Ferðir - 01.06.1958, Blaðsíða 5
Ferðir] 3. blaðsíða
Hrauneyjnfoss í Tungnaá, 29 m. — Ljósm. S. Rist.
félag Akureyrar tók að ryðja veg á Vatnahjalla. Sumarið 1944
hóf félagið, undir leiðsögu Þorsteins heitins Þorsteinssonar
og í samvinnu við Pál Arason frá Þúfnavöllum, leit að leið-
um fyrir bifreiðar um Ódáðahraun. Komizt var í fyrsta á-
hlaupi suður fyrir Dyngjufjöll. í ágúst 1944 var í fyrsta sinn
ekið suður Vatnahjalla. Slóðin var svo lengd árlega og komið
að Tungnaá við Hald 1. ágúst 1948, sjá greinina „Suður að
Tungnaá“ eftir Bjöm Bessason í Ferðum 1949.
Sunnlendingar sóttti inn í land að sunnan, og í ágúst 1950
tókst Guðmundi Jónassyni frá Múla1) að aka norður yfir
Tungnaá hjá Vatnaöldum. Haustin 1949 og ’50 efndi Einar
Magnússon menntaskólakennari til könnunarferða kringum
Hofsjökul, samanber skýringar með leiðunum 28 og 34.
Einar hafði komið við þessa sögu áður, eiginlega hleypt
skriðunni af stað. í ágúst 1933 fór Einar við fjórða rnann á
gamla Ford frá Galtalæk á Landi um Sprengisandsveg norð-
ur að Mýri í Bárðardal. Bílnum var fleytt yfir Tungnaá hjá
Haldi. Hinir þrír voru Valdimar Sveinbjörnsson, samkenn-
1) Múli í Línakradal, V.-Hún.