Morgunblaðið - 31.03.1968, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 31.03.1968, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUD 5 ÞAÐ virðist fara í viðkvæmar taugar Magnúsar Kjartanssonai Þjóðviljaritstjóra og alþingis- manns, þegar lofsamleg ummæli eru viðhöfð um ræðumennsku Bjarna Benediktssonar forsætis- ráðherra. Kemur þetta glögglega fram í pistli hans „Frá degi til dags“, í Þjóðviljanum sl. þriðju- dag, þar sem hann fjallar um A1 þingisbréf mitt sl. sunnudag. f bréfi því komst ég m.a. svo að orði að forsætisráðherra hefði flutt snjalla ræðu á Alþingi, o.g út frá því dregur svo ritstjór- inn þá ályktun að forsætisráð- herra skorti ekki, fremur en hinn austurlenzka formann (vænt anlega átt við Mao) „launaðar loftungur“. Sjálfsagt er ég miklu ófróðari en Magnús Kjartansson um hvaða hirð Mao hefur um sig, en spurningin er hins vegar hvort bambustjaldsfarinn og rit- höfundurinn gæti þá ekki hugs- anlega flokkast ur.dir umrædd- an hóp Maosveina. Ég geri mér ekki ljóst hvern- ig ritstjóranum tekst í huga sín- um að flokka mig undir „laun- aða loftungu“ þótt ég segi álit mitt á umræddri íæðu ráðherra, sem óneitanlega var snjöll, þar sem hann fletti ofan af sýndar- mennsku flutningsmanna þings- ályktunartillögunnar um lausn verkfallanna. Varla hefur annars komið skýr ar fram en í umræddum pistli Magnúsar, hversu mikil gremja hans og hans manna var yfir því að ekki tókst að koma á- róðursútvarpsumræðum um verk fallsmálin, þrátt fyrir að deilu- aðilar báðir og sáttasemjari teldu að slíkar umræður mundu spilla fyrir samningum. f lok pistils- ins setur Magnús undir sama hatt forsætisráðherra, Hannibal og Björn, kallar þá heilaga þrenn ingu, og er jafngramur út í þá alla, og þá væntanlega fyrir þeirra þátt í að koma á vinnu- friði á ný. Gamalt máltæki segir að flest um þyki lofið gott. Magnús Kjartansson er ekki undantekn- ing þeirrar reglu Gallinn er bara sá, að fáir verða til að lofa hann. Á því er þó ein stór und- antekning. í vetur hefur Magn- ús flutt mörg frumvörp og til- lögur á Alþingi og hefur jafnan verið skýrt nákvæmlega frá þeim málatilbúnaði á síðum Þjóð viljans, sem hann ritstýrir, og oft hefur fylgt með ljósmynd af flutningsmanni. Á hér við ann- að orðtak, sem runnið mun frá ummælum Páls postula í Korintu bréfi: Hrósi ég mér ekki sjálfur — mun dýrð mín engin- Þá skal ekki látið ósvarað um mælum sem komu fram í for- ystugrein Alþýðublaðsins á þriðjudag, þar sem m.a. var vik ið að umræddu Alþingisbréfi mínu á eftirfarandi hátt: „Morg unblaðið gefur í skyn á sunnu- dag, að fyrirkomulag einmenn- ingskjördæmanna sé vilji unga fólksins í landinu. Af hvaða for- sendu er svo furðuleg ályktun dregin“? Þessu leyfi ég mér að svará með því að benda á sam þykktir og ályktanir ungra Sjálf stæðismanna um þetta mál, en eins og kunnugt er, eru þau sam tök fjölmennustu og öflugustu æskulýðssamtök í landinu. Nú fer senn að líða að þíng- lokum og eru merki þess farin að sjást á þingsstörfum. Nefnd- ir skila nú óðum álitum sínum og mörg mál voru í vikunni tek- in til 2. og 3. umræðu og af- greidd milli deilda. Harðar umræður urðu í neðri- deild um frumvarp Péturs Sig- urðssonar og Braga Sigurjóns- sonar um Byggingarsjóð aldraðs fólks, en með því leggja þeir til að sjóðurinn láni til bygginga dvalarheimila. Er hér um hið þarfasta mál að ræða, og ef að lögum verður, mun það mjög létta undir með byggingu slíkra heimila úti á landi. Stefán Val- geirsson og Ingvar Gíslason hafa hins vegar, einir stjórnarandstæð inga, fundið frumvarpi þessu margt til foráttu og talaði sá fyrrnefndi um mál þetta eins og sá sem valdið hefur., eins og jafn an gerir þegar hann kemur í ræðustólinn. Það fór samt ekki mikið fyrir þingmanninum þeg- ar Pétur Sigurðsson, Lúðvík Jós efsson og Halldór E. Sigurðsson höfðu hrakið fullyrðingar hans og breytingartillögur lið fyrir lið. Það kemur greinilega við aum an blett á Framsóknarmönnum þegar minnst er á hafta- og leyfa úthlutunarpólitík þeirra. Fyllast þeir þá vandlætingu og segja það alls ekki sína stefnu að slíkt fyr irkomulag verði aftur á komið. Þegar sparnaðarfrumvarpið var til 2. umræðu í efri-deild í vikunni ræddi Ólafur Björnsson nokkuð um þær hættur og spill- ingu sem slíkt kerfi biði heim. Formaður Framsóknarflokksins, Ólafur Jóhannesson, stóð óðar upp og andmælti kröftuglega, — sagði slíkt óréttmætar ásakanir í garð þeirra manna er í nefnd- um þessum áttu sæti á sínum tíma. Formaðurinn átti hins veg ar ekki eins auðvelt með að svara, þegar Ólafur Björnsson vitnaði til þess að hagur S.Í.S. hefði aldrei verið með meiri blóma en einmitt á tímum hafta og innflutningsleyfa, en á sama tíma drógst verzlunin saman hjá einkaaðilum. Var svar formanns ins á þá lund að fólk hefði held ur viljað verzla hjá Samband- inu, en hann minntist ekkert á þá einföldu staðreynd, að fólk verzlar þar helzt sem vöruúrval ið er mest, en það var einmitt hjá kaupfélögunum á þessum tíma. Það er hægt að marka af ræð um Ólafs Jóhannessonar og Ein- ars Ágústssonar — formanns og varaformanns Framsóknarflokks ins — við þessar umræður, að nú sem fyrr er umrædd hagstjórn- araðferð ofarlega í huga þeirra. Er innflutningsverzlunina bar á góma ræddu þeir um — „að eitthvað þyrfti að sinna þeim málum á annan hátt en gert hefði verið“ og „að þeim málum þyrfti að fara að stjórna". Nokkuð ljóst liggur fyrir hver sú „stjórn" skuli vera að þeirra áliti. Það á að minnsta kosti ekki að nota við hana þau hagstjórnartæki sem menn ráða nú yfir, heldur „brjóstvitið" eins og þeir orða það. í umræðum þessum bar kjaramálin enn á góma og þá helzt verðtryggingu launa. Sagði Ólafur Jóhannesson að hann teldi það engum til sóma að gefin Framh. á bls. 30 //WBiwin >* ■ i FEGURÐARSAMKEPPNI VETTVANGUR ÆSKUNNAR verður haldin í Austurbæjarbíói miðvikudagskv. 3. apríl og föstudagskv. 5. apríl kí. 11,15 e.h AÐGONGUMIÐASALA A BAÐAR SKEMMT ANIRNAR HEFST Á MORGUN í VESTUR VERI, KARNABÆ OG AUSTURBÆJARBÍÓI. SKEMMTISKRA: ★ FEGURÐARSAMKEPPNI. ★ MARÍA BALDURSDÓTTIR, SYNGUR MEÐ HLJÓMUM. ★ SIGRÚN HARÐARDÓTTIR, SYNGUR MEÐ HLJÓMUM. ★ FLINTSTONES KOMA FRAM. ★ TÍZKUSÝNING — STÚLKURNAR FRÁ í FYRRA. Á HÁRGREIÐSLU „SHOW1 SÝNING. ★ NEMAR í RÉTTAKHOLTSSKÓLA SKEMMTA MEÐ ÞJÓÐLAGASÖNG. ★ HÆFILEIKAKEPPNIN. ★ UNGUR „SNILLINGUR * KEMUR FRAM. OTRULEG : Keppni — Hljómsveit ungu kynsl. '68 HVER AF ÞEIM SICRAR? HLJÓMAR - FLOWERS 'Á ".. HINN FRABÆRI Svavar Cests KYNNIR. ATH ALDURSTAK- MARK 14 ÁRA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.