Vesturbæjarblaðið - okt 2023, Side 8
Húsið Tjarnarbíó við Tjarnar
götu er rúmlega aldar gamalt.
Reist árið 1913. Var í upphafi
íshús og notað til þess að geyma
ís af Tjörninni sem nýttur var
vegna geymslu á fiski. Frá því á
árum síðari heims styrjaldarinnar
hefur það öðru fremur verið
kvik mynda hús og í seinni tíð
leikhús. Árið 1942 hóf Háskóli
Íslands bíórekstur í húsinu og voru
þá gerðar á því umfangsmiklar
breytingar. Nefndist bíóið Tjarnar
bíó og tók tæplega fjögur hundruð
manns í sæti. Frá árinu 1995 hefur
Bandalag sjálfstæðu leikhúsanna
rekið húsið. Fyrir nokkrum árum
voru gerðar miklar breytingar
á leik sviði, áhorfendasal og
starfs aðstöðu allri ásamt því að
viðbygging með kaffihúsi var reist
við norðurhliðina. Í þeirri mynd
var Tjarnarbíó opnað árið 2010
og rættist þá gamall draumur
margra um sérstakt leikhús fyrir
sjálfstæða leikhópa í Reykjavík.
En getur Tjarnarbíó þjónað þeirri
starfsemi með góðu móti sem
það þarf og þyrfti að hýsa ef horft
er til framtíðar?
Skúli Helgason formaður
menningar-, íþrótta- og tómstunda-
ráðs Reykjavíkurborgar segir að
Tjarnar bíó hafi um árabil verið
heimili sjálfstæðra sviðslista í
borginni og haldi úti fjölbreyttri
starfsemi í háum gæðaflokki
allan ársins hring. Hann segir
aðstöðuna í Tjarnarnbíó vettvang
fyrir nýsköpun á sviði leiklistar,
danslistar, uppistands og tónlistar.
Hann segir mikinn metnað vera í
starfinu í Tjarnarbíó en aðstöðuleysi
í þessu gamla húsi setji starfseminni
vissulega þröngar skorður. Ljóst
sé að finna þurfi nýjar leiðir til að
bæta úr aðstöðumálum og treysta
reksturinn til að skjóta styrkari
stoðum undir starfsemina. Skúli
segir að aðstaða til sviðslista hafi
verið þung á höfuðborgarsvæðinu
undanfarin ár og sífellt í færri hús
að venda fyrir ungt sviðslistafólk.
Dæmi um það sé að Loftkastalinn,
Gaflaraleikhúsið og Iðnó sem leikhús
hafa horfið af sjónarsviðinu. Við svo
búið megi ekki standa.
Um 60% af frumsýningum
í Tjarnarbíói
Skúli segir að eitt það fyrsta sem
komið hafi á sitt borð þegar hann
tók við formennsku í menningar-,
íþrótta- og tómstundaráði hafi verið
að hitta forsvarsmenn Tjarnarbíós
og ræða um aðstæður þeirra. Í
Tjarnarbíói sé lítið svið og 180
manna salur sem setji starfinu
þröngar skorður. Sárlega vanti
æfingaaðstöðu, geymslurými og
viðbótarsvið sem myndi gjörbreyta
starfsskilyrðum til hins betra. ”En
þrátt fyrir takmarkaða aðstöðu
er einstök starfsemi í Tjarnarbíó
sem hýsir fjölbreytta flóru
sjálfstæðra sviðslista. Tjarnarbó
er einskonar regnhlíf fyrir mjög
marga aðila sem stendur fyrir að
um 60% af öllum frumsýningum á
höfuðborgarsvæðinu. Um helmingur
Grímuverðlaunanna síðastliðið
vor féll til leikhópa sem eiga sér
heimkynni í Tjarnarbíó. Þarna er
því um mjög lifandi og spennandi
vettvang að ræða fyrir frumleika,
spennandi frumsköpun og fjölbreytt
grasrótarstarf. Starf sem nærir
íslenska menningu hvort sem er á
sviði leiklistar, danslistar, uppistands
eða tónlistar. Þá skipti einnig miklu
máli fyrir stóru leikhúsin að hafa
þessa grasrót.“
Aðsóknarmet í fyrra
Leikárið 2022 til 2023 var
söluhæsti vetur leikhússins frá
upphafi. Aldrei hafa fleiri áhorfendur
lagt leið sína þangað eða ríflega
22 þúsund manns. Fjórir til sjö
viðburðir voru í bíóinu í hverri viku.
Að sýningum sviðlistahópanna
komu ríflega 300 manns,
fagmenntað sviðslistafólk sem til
skemmri eða lengri tíma hefur
iðkaði list sína í húsinu. Auk þess að
veita sjálfstæðum sviðlistahópum
aðstöðu hefur Tjarnarbíó hýst
viðburði hátíða á borð við
Listahátíð í Reykjavík, Reykjavík
Dance Festival og Óperudaga. „Í
mínum huga er Tjarnarbíó staður
þar sem framtíðarkynslóðir í
íslenskum sviðslistum stíga sín
fyrstu skref á opinberu sviði og því
bráðnauðsynlegur staður í íslensku
menningarflórunni,“ segir Skúli.
Skoða þarf aðstöðu málin
almennt
Skúli segir að stjórnendur
Tjarnarbíós hafi stungið upp á
að byggja yfir portið. Þar mætti
koma upp viðbótarsviði með
áhorfendaaðstöðu fyrir um 100 gesti.
”Nú sárvantar æfingasvið og aðstöðu
fyrir alþjóðleg samstarfsverkefni
í Tjarnarbíó. Tjarnarbíó er eina
leikhúsið á höfuðborgarsvæðinu
þar sem sjálfstæðir sviðslistahópar
geta sýnt verk sín, fyrir utan
þá handfylli hópa sem fá inn í
stofnanaleikhúsunum. Og skoða
þarf fleira í aðstöðumálum en bara
Tjarnarbíó. Má þar nefna Iðnó,
Hafnarhúsið og nýtt húsnæði
Listaháskólans í Tryggvagötu. Hann
segir að bæta þurfi tónleikaaðstöðu
í borginni og gaman væri að sjá fleiri
staði opna sem bjóði slíka aðstöðu.
”Nauðsynlegt er að efla grasrótina
enn frekar með því að hækka
almenna styrki sem sé frábær nýting
á fjármunum til menningarmála.”
Rekstrarfé, þarfagreining
og ríni á rekstri
Skúli segir að eftir að hafa
átt viðræður við stjórnendur
Tjarnarbíós hafi verið ákveðið að
leita eftir samstarfi við ríkið. Lilja
Dögg Alfreðsdóttur menningar–
og viðskiptaráðherra hafi tekið
vel í hugmyndina um samstarf
Reykjavíkurborgar og ráðuneytisins
um eflingu starfseminnar. Náðst
hefur samkomulag um að ríki og
borg leggi fram viðbótarfjármagn til
að styrkja reksturinn á yfirstandandi
leikári samkvæmt nýjum samningi.
„Í fyrsta lagi leggur ríki og borg
fram viðbótarfjármagn til að styrkja
reksturinn á yfirstandandi leikári
um 14,5 milljónir króna til viðbótar
núverandi samningi borgarinnar
sem kveður á um 22 milljónir
króna á ári og húsnæðisframlag
sem metið er á 40 milljónir. Þá
verður farið í þarfagreiningu á
aðstöðumálum sviðslistanna og
loks ráðist í rýni á rekstri Tjarnarbíós
með aðkomu sérfræðinga ríkis og
borgar í þeim tilgangi að koma auga
á leiðir til að tryggja sjálfbæran
rekstur til framtíðar.”
Kortleggja þarf aðstöðu
Skúli segir þarfagreiningin
fela í sér kortlagningu og úttekt á
aðstöðu atvinnufólks í sviðslistum
á höfuðborgarsvæðinu annars
vegar og greiningu á þörfum
sjálfstæðra sviðslistahópa sem
starfa á höfuðborgarsvæðinu hins
vegar. „Nauðsynlegt er að líta þess
að sviðslistir fela í sér ólík listform
með sérhæfðar þarfir. Einnig þarf
að rýna æfinga- og sýningarrými
baksviðs. Þar er er um að ræða
aðstöðu fyrir búninga, förðun,
leikmynda- og munageymsla,
áhorfendarými, áhorfendasali,
framhús og önnur nauðsynleg
aðstaða. Einnig tækjabúnaður og
framleiðsluaðstaða. Þá má nefna
skrifstofuaðstöðu fyrir starfsfólk
viðburðahúsa, fyrir félagasamtök
sem sinna sjálfstæðum sviðslistum,
framleiðendur og sviðslistahópa
og rými til námskeiðahalds
fyrir börn og fullorðna.“
Samanstendur af
mörgum hópum
Sjálfstæða sviðslistasenan
samanstendur af leikhópum,
danshópum, óperuhópum,
sirkuslistahópum, uppistöndurum,
dansleikhópum, improv-hópum,
kabaretthópum, drag-hópum,
sviðlistahátíðum og fleiru.
„Sjálfstæðir sviðslistahópar standa
fyrir um 60 prósentum frumsýninga
hvers leikárs og gera það við mjög
þröngan kost, því þeir fá innan við
10% af opinberu fjármagni sem veitt
er í sviðslistir. Sjálfstæðar sviðslistir
eru blómleg og ört vaxandi sena, sem
telur allt frá frá hefðbundnari leik- og
dansverkum til óperu, uppistands,
kabaretts, tónleikahúss, sirkus
o.fl. Nær allar sýningar sjálfstæðra
sviðlistahópa eru frumsköpun og
standa sjálfstæðir sviðlistahópar
fyrir meirihluta nýskrifa í íslenskum
sviðslistum. Þetta er geiri í örum
vexti með aukinni sérhæfingu,
fagmennsku og fjölbreytni. Kvikur
og blómlegur geiri sem ber hróður
Íslands víða með starfi sínu þvert á
landamæri. Við viljum taka höndum
saman um að tryggja framtíð
Tjarnarbíós einnig til að skapa enn
betri skilyrði fyrir grósku í íslenskum
sviðslistum, segir Skúli Helgason
formaður menningar-, íþrótta og
tómstundaráðs að lokum.
8 Vesturbæjarblaðið OKTÓBER 2023
Viljum tryggja framtíð
Tjarnarbíós
- segir Skúli Helgason formaður menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs
Skúli Helgason formaður
menningar- íþrótta- og
tómstundaráðs.
Úr verkinu sund sem er glænýtt og skemmilegt leikverk sem fjallar um
sundmenningu Íslendinga. Sett var upp sundlaug á leiksviðinu.
Í mínum huga er
Tjarnarbíó staður þar
sem framtíðarkynslóðir
í íslenskum sviðslistum
stíga sín fyrstu skref á
opinberu sviði og því
bráðnauðsynlegur
staður í íslensku
menningarflórunni.
islenskt.is Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður | Tryggvagötu 11, 2. hæð
Sími 783 8600 | elin@buumvel.is | www.buumvel.is
Vantar þig þjónustu
við dánarbússkipti,
sölu og ráðstöfun eigna?
SÉRHÆFÐ
LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTA
VEGNA BÚSETUSKIPTA
MEÐ ÁHERSLU Á 60+