Reykjanes - 17.06.1947, Side 5
KEYKJANES
5
i
um jafn nauðsynlegt mál, eins og
breikkun Suðurgötunnar, iiefir
hingað til verið lítt skiljanlegt. En
nú er skýringin fundin. Það virð-
ist í fleiru en þessu vera hinn
polltíski ofsi, sem stjórnar gjörð-
um meirihlutans. Ef meiri hluti
hreppsnefndarinnar er á móti þvi
að breikka Suðurgötuna, þá hefði
þeiin verið nær að fella tillögu
sjálfstæðismanna, lieldur en að
sitja lijá við samþykkt hennar og
hundsa hana svo.
Nokkrar athugasemdir
um vegagerð o. fl.
Mig langar til að biðja Geir-
fuglinn, sem ég sé, að er nú end-
urfæddur og aftur orðinn hinn
þarfasti og athyglisverðasti fugl,
að koma eftirfarandi atriðum á
framfæri við viðkomandi aðila.
- Það væri mikil nauðsyn og bót
að þvi, að framlengja Yatnsnes-
veg upp á Hringbraut hið allra
bráðasta, og hníga að því mörg
rök. Bifreiðastjórum, sem aka
þurfa varningi til og' frá höfn-
inni, út úr eða utan að bænum,
myndi sparast með þessu bæði
mikið benzin og vinna, þvi að
með því losna þeir við að fara
eftir krókaleiðum í gegnum bæ-
inn eða þá inn glla Hringbraut
og inn fyrir liöfnina. Einnig fæi'
atvinnurekandi, sem á mikið und-
ir afköstum bilanna, meira fyrir
te sitt með þessu móti. Þetta
myndi og' spara hreppsfélaginu
mikið viðhald veganna innan
bæjarins sjálfs, og' er ]iað liagur
allra vcgfarenda, að vegirnir séu
sem beztir og þurrastir, því að
annars eiga þeir á bættu slettur
frá bílhjólum, sem fram lijá fara.
Annars má segja bílstjórum hér
í Keflavík og nágrenni það til
lofs, að þeir draga nærri alltaf
úr ferð bíla sinna, þegar þeir aka
hjá vegfarendum á blautum veg-
um. Er slíkt því miður ekki ætíð
hægt að segja, þegar t. d. bílstjór-
ar úr Reykjavik og annarsstaðar
frá aka fram hjá gangandi fólki,
og sannast þar, að „þar sem eng-
inn þekkir mann, þar er gott að
vera“, o. s. frv. — Tvennt er það
enn, sem ég vildi gjarnan fara
nokkrum orðum um. Ég tek und-
ir með bílstjóranum, sem gat þess
í 4. tölubl. Reykjaness, að mikil
nauðsyn væri á breikkun Suður-
götu; ekki einvörðungu vegna
þess, hve örðugt er fyrir bíla að
mætast þar, heldur og vegna
þeirrar liættu, sem vegfarendum,
sérlega börnum, stafar af um-
ferðinni, þar sem gatan er mjóst;
hún þyrfti að breikka á báðar
iiliðar. Ennfremur má geta þess,
að sumir lóðaeigendur við Suður-
götu munu bíða eftir vitneskju
um það, hve mikið gatan á að
breikka, til þess að geta lagað
í samræmi við það girðingar sín-
ar, sem sumar liverjar eru í mestu
ólestri. — Og loks: Væri ekki
atluigandi fyrir iireppsfélagið, að
festa kaup á veghefli, ef fáanleg-
ur væri. Vegirnir eru hér viða
komnir marga þumlunga upp fyr-
ir vfirborð lóða og upp á miðj-
ar girðingar, vegna þess að sífellt
er hrúgað sandi ofan á þá, ef
við þá er gert á annað borð, og
nú virðist víða ekki meiri þörf
á slíku. Hreppsfélagið myndi tví-
mælalaust spara sér mikið fé með
þessum hætti og jafnframt gera
borgurunum til hæfis. —
Með þökk fvrir birtinguna.
/.
Geirfugl minn góður.
Dálkar þínir eru hinir athyglis-
virðustu og geta vafalaust komið
mörgu góðu til leiðar. Það er ým-
islegt ofarlega í huga mér, sem
ég hefi löngun til að Iiiðja þig
að koma á framfæri, en í þetta
sinn læt ég nægja að biðja þig
að birta eftirfarandi í dálkum
þinum:
Aðfaranött 7. júní var haldinn
almennur dansleikur hér i Kefla-
vík í liúsi U.M.F.K. Kl. 11.45 fór
eg' og bað lögregluþjón nr. 2 að
leyfa mér inngöngu á dansleik-
inn, þótt kl. væri meira cn 11.30.
Hann tók þessari beiðni minni
mjög kurteislega og' leyfði mér
inngöngu. Ég keypti því næst að-
göngumiða á 15 kr. og öðlaðist
þar með rétt sitt að fara sem
frjáls um allan danssalinn.
Ég tók fljótt eftir því, að ]iað
var mikið um útlenda menn á
dansleiknum, og voru þeir klædd-
ir sem leikmenn. Auðsjáanlega
voru margir þessara manna und-
ir áhrifum áfengis. Margir þeirra
voru með drykkjulæti, blaðrandi
og með söng og liandleggjaslætti.
Þótt þeir sætu á bekkjum í dans-
salnum, þá tóku þeir úr vösum
sínum bauka, sem innibéldu am-
erískan bjór. Þeir stungu gat á
baukana og drukku úr þeim,
þarna, sitjandi eða standandi í
danssalnum. Oft fór bjórinn úr
baukunum, þegar þeir voru að
opna ]>á, og rann þá freyðandi
Mér finnst endilega ]>urfa að
framlengja Ránargötuna ni'ður að
17. júní-flaggstönginni og lagfæra
um leið svæðið í kring uni liana.
Þessu Iiefði að vísu átt að vera
lokið fyrir 17. júní-hátíðahöldin,
en ])að verður nú að sitja við svo
búið að þessu sinni. En fyrir 17.
júní 1948 verður þessu að vera
lokið. B.
Það virðisl nú vera koininn
nokkuð góður rekspölur á skrúð-
garðsmálið. Fótstallur fánastang-
arinnar hefir verið stækkaður
og fyrir næstu þjóðhátíð verður
hann vonandi kominn í það form,
sem honum er ætlað í framtið-
inni. Þá má einnig gera ráð fyrir
að lögun garðsins verði fullákveð-
in og vinna hafin við girðingu
hans, vonandi verður það verk
svo vel á veg komið að skólabörn
næsta vors geli liafið þar trjá-
plöntun og aðra ræktun. Nú velt-
ur á miklu að geta haldið einingu
um þennan unaðsreit, sem ])arna
er þegar áformaður. Munið að
eining og áliugi byggði liina glæsi-
legu sundlaug okkar.
eftir gólfinu, þar sem fólkið var
að dansa. Þegar hinir útlendu
menn voru búnir að drekka úr
þessum baukum, lientu þeir þeim
á gólfið og' flæktist þetta rusl fyrir
fótum fólksins, sem var að dansa
og skemmta sér.
Ég tók eftir þvi, að liinn við-
feldni og kurteisi lögreg'luþjónn
nr. 2 fór nokkrarferðir inn í dans-
salinn, til að hirða ameríska bjór-
hauka, sem lágu á gólfinu, og var
fólki til óþæginda.
Hinir erlendu menn liafa ekk-
ert leyfi til þess, að koma hér á
almenna dansleiki, með vasana
fullu af ótolluðum(?) amerískum
áfengum bjór, og' drekka hann
í dansalnum og' lienda síðan um-
búðunum á gólfið og láta þær
flækjast þar fyrir friðsömu fólki,
sem vill fá að vera i friði og
skemmta sér. líf þessum ósóma
heldur áfram, þá verður að banna
hinum erlcndu mönnum að sækja
dansleiki hér.
Duushúsinu, Keflavík,
8. júní 1947.
Hjálmar Theódórsson.
litlendingar sýna ó-
kurteisi á dansleik.