Vesturbæjarblaðið - okt. 2023, Blaðsíða 6
6 Vesturbæjarblaðið OKTÓBER 2023
Fjölmenningar
hátíð var haldin á
Borgar bókasafninu
Grófinni sunnudaginn
1. október sl. Flutt
var lifandi tónlist,
fjölskyld ur föndruðu
saman, lesnar voru
sögur á mörgum
tungu málum og
dansað eins og enginn
sé morgun dagurinn í
fjörugu krakkadiskói.
Tilefni hátíðarinnar
var opnun Sögu
hornsins, nýs verk
efnis á sjö söfnum
Borgarbókasafnsins.
Lesið var á arabísku,
ensku, íslensku,
persnesku, pólsku,
spænsku, úkraínsku,
rússnesku og fólk var
hvatt til að mæta óháð
móðurmáli. Áhugasöm
geta bókað Söguhornið
á safni að eigin vali fyrir
sína sögustund, sem getur verið á hvaða tungumáli sem er. Lesarar
velja sögurnar og bjóða fjölskyldu, vinum og öðrum áhugasömum að
koma á notalega stund á bókasafninu.
Börn á fjölmenningarhátíð.
Borgarbókasafn
opnar söguhorn
STÍLBÓKSTÍLBÓK
Sjálfstætt
starfandi apótek
sem býður
persónulega
þjónustu og
hagstæð verð á
lyfjum og öðrum
heilsutengdum
vörum.
L a u g a v e g i 5 3 b S: 414 4646
Elli- og örorkulífeyrisþegar njóta sérkjara hjá Íslands Apóteki
Opnunartímar:
Mán-Fös:
10:00-18:00
Laugardaga
10:00-16:00
Sunnudaga:
Lokað
Hleðslutæki
Ekki láta rafgeyminn
skemmast í vetur
Mikið úrval hleðslutækja
og vaktara fyrir allar
gerðir rafgeyma
Skorri ehf • Bíldshöfði 12 • 577-1515 • NÝTT vefverslun: www.skorri.is
Hleður og vaktar rafgeyminn þinn
B orgars ö gusafn Reykjavíkur
hefur lagt til að friða húsnæði sem
hýsa eða hafa hýst bensínstöðvar á
fjórum stöðum í Reykjavík. Er það
gert út frá menningarsögulegu eða
byggingarlistarlegu gildi húsanna.
Stöðvarnar eru á reitum þar sem
áætlanir hafa verið um uppbyggingu
húsnæðis.
Bensín stöðvarnar sem um ræðir
standa á Ægissíðu 102, Lauga vegi 180,
við Skógarhlíð 16 og á Háaleitisbraut
12. Eru þessar stöðvar allar settar
í rauðan flokk í skýrslunni. Þessar
stað setningar eru á reitum þar sem
búið var að semja við Olíufélögin
um uppbyggingu atvinnu og íbúðar
húsnæðis líkt og fram kemur í
tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar
frá því í febrúar í fyrra. Málið fer nú til
Minjastofnunar, skipulagsfulltrúa og
skipulagssviðs Reykjavíkurborgar.
Bensínstöðin við Ægisíðu 102 er á meðal þeirra sem Borgarsögusafn
vill friða.
Lagt til að friða fjórar
bensínstöðvar í Reykjavík
Brent Toderian fyrrum skipulagsstjóri Vancouver
og Maria Vassilakou fyrrum varaborgarstjóri í
Vínarborg tóku þátt í málþingi sem nýlega var efnt
til vegum Betri samgangna. Málþingið fjallaði um
samgöngur, sjálfbært skipulag og reynslu annarra
borgarsvæða. Þetta er í annað sinn sem þau koma
hingað til lands og kynna sér Reykjavík og skipulag
borgarinnar. Þau eru bæði sérfræðingar og þekkt
fyrir störf sín að skipulagningu borga.
María sagði að Reykvíkingar séu háðir einkabílnum
því borgin sé hönnuð fyrir hann sem megin
samgöngutæki. Hún segir að þegar borgir eru
skipulagðar út frá bílum komi það niður á opinberu
rými. Litlu rými er úthlutað þar sem fólk getur hist og
notið útiveru. Breytingar sem þurfi að gera í Reykjavík
snúast um að skapa almannarými. Þau telja bæði að
gera þurfi borgina aðgengilegri fyrir þá sem kjósa að
ganga, hjóla og nota almenningssamgöngur. Þá þurfi
að gera almenningssamgöngur meira aðlaðandi. Brent
taldi borgarlínuna góða hugmynd og í henni felist
tækifæri. Stjórnendur margra borga séu að átta sig á
því hve öflugir strætisvagnar eru og hvernig þeir stuðla
að breytingum. Hann sagði að strætisvagnar njóti ekki
nægrar virðingar og teljast vart nógu spennandi. En þeir
séu öflugir til fólksflutninga, einkum ef kerfið er skilvirkt
og þeir fá nægilegt rými svo þá megi starfrækja með sem
bestum hætti. Þau segja að þótt bílarnir séu veikleiki
Reykjavíkur eins og reyndin er í mörgum borgum sé
verkefnið ekki sett til höfuðs bílum. Hins vegar sé öllum
fyrir bestu, bílstjórum sem öðrum að göngur, hjólreiðar
og almenningssamgöngur séu aðlagandi valkostur. Með
því komist fleiri leiða sinnar.
Brent Toderian og Maria Vassilakou.
Borgarbúar of
háðir einkabílnum
- með fjölmenningarhátíð í Grófinni
- segja Brent Toderian, fyrrverandi skipulagsstjóri Vancouver, og Maria
Vassilakou, fyrrverandi varaborgarstjóri í Vínarborg, sem eru bæði þek-
ktar stærðir í meðal fræðimanna í borgarskipulagi.