Vesturbæjarblaðið - okt 2023, Qupperneq 10

Vesturbæjarblaðið - okt 2023, Qupperneq 10
10 Vesturbæjarblaðið OKTÓBER 2023 Vont er að láta leiða sig, leiða sig og neyða. Verra að láta veiða sig, veiða og meiða. Vont er að vera háð, verst að lifa af náð. Gott að vera fleyg og fær frjáls í hverju spori. Sinnið verður sumarblær, sálin full af vori. Þannig orti Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum um aldamótin 1900. Ólöf var íslensk ljósmóðir og skáld. Hún lærði ljós móður fræði hjá Jónassen lækni í Reykjavík og fór síðan til fram haldsnáms í Kaupmanna höfn. Eftir heim ­ komuna var hún um fimm ára skeið ljósmóðir í Reykjavík. Hún giftist Halldóri Guðmunds syni trésmið og fluttu þau norður að Hlöðum í Hörgárdal og við þann bæ er Ólöf jafnan kennd. Þar bjó hún yfir þrjátíu ár. Ljóð Ólafar eru brennd marki erfiðs uppvaxtar og þeirra viðja sem ónógt frelsi bindur. Hún kynntist Þorsteini Erlingssyni skáldi í Reykja vík sem augljóslega hefur haft áhrif á hana. Á Hlöðum átti hún gott samneyti við Ólaf Davíðsson þjóðsagna­ safnara frá Hofi í Hörgárdal sem drukknaði í Hörgá í heimför frá Ólöfu. Í ljóðum Ólafar kemur fram sterk tilhneiging til að búa við frelsi og vera öðrum óháð auk undirtóna um ástarsöknuð. Ólöf orti undir áhrifum frá raunsæisste­ fnunni og bera ljóð hennar skýran vott sjálfstæðrar hugsunar konu sem engan lét kúga sig til hlýðni. Nokkuð óvenjulegt á þeim tíma. Ólöf Sigurðardóttir var með fyrstu kvenréttindakonum hér á landi. Hún hafði sótt sér menntun og nýtti sér meðfædda rithæfileika til þess að koma hugsunum sínum á framfæri. Á sama tíma og Ólöf sat við eldhúsgluggann á Hlöðum og fékkst við ritstörf fór að draga til tíðinda í Reykjavík. Bríet Bjarnhéðinsdóttir frumkvöðull í íslenskri kvennabaráttu flutti fyrst íslenskra kvenna opinberan fyrirlestur árið 1887. Þar fjallaði hún um hagi og réttindi kvenna. Í þessum fyrirlestri sagði hún meðal annars. „En konurnar eru frá fæðingunni ákvarðar til sinna vissu starfa, sem kölluð hafa verið kvennaverk, hvort sem þeim mundu láta þau vel eða illa. Drengirnir hafa átt að verða menn, sem gætu orðið færir um að ryðja sér braut til gæfu og gengis. En stúlkurnar verða konur, sem hefðu sinn takmarkaða verkahring í búri og eldhúsi.“ Hún sagði störfum skilmerkilega skipt milli kvenna og karla. Flestar útivinnandi konur væru vinnu­ konur, en aðrar stunduðu illa launaða erfiðisvinnu. Um aldamótin 1900 voru ljósmæður einu konurnar í opinberum störfum. Síðar komu hjúkrunarfræðingar í hópinn og þar næst kennarar. Í byrjun 20. aldar áttu giftar konur ekki að stunda launavinnu nema brýna nauðsyn bæri til. Tekjur eiginmannsins áttu að duga. Þessi viðhorf hindruðu ekki einungis giftar konur. Þau höfðu alvarleg áhrif á möguleika ógiftra kvenna. Litið var á launaða atvinnu fyrir konur sem tímabundið ástand því takmarkið væri hjóna­ bandið. Viðtökur við fyrir lestrinum voru góðar og Matthías Jochumsson hrósaði honum í langri grein í Fjallkonunni skömmu síðar. Kosningaréttur og náms og starfaréttur Upp úr aldamótunum 1900 fóru konur að færa hefðbundin kvenna­ störf út af heimilunum einkum með því að bindast sam tökum um mannúðar­ og góð gerðastörf. Á hinn bóginn beittu þær sér fyrir réttindum kvenna út á við. Einkum baráttu fyrir kosningar rétti en einnig rétti til náms og starfa. Þetta voru meginatriðin í tilraunum kvenna til að styrkja stöðu sína utan heimilis og gegn hefðbundnum hugsunarhætti og viðhorfum til stöðu kvenna. Árangurinn lét þó á sér standa. Ein stúlka – 151 strákur Á fyrri hluta 20. aldar voru tæki færi flestum konum til náms aðeins fjarlægur draumur. Konur fengu rétt til að ganga undir próf í Lærða skólanum, Prestaskólanum og Læknaskólanum árið 1886. Þær máttu ekki sitja í skólanum og fengu hvorki rétt til námsstyrkja né embætta. Skólasókn þeirra varð því ekki mikil. Frá 1901 til 1910 lauk aðeins ein stúlka stúdentsprófi frá Lærða skólanum en 151 strákur. Á sama tímabili útskrifaðist 31 stúlka með kennarapróf frá Flensborgar­ skóla en 57 piltar. Segja má að helsta tækifæri kvenna til mennta hafi verið að ná sér í kennarapróf sem tryggði þeim starfsréttindi. Erfið barátta fyrir kosningarétti Baráttan fyrir kosningarétti var erfið. Hið íslenska kvenfélag, sem var fyrsta kosningarréttarhreyfing íslenskra kvenna var stofnað 1894. Ári síðar sendi félagið Alþingi áskorun um jafnrétti í öllum málum með undirskriftum fjölmargra kvenna. Konur fengu kosningarrétt til sveitarstjórna mun fyrr en rétt til að kjósa til Alþingis. Ekkjur og aðrar ógiftar konur, sem stóðu fyrir búi eða áttu með sig sjálfar fengu kosningarrétt til sveitarstjórna árið 1882 en kjörgengar urðu þær ekki fyrr en 20 árum síðar. Giftar konur fengu þennan rétt aldarfjórðungi síðar. Kvenréttindafélag og verkakvennafélagið Kvenréttindafélag Íslands stofnað árið 1907. Markmið þess var að konur fengju full stjórnmálaréttindi á við karlmenn, kosningarrétt, kjörgengi svo og rétt til embætta og atvinnu með sömu skilyrðum og karl menn. Bríet Bjarnhéðinsdóttir var fyrsti formaður þess. Verka­ kvennafélagið Framsókn var stofnað í Reykjavík árið 1914 og beitti Kvenréttindafélag Íslands sér fyrir stofnun þess. Konur ekki undirbúnar fyrir skyldur Samkvæmt stjórnar skrár frum­ varpi, sem samþykkt var á Alþingi 1913 áttu konur og hjú 40 ára og eldri að fá kosningarrétt við stað festingu stjórnarskrárinnar. Aldur stakmarkið átti síðan að lækka Baráttan var löng og ströng - saga kvennabaráttunnar nær yfir meira en heila öld og enn þarf að taka á Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum ljósmóðir og skáld. Talið er yfir 25 þúsund konur hafi komið saman á kvennadeginum 24. október 1975. Bríet Bjarnhéðinsdóttir frumkvöðull í kvennabaráttu á Íslandi. Ingibjörg H. Bjarnason tók fyrst kvenna sæti á Alþingi. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir verkakona kvenréttindafrömuður og síðar Alþingismaður. Ragnhildur Helga var alþingismaður og ráðherra og fyrsti kvenn forseti Alþingis. hreinsum fyrir þig við Ægisíðu 115 - Sími 552 4900 hradi@fatahreinsun.is HRAÐI fatahreinsun www.fatahreinsun.is Alhliða fatahreinsun og þvottahús síðan 1966

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.