Vesturbæjarblaðið - maj 2023, Side 6
6 Vesturbæjarblaðið MAÍ 2023
Anna Jóna
Nýr veitingastaður hefur verið opnaður í miðborginni. Nánar
tiltekið við Tryggvagötu 11. Hann heitir Anna Jóna og eigandi
hans er Haraldur Þorleifsson, sem áður starfaði hjá Twitter og nú
vinnur nú meðal annars að því að rampa upp borgina og víðar
svo fatlaðir komist betur leiðar sinnar. Haraldur er sjálfur fatlaður
og notar hjólastól.
Nafnið Anna Jóna er sótt til mömmu Haraldar sem lést í bílslysi
þegar hann var ellefu ára. Haraldur ólst upp á þessum slóðum
nánar tiltekið við Norðrurstíg sem er nokkurn veginn beint á móti
þar sem Anna Jóna er í dag. Haraldur sá þetta húsnæði auglýst til
sölu um svipað leyti og hann flutti með fjölskyldu sína heim frá
Bandaríkjunum. Við það vaknaði draumurinn um að opna eigin
veitingastað og minnast með því móður sinnar.
Nýi veitingastaðurinn Anna Jóna er afar hlýlegur. Innandyra ríkir
andblær liðinna tíma. Stíllinn er fágaður og fölbleikt litavalið er
sótt aftur til miðju síðustu aldar eða til tíma Önnu Jónu sem var
búningahönnuður og myndlistarmaður. Nostrað hefur verið við hvert
handtak og hugsað fyrir öllu. Hin smæstu atriði hafa vart farið fram
hjá hönnuðum og öðrum sem að þessu verki komu. Útkoman er
sérlega glæsileg.
Nostrað hefur verið við hvert atriði og andblær liðinnar aldar
einkennir Önnu Jónu.
Þannig er áætlað að Stofnun Ólafs Ragnars komi til með að líta út.
Teikning/ Hringborð Norðurslóða/ Rizma Feros.
Um 20 til 30 þúsund fermetra
bygging í Vatnsmýrinni
Ráðast þarf í töluverðar endurbætur vegna
myglu í Vesturbæjarskóla. Niðurstöður
Verk fræði stofunnar Eflu þess efnis voru
kynntar foreldrum barna í Vesturbæjarskóla
fyrir nokkru. Raki mældist á nokkrum
stöðum í byggingunni. Mestur var hann í
heimilisfræðistofu og rýmum nærri henni.
Einnig í og við búningsaðstöðu við íþróttasal
og nokkrum öðrum af mörkuðum stöðum.
Meðal þess sem lagt er til eru þrif og
sótthreinsun, fjarlægja skemmt byggingarefni,
stöðva leka og huga að loftskiptum. Stærsta
einstaka verkefnið sem fyrir liggur er að skipta
um þak á hluta skólans. Áætlað er að ráðast í
þá framkvæmd næsta sumar og vinnu ætti að
vera lokið í desember 2024. Fram kemur í bréfi
sem foreldrar barna í Vesturbæjarskóla fengu
sent að áhersla verði lögð á að halda skólastarfi
innan skólans og raska því sem minnst á
meðan unnið er að endurbótum. Vesturbæjarskóli.
Fara þarf í endur-
bætur vegna myglu
Nýr glæsilegur
veitinga staður
við Tryggvagötu
Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Katrínar
Jakobs dóttur forsætisráðherra um stuðning við að
setja á fót sjálfseignarstofnun Ólafs Ragnars Gríms-
sonar um málefni norðurslóða í Reykjavík. Hring-
borði Norðurslóða – Arctic Circle verða lagðar til
10 milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfu-
narfé ríkisstjórnar til að standa straum af frekari
undirbúningi verkefnisins.
Stofnuninni er ætlað að verða vettvangur fyrir
alþjóðlega samvinnu um málefni norðurslóða, aðgerðir
gegn loftslagsbreytingum, sjálfbærni og aðra tengda
þætti. Áætlað er að nýbyggingin vegna hennar í Vatns
mýrinni verði 20 til 30 þúsund fermetrar. Um er að ræða
framtíðarheimili Hringborðs norðurslóða og markmiðið
er að tryggja Íslandi til langframa þá sterku stöðu sem
það hefur áunnið sér sem þungamiðja í alþjóðlegri
umræðu um norðurslóðir. Ekki er þó gert ráð fyrir
skörun við hefðbundna ríkjasamvinnu eða lögbundið
hlutverk Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar og starfsemi
Norðurslóðanets Íslands. Gert er ráð fyrir því að fjáröflun
fyrir bygginguna verði á höndum Hringborðs norðurs
lóða og stjórnar hinnar nýju stofnunar sem og bygging
og rekstur húsnæðisins.
Byggingin mun heita á ensku The Ólafur Ragnar
Grímsson Centre, eða The Grímsson Centre. Miðað er
við að fermetrinn kosti um 700 þúsund og alls muni því
kosta 14 til 21 milljarð króna að reisa húsið í Vatnsmýri.
Unnin verður þarfagreining fyrir nýbyggingu stofnunar
innar ásamt kynningarefni fyrir alþjóðlega hönnunar
samkeppni og fjárhagslega bakhjarla. Samþykkt hefur
verið í skipulagsráði Reykjavíkurborgar að auglýsa deili
skipulag fyrir byggingu hinnar nýju stofnunar.
Stofnun Ólafs Ragnars
Vesturbæjarskóli
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Við eigum frábært úrval
af flottum yfirhöfnum
í stærðum 38-60