Vesturbæjarblaðið - Oct 2023, Page 12

Vesturbæjarblaðið - Oct 2023, Page 12
12 Vesturbæjarblaðið OKTÓBER 2023 Myndarlegur hópur leiðir öflugt starf í Frosta. Margt spennandi á döfinni í Frosta Frosti hóf starfsemi sína aftur eftir sumarfrí í lok ágúst, og hefur starfið vægast sagt farið af stað með krafti. Það var haldið 8. bekkjarkvöld sem nær allur árgangurinn sótti, gæddi sér á pizzu og átti fjöruga kvöldstund saman. Hópastarfið í Frosta byrjaði á ný, gamlir hópar að hefjast á ný eins og larp klúbbur Frosta sem er einn af elstu hópum starfsins. Fyrsta ball skólaársins var haldið um miðjan september og var mætingin á það ball ein sú besta í manna minnum, en þemað þetta ár var “rave”. Margt spennandi er á döfinni í Frosta nú styttist óðfluga í félagsmiðstöðvadaginn sem er einn af skemmtilegustu dögum ársins en á honum eru ungmennin sem sækja starfið hvött til að mæta með fjölskyldunni sinni og sýna þeim húsið og hvað er hægt að gera á hefðbundni opnun í félagsmiðstöð. Í lok október verður svo haldið hrekkjavökuball fyrir 10-12 ára, þar sem krakkar hverfisins mæta klædd sem allskonar skrímsli og forynjur gæða sér á gúmmelaði og dansa eins og enginn sé morgundagurinn. Það hefur heldur betur verið stuð og stemning í Frostaskjólinu síðustu vikur og þarf ekki að ræða við spámann til að vita að það muni halda áfram næstu mánuði. Markaðsdagur á Eiðistorgi 4. nóvember Næsti markaður verður á Eiðistorgi á Eiðistorgi fyrsta laugardag í nóvember eða þann 4. Iris Gústafsdóttir frumkvöðull að markaðsstarfinu segir að síðasti markaðsdagur hafi gengið mjög vel. Þetta framtak hafi vakið verulega athygli og fjöldi fólks hafi komið á torgið. Iris kveðst vonast til að aftur verði hægt að blása til markaðsdags í desember og hafa þá ákveðna jólastemningu Eiðistorginu. Skreyta torgið og fá jólasveina í heimsókn svo nokkuð sé nefnt. Markaðsdagar voru haldnir á Eiðistorgi fyrir nokkrum árum en lögðust svo af. Iris ákvað að blása lífi í markaðsdagana að nýju á liðnu sumar og fékk fólk til liðs við sig. Markaðsdagarnir hafa einnig mætt skilningi hjá bæjaryfirvöldum á Seltjarnarnesi og nú standa vonir til að þeir geti orðið að föstum lið í framtíðinni. Frá markaðsdegi á Eiðistorgi. Iris Gústafsdóttir er til hægri á myndinni. KLAPPARSTÍG 29

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.