur þegar
unnið, hafa nú síðustu sumrin tugir manna gist Lindirn-
ar, og á hverju sumri er Lindaferðin ein vinsælasta ferð-
in, sem farin er, og hennar beðið með mestri eftirvænt-
.ingu. Það er heldur engin furða, því að torfundinn mun
sá staður á öræfum landsins, er taki Herðubreiðarlindum
fram að fegurð og fjölbreytni. Þar mætast hinar dýpstu
andstæður auðnar og frjósemdar. Þaðan er fjallasýn og
víðlendi með afbrigðum. Og þaðan er örstutt að ganga á
Herðubreiö, sem hlýtur að verða eftirsótt fjallganga, bæði
sakir þess, að til mikils er að vinna í útsýni, og að það
verður alltaf nokkrum erfiðleikum bundið að sigra þá
þraut og sá maður að meiri, er þangað gat komist. En
sæluhúsið vantar enn, gott og vistlegt. Það er takmark
félags vors að koma því upp, og ég vænti þess, að við öll
getum tekið höndum saman um að lyfta því átaki sem
fyrst. St. Std.
F É L A G A R!
Fjölmennið á árshátíðina í „Skjaldborg“ 10. marzn. k.