Ferðir - 01.03.1940, Blaðsíða 18
16. blaðsíða
[Ferðir
Frá félaginu.
Aðalfundur
F. F. A. vár haldinn 23. jan. s. 1. Var þar eins og að venju gefið
stutt yfirlit um störf félagsins á liðnu ári, lagðir fram reikningar og
kosin stjórn og ferðanefnd. Úr stjórninni gengu Steindór Steindórs-
son og Þormóður Sveinsson, voru þeir báðir endurkosnir, en í stað
Björns Björnssonar frá Múla, sem fluttur er burtu, var kosinn Björn
Þórðarson. I ferðanefnd voru kosnir: Kjartan Sæmundsson, Þorsteinn
Þorsteinsson, Ármann Dalrttannsson, Eðvarð Sigurgeirsson, allu
endurkosnir og Jónas Hallgrímsson. Félagatala er nú 301.
Fjárhagur:
Tekjur félagsins voru kr. 2280.12, en útgjöld kr. 1527.43. Af
tekjuafganginum var samþykkt að leggja kr. 500.00 í Sæluhússjóö.
Hann var í ársbyrjun kr. 1035.94. Eignir félagsins eru þar að auki
ýmsir munir virtir á kr. 703.00 og í sparisjóði vegna ferðalaga
kr. 175.36.
Skemmtiferðir
s. 1. surnar voru fárnar 22, var þátttaka góð, sem sjá má af fjölrit-
'aðri skýrslu,' sem send hefur verið til félagsmanna. Mesta nýjungin
i þeim ferðum var sumarleyfisferðin 1.—9. júlí, um mikinn hluta
Suðurlands. Eins og sjá má af ferðaáætluninni er sumarleyfisferðin í
sumar áætluð um Austurland, og er þess að vænta að í henni verði
góð þátttaka, því að ekki nnin veróa ódýrara né skemmtilegra að
ferðasf á ahnan hátt en með F. F. A.
Vegagerð:
Á s. 1. sumri var hafin vegagerð upp úr Eyjafirði i því skyni að
gera bílfært suður á Sprengisand. Naut félagið til þess drengilegrai
aðstoðár margra utanfélagsmanna, bæði úr Akureyrarbæ og Eyja-
firði. Því starfi verður haldið áfram í sumar. En frekari greinargerð
er á öðrmn stað frá ferðanefnd sem haft hefir á hendi helztu fram-
kvæmdir í því máli,
Árshátíð:
Samkvæmt ósk og samþykkt aðalfundar hefur stjórnin ákveðið að
halda árshátíð í samkomuhúsinu »Skjaldborg« sunnudaginn 10.
marz næstk. Þar verður sameiginleg kaffidrykkja, ræðuhöld, dans og
annar gleðskapur. Til aðstoðar stjórninni við undirbúning hátíðar-
innar voru kosnar: Sesselja Eldjárn, Anna Laxdal og Gunnlaug
Baldvinsdóttir. Þess er vænst að félagar fjölmenni, á hátiðina, ekki
síður en í ferðalög F. F. A.
Akureyri. Prentverk Odds Björnssonar. 1940.