Morgunblaðið - 31.03.1968, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 31.03.1968, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MARZ 1968 7 „Við skulum halda á Siglunes44 Hér á dögunum vörpuðum við fram alþekktri vísu: og spurðum um höfund hennar. Vísan var þessi: „Austan kaldinn á oss hlés, upp skal faldinn draga. Veitir aldan vargi hlés, Við skulum halda á Siglunes. Og það stóð ekki á svörunum En ekki auðnaðist okkur að að koma þeim til skila, áður en kona nokkur Una Sigtryggs- dóttir frá Framnesi í Skaga- firði, skrifaði Velvakanda bréf og sagðist vita gerla, hver höf- undur vísunnar væri, en það væri faðir hennar, Sigtryggur Jónatansson, síðast bóndi á Framnesi. Rökstuddi hún það með vitnisburði vinnumanns frá Brimnesi, Jóns að nafni, einnig frásögn sonar Jóns, Ellerts. Þá hringdi til okkar kona, og sagði mann, Kristján Jón- atansson, hafa sagt sér fyrir 4- 5 árum, en þá var þessi Krist- ján við sjómennsku í Keflavík, að vísan væri eftir áfa hans, en ekki mundi konan nafn hans. Víkjum því næst að bréfum þeim, sem Dagbókinni bárust af þessu tilefni, og kemur þar nokkuð annáð í ljós, og eru þeir tveir, sem skrifuðu, ekki sammála, svo að ennþá er eng- in samstaða um faðerni vís- unnar. Fyrra bréfið er frá Hannesi Jónssyni, Ásvallagötu 65, en haukur í horni með alls kyns Hannes hefur oft reyns okkur fróðleik. Bréfið er á þessa leið. „Austan Kaldinn að oss blés, upp vér faldinn drógum trés, velti aldan vargi hlés var þá hald á Siglunes.“ „Svona lærði ég vísuna fyrir sjötíu árum, þá sex ára barn á Hnausum í Þingi. Ég sendi leiðréttingu til Velvakanda fyr ir 2-3 árum, að mig minnti, að vísan væri úr Hrakningsrímu Erlendar á ^ Holtastöðum, er hrakti frá Ásbúðum á Skaga norður á Skjálfanda 1796. Þórð ur Þorsteinsson vitnaði með mér, um, að vísan væri rétt, eins og ég hafði hana. Eins það, að vísan væri úr Hrakningsrím- unni, sem hann hífði séð á Landsskjalasafninu eða Lands- bókasafninu. Hver höfundur Hrakningsrím unnar var, veit ég ekki, en væntanlega ber handritið það með sér. — Hannes Jónsson." Eitt svar barst enn, frá Stef- Myndin hér að ofan er frá Vestfjörðum, Því miður, gát- um við hvergi fundið mynd af Siglunesi, sem átti að fylgja áni Rafni, skáldi, fræðimanni og bókasafnara, og er það svo hljóðandi: „í Morgunblaðinu 22. marz 1968 er birt vísan. „Austan kald inn á oss blés“ og óskað eftir upplýsingum um höfundnefndr ar vísu. í bókinni „Hafræna", sem kom út 1923 í útgáfu dr. Guðmundar Finnbogasonar, er höfundur tal- inn Ingimundur í Sveinungsvík Hinsvegar er vísan ekki rétt í blaðinu eins og hún er birt í „Hafrænu", þar er fyrsta brag- lína vísunnar þannig: Austan kaldinn að oss blés. Ég hef frá barnæsku kunnað tvær gerðir af þessari vísu og til að gera ekki upp á milli þeirra birti ég þær hér lesend- um til fróðleiks og áriægju: Austan kaldinn að oss blés, upp skal íaldinn draga: veltir aldan vargi Hlés, — við skulum halda á Siglunes. og ennfremur: Austan kaldinn að oss blés, upp skal faldinn draga: veltir aldan vargi Hlés, — við skulum halda á Skaga. Höfundur vísunnar virðist um margt sveipaður rökkurmóðu aldanna. í útgáfu Bókmennta- félagsins af „íslenzkar Ævi- skrár" V. bindi er Ingimund- ar getið í viðbæti eftir séra Jón Guðnason þjóðskjalavörð. Þar segir svo: línum þessum, og því eru það tilmæli okkar til lesenda, að þeir láti okkur slíka mynd í té, ef þess er nokkur kostur. „Ingimundur Jónsson (17. öld d. stuttu fyrir 1703). Skáldbild- höggvari. Ætt óviss. í ættatöl- um talinn sonur Jóns (d. um 1660) galdramanns á Hellu á Ársskógsströnd Guðmundssonar Bjó í Sveinungsvík í Þistilfirði og ætíð við þann bæ kenndur. Orti Nitidarímur „hinar frægu" (sbr. kvæði síra Stefáns Ólafs- sonar í Vallarnesi). Átti í sam kveðlingum við sira Stefán Ól- afsson: þótti vel skáídmæltur. Kona ókunn. Börn hans: Guð- rún átti Guðmund hreppstjóra í Sveinungsvík, Þorsteinn á Eiði á Langanesi, Þorbergur á Orm- arslóni." Til gamans fletti ég upp I manntalinu 1703. Þá er í Svein- ungsvík tvíbýli. Ingimundar er þar ekki getið, en dóttir hans Guðrún 38 ára er talin fyrir búi (þá ógift). Ingimundur mun þá hafa verið nýlátinn, en um fæðingarár hans veit enginn með vissu fremur en Sæmund- ar fróða. Ég læt svo útrætt um það. Njóti þeir er nemi. Góð- ar stundir! Maríum. á föstu, 25. marz 1968. STEFÁN RAFN. Semsagt góðir hálsar, enn er sem sagt engin samstaða um faðerni vísunnar, og þvi er enn opin leið að koma fram með uppástungur um það, ef ein- hverjar eru, og má senda þær Dagbókinni. — Fr. S. FRETTI8 Hallgrímskirkja. Leiðrétting á messutilkynningu. Rétt er hún svona. Barnaguðsþjón- usta kl. 10 og messa kl. 11 Dr Jakob Jónsson. Kirkjukvöld kl. 8.30 Færeyska sjómannaheimilið Samkoma í dag kl. 5 Allir vel- komnir. Sjálfsbjörg Reykjavík. Munið spilakvöldið 1. apríl í Tjarnarbúð kl. 8.30 KvenfélagiS Hrönn heldur fund miðvikudaginn 3. apríl kl. 8.30 að Bárugötu 11. Hár- toppasýning. Nemendasamband Húsmæðraskóla íslands. Aðalfundur verður haldinn í veit ingahúsinu Hábæ, Skólavörðustíg 45,' þriðjudaginn 2. apríl kl. 8.30 stundvíslenga Erindi: Vignir Andr ésson, íþróttakennari Veitingar - kínverskir smáréttir. Kvenfélag Hallgrímskirkju Áð- ur auglýstum aðalfundi frestað um óákveðinn tíma. Kristileg samkoma verður í sam ! komusalnum Mjóuhlíð 16 sunnu- dagskvöldið 31. marz kl. 8. Verið hjartanlega velkomin. Kvenfélag Laugarnessóknar Af- mælisfundur félagsins verður hald- inn mánudaginn 1. apríl í kirkju- kjallaranum kl. 8.30. Stundvíslega. Margt til skemmtunar. Góðar veit- ingar. Æskilegt að sem flestar kon ur klæðist íslenzkum búningi. Myndataka. Kvenfélagskonur, Garðahreppi Munið félagsfundinn þriðjudaginn 2. apríl, kl. 8.30. Sýning á hár- greiðslu. Spilað Bingó. Kvenfélagið Hringurinn, Hafnar- firði. Fundur verður haldinn í Al- þýðuhúsinu þriðjudaginn 2. apríl kl. 8.30. Aðalfundur. Slysavarnafélagskonur, Sunnukonur, Hafnarfirði: Munið Rabb— og handavinnukvöldið þriðjudaginn 2. apríl kl. 8.30 I Góðtemplarahúsinu. Stjórnin býður upp á kaffi. ' Kvenfélagið Aldan Apríl fundurinn fellur niður. Verður 8. maí. Hjálpræðisherinn. Sunnudag kl. 11 Helgunarsam koma K1 20.30 Hjálpræðissam- koma. Kapt. Djurhuus og frú og her mennirnir taka þátt í samkomum dagsins. Mánudag kl. 4. Heimila- sambandið. Velkomir,. Æskulýðsstarf Neskírkju Fundur Stúlkna og pilta, 13-17 ára, verður í félagsheimilinu mána daginn 1. apríl. Opið hús frá kl. 7,30 Frank M. Halldórsson. Heimatrúboðið Almenn samkoma sunnudaginn 31. marz kl. 8.30 Allir velkomnir Kvenfélag Háteigssóknar heldur fund í Sjómannaskólan- um fimmtudaginn 4 apríl kl. 8.30 Fríkirkjan í Hafnarfirði Aðalsafnaðarfundur verður að af- lokinni guðsþjónustu kl. 2 sunnu- dag. Safnaðarstjórn. Dansk Kvindeklub afholder sit næste möde í Slýsa- varnarfélag fslands' hus Granda- gardur tirsdag d. 2. april kl. 20.30 Vi mödes ved Kalkofnsvegur(Stræt isvagnabiðskýlið) kl. 20.15 præeis og körer derfrá til Grandagarður. Bestyrelsen. Kirkjukvöld í Hallgrímskirkju. verður sunnudaginn 31. marz kl 8.30 Sænski sendikennarinn fil. lie. Sven Orrsjö, flytur erindi: „Guðs- trú og lífsangist í skáldskap Per Lagerkuist". Kristinn Hallsson ó- perusöngvari syngur. Lilja Þóris- dóttir les upp. Kirkjukórinn og organistinn aðstoða við safnaðar- söng. Allir velkomnir. innar Kvennadeild Flugbjörgunarsveit- arinnar. fundur verður 1 félagsheimilinu miðvikudaginn 3. apríl kl. 9 stund- vislega Kvikmynd, kaffidrykkja og fl. Kristniboðsfélag karla. Aðalfundur mánudagskvöld kl 8.30 í Betaniu. Bænastaðurinn Fálkagötu 10. Kristilegar samkomur, sunnudag inn 31. marz. Sunnudagaskóli kl 11 Almenn samkoma kl. 4. Bæna- stund alla virka daga kl. 7 e.h. Allir velkomnir. Kvenfélagið Keðjan. Fundur mánudaginn 1. apríl að Bárugötu 11 kl. 8.30 Sýndar verða myndir frá 40 ára afmælishófinu. Dregið verður í happdrættinu og kennd verður meðferð pott- og af- skorinna blóma. Kvenfélag Keflavikur heldur fund þriðjudaginn 2. apríl kl. 8.30 í Tjarnarlundi. Sýning á smurðu brauði og leiðbeiningar um það. Eftir fnnd snilað Bingó. Fíladelfía Reykjavík John Andersson frúboði frá Glasgow talar á samkomum í Fíla delfíu laugardaginn 30. marz og sunnudag 31. s.m. kl. 8 bæði kvöld- in. Andersen er eldheitur predikari og styður mál sitt og ræðuflutn- ing með skýrum dæmum úr reynslu sinni í predikunarstarfinu Hann biður fyrir sjúkum í hverri sam- komu. Sennilega eru þessar sam- komur síðustu ssmkomur sem hann talar á hér í Reykjavík. sá NÆST bezfi í Eniglandi eru 'bílar þeirra, seim nýbúnir eru að taka próf, rmerkt- ir með L. Var !hér fyrir nokkru utmferðia'rmálasérfræðiinguir frá Englandi, sem átti að athuga hvernig umferðin gengi fyrir sig. Er sérfræði'ngurinn var spurður álits á umiferðinni, svaraði hann: „Mér finnst þeir mega æfa si’g betur, sem eru með bilana merkta mieð litla ellinu við númera spjöldin". Trésmíði Smíðum svefnherbergis- skápa og eldhúsinnrétting- ar ásamt fleiru. Gerum föst tilboð. Uppl. í síma 84310. Píanó Hornung & Mþller píanó til sölu. Uppl. í síma 14830. Útsaumur Kenni útsaum. Uppl. í síma 10002 kl. 6—8 síðd. Dómhildur Sigurðardóttir. Neskaupstaður Hárgreiðsludama óskar að taka á leigu um 3ja herb. íbúð. Tilb. sendist Mbl. í Rvík merkt: „8854“. Bólstrun Klæði og geri við bólstruð húsgögn. . Úrval áklæða. Geri tilboð ef óskað er. Bólstninin, Álfaskeiði 96, Sími 51647. Til sölu Volkswagen 1300, árg. 67, útvarp, snjódekk og áklæði Til sýnis að Ármúla 4 kl. 1—3 í dag. Skrifstofuhúsn. til leigu Kirkjuhvoli. Sérinng., 2 herb. og gangur. Tilbúið nú þegar. Uppl. í síma- 22080. Olíukynditæki til sölu ásamt katli, sem er 3 rúmm., hitadunkur og ný dæla. Uppl . í sima 84310. Geymsluhúsnæði Sumarvinna Til leigu 43 ferm. geymslu húsnæði. Uppl. í síma 36481. 14—16 ára strákuj óskast í sveit í s'umar. Uppl. í síma 82872. BLAÐBURÐARÍFOIK OSKAST í eftirtalin hverfi AÐALSTRÆTI, BARÐAVOGUR Talið við afgreiðs/una í síma 10100 Ungur læknimenntnður og áhugasamur maður, þaulvanur innflutnings- viðskiptum og sölustörfum á vélbúnaði og tækni- vöru með Staðgóða reynslu í ráðleggjandi störf- um, samningsaðgerðum og eftirliti, óskar eftir atvinnu hjá traustu fyrirtæki eða stofnun. Tilboð sendist Mbl. fyrir 26. apríl merkt: „Fjöl- hæfur — 5488“. ARABIA-hreinlætistæki Sfórkostleg nýjung Hljóðlaust W.C. Hið einasta í heim Verð á W.C. Handlaugar Fætur f. do. aðeins kr. 3.375.00 — 930,00 — 735,00 Glœsileg vara. Verð hvergi lœgra Einkaumboð fyrir ísland: HANNES ÞORSTEINSSON heildverzlun, Hallveigarstíg 10. — Sími 2-44-55.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.