Vesturbæjarblaðið - Oct 2023, Page 14
14 Vesturbæjarblaðið OKTÓBER 2023
Öll hús eiga skilið að fá gott
viðhald, við eigum að virða eignina
okkar og þau verðmæti sem felast
í vel útlítandi og góðri fasteign.
Gamalt hús á að geta þjónað
eiganda sínum jafnvel og nýtt hús,
ef rétt er að málum staðið.
Fyrir nokkrum árum stýrði
ég húsfundi þar sem hússtjórn
fjölbýlishúss lagði fram tillögu
um hófstilltar en nauðsynlegar
endurbætur sem fólu í sér
endurnýjun glugga og viðgerðir á
ytra byrði hússins ásamt málun.
Tillagan þótti ganga of langt og var
felld af meirihluta eigenda, líklega
vegna fjárhagsstöðu einstakra
eigenda. Sami fundur ákvað að mála
einungis húsið þrátt fyrir augljósar
skemmdir. Eftir fundinn kom einn
eigenda, sem reyndar hafði lagst
gegn endurbótatillögunni, til mín og
sagðist ekki geta opnað baðgluggann!
Hann spurði hvað væri til ráða og
svar mitt var einfalt. Eigendur verða
að horfast í augu við staðreyndir,
rekstur fasteignar felst ekki einungis
í hita, raforku og ræstingum heldur
líka viðhaldi eignarinnar.
Hvers virði er reglubundið
viðhald?
Reglubundið viðhald skilar bæði
verðmætari eign og auðseljanlegri,
kostnaðargreiðslur eru fyrirséðar og
á sama tíma er eignin í betra ástandi
og öruggari.
Samkvæmt rannsóknum kostar
gott viðhald fasteignar um 1% af
byggingarkostnaði húss á ári, sem
jafngildir því að það kostar árlega
að jafnaði 500 þúsund krónur að
viðhalda meðalstórri fasteign,
eða um 40 þúsund á mánuði. Þá
er einungis litið til sameignar, þ.e.
ytrabyrðis; þaks, veggja, glugga
og útidyra, ásamt lögnum og
sameiginlegrar lóðar.
Við hjá Eignaumsjón erum
að þjónusta um 800 hús- og
rekstrarfélög með um 19.000
íbúðum/fasteignum og greining
okkar leiðir í ljós að eigendur
eru almennt ekki að leggja fyrir
í langtímaviðhaldsjóð fasteigna
sinna. Tölurnar sýna okkur að
ekkert húsfélag er að safna í
viðhaldssjóð sem nemur þessu 1% af
byggingarkostnaði húss á ári. Algengt
tillegg flestra er nær því að vera
um 0,1-0,2%, eða á bilinu 5-10.000
krónur á mánuði. Algengast er að
eigendur greiði viðhaldskostnað með
skömmum fyrirvara, í aðdraganda
framkvæmda og meðan á þeim
stendur. Þær fjárhæðir geta numið
allt að 5% af virði íbúðar þegar kemur
að uppsafnaðri viðhaldsþörf.
Hverju þarf að breyta?
Mikil og þörf umræða er þessi
misserin um húsnæðisþörf og
málefni nýbygginga í landinu.
Stjórnvöld eru krafin um úrræði og
stefnu í þessum efnum en minna fer
fyrir umræðu um viðhald húsa sem
komin eru á viðhaldstíma. Það tjóir
lítið að byggja nýtt ef eldra húsnæði
ónýtist fyrir aldur fram.
Í kjölfar bankahrunsins var
endurgreiðsla virðisaukaskatts
hækkuð í 100% af vinnulið, ásamt
tímabundinni lækkun skattstofns
sem nam 50% af viðhaldskostnaði
undir slagorðinu „Allir vinna“. Víst er
að aðgerðir miðuðu einnig að því að
örva vinnumarkaðinn á þeim tíma.
Endurgreiðslan var síðar lækkuð í
60% en hækkuð aftur í 100% í Covid
faraldrinum. Í júlí í sumar var á ný
dregið verulega úr þessum stuðningi,
þegar virðisaukaskattsendurgreiðsla
af vinnu var lækkuð í 35%. Þarna
fer lítið fyrir hvatningu stjórnvalda
varðandi viðhald eldra húsnæðis.
Við hjá Eignaumsjón höfum
lengi talað fyrir reglubundnu,
fyrirbyggjandi viðhaldi fasteigna.
Það er okkar sýn að húsfélög
ættu að setja sér viðhaldsáætlun
til nokkurra ára, byggða á
ástandsmati viðkomandi fasteigna
og tillögum um forgangsröðun
verkefna eftir mikilvægi þeirra.
Samhliða þarf að tryggja
fjármögnun viðhaldsframkvæmda
með skipulagðri söfnun í
framkvæmdasjóð með tryggri og
góðri ávöxtun með hagsmuni allra
eigenda í fyrirrúmi.
Aukinn stuðningur
stjórnvalda
Samhliða bættum lífsskilyrðum
þjóðarinnar undanfarna áratugi
er gott og öruggt íbúðarhúsnæði,
gamalt eða nýtt, orðið lágmarkskrafa
í samfélaginu. Ákall mitt til
stjórnvalda og löggjafa er að
horfa ekki einungis til nýbygginga
þegar kemur að umræðu um
húsnæðismál, heldur einnig að
stuðla með ákveðnari hætti að
góðu viðhaldi eldra húsnæðis með
lagabótum og stjórnvaldsaðgerðum.
Stuðlum að stöðugu og góðu
viðhaldi eldra húsnæðis
Viðhaldsþörf fjölbýlishúsa og undirbúningur viðhaldsverkefna var til
umfjöllunar á vel heppnuðum haustfundi 18. okt. sl. með stjórnum
húsfélaga sem eru í þjónustu hjá Eignaumsjón. Um 90 gestir mættu á
fundinn og um 40 þátttakendur fylgdust með rafrænt á Teams.
Ljósmynd: Eignaumsjón.
Daníel Árnason, framkvæmda
stjóri Eignaumsjónar.
Ljósmynd: Þór Gíslason.
Messa alla sunnudaga klukkan 11.00.
Tíðasöngur með séra Sveini alla þri-, mið- og fimmtudaga
klukkan 9.15 og kl. 17.00 á fimmtudögum.
Bæna-og kyrrðastund kl. 12.00 alla þriðjudaga,
létt máltíð og samfélag í safnaðarheimilinu eftir stundina.
Bach tónleikar Ólafs Elíassonar
öll þriðjudagskvöld klukkan 20.00-20.30.
Örpílagrímaganga með séra Elínborgu
á miðvikudögum klukkan 18.00.
Opna húsið í safnaðarheimilinu, Lækjargötu 14a
klukkan 13.00-14.30. Fræðsla, góðar veitingar og gott samfélag.
26. okt. Ástbjörn Egilsson les úr bók Jóhannesar heitins
Bergsveinssonar geðlæknis.
Þriðjudaginn 31. október Heimboð í Seltjarnarneskirkju á þriðjudegi.
Hittumst þar klukkan 13.00.
9. nóv. Séra. Elínborg Sturludóttir.
16. nóv. Séra Skúli Ólafsson fjallar um
Gerði Helgadóttur listakonu.
23. nóv. Diljá Mist Einarsdóttir alþingismaður.
30. nóv. Séra Sveinn Valgeirsson.
Kvöldkirkjan kl. 20.00-22.00
9. nóvember
7. desember
Sálmabandið með tónleika.
4. nóv. kl. 16.00-17.00
Sálmabandið mun leika á hljóðfæri sín í Dómkirkjunni.
Þar munum við syngja saman sálma úr nýju sálmabókinni.
Sálmabandið er skipað úrvals tónlistarfólki.
Ása Briem, sem leikur á harmonikku, Jón Ívars og
Sigmundur Sigurðarson sem leika á gítara,
sr. Sveinn Valgeirsson leikur á kontrabassa
og Telma Rós Sigfúsdóttir á víólu.
Hlökkum til að sjá ykkur og eiga skemmtilega stund saman
með söng og gleði.
Verið velkomin í gott safnaðarstarf í Dómkirkjunni.
Fylgist með á fésbókinni eða á domkirkjan.is
Dagskrá í
Dómkirkjunni
Eyrartröð 16, 220 Hafnarrði
sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Eyrartröð 16
220 Hafnarrði
Opið kl. 11-16 virka daga
FALLEGIR LEGSTEINAR
Á góðu verði
Verið velkomin
Gert er ráð fyrir að rúmlega 900 íbúðir munu
rísa við Hlíðarenda á næstu árum ef áform
fjárfesta og skipulagsyfirvalda ná fram að ganga.
Með því verða rúmlega 1.600 íbúðir í hinu nýja
hverfi og íbúafjöldinn meiri en í Hveragerði.
Uppbyggingin gæti skilað Knattspyrnufélaginu Val
milljarða tekjum. Meðal annars hefur Valur óskað
eftir leyfi til að fá að breyta hluta æfingasvæðis í lóð
undir 245 íbúðir.
Þá hefur félagið Hlíðarendi ses., sem er í tæplega
95% eigu Valsmanna hf., sótt um leyfi til að fjölga
íbúðum á A-reit úr 67 í 175. Miðað við að lóðarverð sé
12 milljónir á íbúð gæti sala byggingarréttar á þessum
tveimur reitum skilað yfir 5 milljörðum króna.
Fasteignafélagið Bjarg hyggst reisa um 70 íbúðir á
I-reit en hönnunin tekur mið af nýju skipulagi
Vatnsmýrar. Gert er ráð fyrir að hægt verði að byggja
við húsið, samkvæmt skipulagi randbyggðar, ef
Reykjavíkurflugvöllur víkur sem óvissa ríkir um hvort
eða hvenær það gerður. Fjárfestar hafa jafnframt
sýnt lóðum við Nauthólsveg áhuga en þær eru gegnt
Valssvæðinu. Þá hafa fjárfesta gert tilboði í fasteignir
Flugbjörgunarsveitar Reykjavíkur.
Miklar framkvæmdir
fyrirhugaðar á Hlíðarenda
Miklar framkvæmdir hafa verið á Valssvæðinu við
Hlíðarenda og munu halda áfram.