Reykjanes - 17.06.1947, Qupperneq 3
REYKJANES
3
llndirbúningur hátíða
haldanna í dag.
Þjóðliátíðin í dag er haldin fyr-
ir forgöngu hreppsnefndarinnar
í Keflavík. Öllum starfandi fé-
lögum i Keflavík (að Rotary-
klúbbnum undanteknum) barst
fyrir sköimnu eftirfarandi bréf,
sem dagsett er 2 júní s.l.:
Á fundi hreppsnefndar 20. maí
s.l. var rætt um hátíðaliöld 17.
júní n.k. og að loknum umræðum
samþykkt eftirfarandi tillaga:
„Hreppsnefnd samþykkir að
skrifa öllum starfandi félögum i
Keflavík og óska eftir því, að þau
tilnefni 1 fulltrúa í nefnd frá
hverju félagi, er ásamt fulltrúa
frá hreppsnefnd sjái um iiátíða-
höld 17. júní næstk.
Nefndin ráði tilhögun hátíða-
haldanna. Verði ágóði af liátíða-
höldunum, skal hann renna í
„Skrúðgarðssjóð.“
Fulltrúi hreppsnefndarinnar er
hr. Bjarni Albertsson, og er hann
formaður nefndarinnar.
Hreppsnefndin væntir þess, að
okkur skylda til þess að láta hann
ekki verða fyrir vonbrigðum af
heimsókninni, við verðum að
sýna honum að sögurnar um dug
og drengskap heimaþjóðarinnar
séu ekki hyllingar einar, heldur
sé hér fólk sem vert er að halda
vinskap við og óhætt er að bera
traust til.
Um leið og ég óska séra Eiríki
og fjölskyldu hans allra farar-
heilla þá vil ég fullvissa hann um
að við söknum hans og bjóðum
hann velkominn heim aftur að
loknum störfum.
Við biðjum hann að flytja
kveðjur til landanna handan við
hafið og fullvissa ])á um að við
viljum gæta hólmans heima og
viðhalda og auka vináttuböndin
og samvinnuna við þá sem fjærst-
ir búa.
Farið lieil! Verið sæl! Komið
heil til Islands aftur!
þér verðið við ósk hennar og til-
nefnið fúlltrúa yðar liið fyrsta.
Virðingarfyllst,
f. h. Hreppsn. Keflavíkurhrepps
Ragnar Guðleifsson,
oddviti.
Öll félögin brugðust eðlilega vel
við þessum tilmælum og skipuðu
etfirtalda fulltrúa:
Ungmennafél. Keflavíkur: Arn-
björn Ölafsson.
Stúkan Vík: Páll Einarsson.
Verkalýðs- og sjómannafélagið:
Karl Björnsson.
Kvenfélag Keflavikur: Elín Ólafs-
dóttir, frú.
Slysavarnadeild kvenna: Sesselja
Magnúsdóttir, frú.
Skátafélagið Heiðabúar: Ilelgi S.
.Tónsson.
Taflfélag Keflavíkur: Gestur
Auðunsson.
Málfundafélagið Faxi: Kristinn
Pétursson.
Vélstjórafélag Keflavíkur: Kjart-
an Ólason.
Iðnaðarmannafélag Keflavíkur:
Guðj ón I Ij örleifsson.
Skipstjórafélagið Vísir: Gunn-
laugur Karlsson.
Úlgerðarmannafél. Keflavikur.
Alexander Magnússon.
Þessi nefnd mun svo gera sitt
bezta til að koma hér á eins veg-
legri þjóðhátíð og frekast er unnt,
og væntir hún stuðnings alls al-
mennings til þess að gera daginn
hátíðlegan, ]>ví hér er um leið
veittur stuðningur fögru framtíð-
armálefni.
Það væri mjög æskilegt, að fast-
ari skipan kæmist á þessa þjóð-
hátíðarnefnd, til þess að fyrir-
byggja að allt of stuttur tími sé
til undirbúnings, ])ví það er mik-
ið verk, að undirbúa slíka hátíð
sem 17. júní verður að vera. Það
vcitti sannarlega ekki af, að þessi
nefnd starfaði allt árið og kysi
úr sinum hópi framkvæmda-
stjórn, og væri þá eðlilegt, að
nefndin fengi líka sem verkefni
byggingu hins væntanlega skrúð-
garðs.
Nú mun stærð og lögun garðs-
ins endanlega ákveðin. Er því
ekkert til fyrirstöðu, að halda
áfram að byggja. 17. júní-stöng-
in er þegár komin á sinn stað.
Á henni verða á þessu ári gerð-
ar nokkrar endurbætur, en að
fullu á hún að vera kómin í lag
fyrir næstu hátíð. Þessi stöng er
einstök í sinni röð, og' önnur slík
hvergi til hér á landi, — svo að
einn frumlegur hlutur er til í
Iveflavík! —
Rej'kjanes óskar öllum Keflvík-
inguin gleðilegrar hátíðar. —
S isiastse' b ú s 4 gwfeii'
K ei\l *** k intjít
viii Snns's'n-
slnðné/nrss /r.
Þeir tveir Keflvíkingar, sem
eignast sumarbústaði, eiga þá
mjög langt í burtu héðan. Á
Reykjanesskaganum eru ekki
margir blettir, sem ákjósanlegir
geta talizt fyrir sumarbústaði og
hafa menn þeir, sem hafa í huga
að eignast sumardvalarstaði, orð-
ið að leila fyrir sér út fyrir sýslu-
takmörkin.
En að betur athuguðu máli, er
óhætt að fullyrða, að Iiér skammt
frá Keflavík er hinn ákjósanlegasti
staður fvrir sumarbústaði og er
])á átt við svæðið í kring um
Snorrastaðatjarnir. Þarna er
grösugt og skjólgott. Stapinn
skýlir fyrir norðanáttinni og
neyzluvatnið er nærtækt. Þá er
og auðvelt að gera akfæran veg
að þessum stað, með tiltölulega
litlum tilkostnaði.
Keflavík er ört vaxandi bær og
grasblettirnir hverfa sem óðast
undir byggingar. Hér er lítið við
að vera fyrir hörn á sumrin nema
að valsa um götumar. Við Snorra-
staðatjarnir er gotl að vera. Þar
er nóg af berjum og Grindavíkur-
hraunið býr yfir ótal rannsóknar-
efnum fyrir unga sem gamla.
Þessar fáu línur eru aðeins á-
bending til þeirra, sem hafa í
hyggju að koma sér upp sumar-
hústöðum. Grasbrekkurnar við
Snorrastaðatjarnir verða, spái ég,
framtíðar sumardvalarstaður Kefl-
vikinga.
Húsmóðir.