Stuðlaberg - 01.01.2012, Blaðsíða 4
4 STUÐLABERG 1/2012
er kveðskaparhefðin okkar, ljóðhefðin sem
við höfum varðveitt og ræktað, hefðin sem við
skiljum og notum og síðast en ekki síst, hefðin
sem okkur þykir vænt um og viljum ekki týna
niður eða afskræma á nokkurn hátt.
Stuðlabergið er, eins og fyrr kom fram,
helgað þessari fornu hefð.
Í þessu fyrsta hefti kennir ýmissa grasa.
Fyrirferðarmest eru viðtölin. Hagyrðingur
tjáir sig um vísnagerð og skáld segir frá til-
urð ljóðabókar, spurningar eru lagðar fyrir
prófessor í íslenskum fræðum og hann inntur
eftir auknum áhuga á bragfræðirannsóknum
við Háskóla Íslands. Birtar eru greinar um
bragfræðileg málefni, fréttir af vísnabókum,
kvæði og vísur, sumt áður birt en flest nýtt.
Sumt er grafið upp úr gömlum blöðum, ann-
að er nokkurra daga gamalt.
Þetta fyrsta hefti er aðeins 32 blaðsíður.
Stærðin afmarkast af fjárhag útgáfunnar og
lítilli áhættusækni ábyrgðarmanns. Eftir því
sem föstum áskrifendum fjölgar og leiðir
opnast til að kosta verkið mun ritið stækka.
Vonandi verður það fljótlega vegna þess að
þegar bíður nokkuð af óbirtu efni í næsta
hefti. Og enn er verið að yrkja, enn er verið
að skrifa um kveðskap og rýna í merkingu
hans, form, efnistök og uppruna. Hér með er
skorað á hagyrðinga og annað áhugafólk um
hefðbundinn brag að láta til sín heyra. Stuðla-
bergið er ykkar málgagn; ykkar vettvangur
til að birta kvæði og vísur og annað efni sem
tengist hefðbundnum brag. Ritstjóri vonast
eftir löngu og farsælu samstarfi við brag-
fræðasamfélagið í landinu sem er lögheimili
hefðbundna ljóðsins.
Grafarvogi í október 2012.
Ragnar Ingi Aðalsteinsson
frá Vaðbrekku.
Stuðlaberg
1. tbl. 1. árg., 16. nóvember 2012.
Útgefandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Ragnar Ingi Aðalsteinsson.
Prentun: Oddi, umhverfisvottuð prentsmiðja.
Forsíðumynd: Tómas Jónasson.
Þeir sem vilja gerast áskrifendur að Stuðla-
bergi gjöri svo vel að senda tölvupóst á net-
fangið ria@hi.is eða bréf til Ragnars Inga Að-
alsteinssonar, Fannafold 103, 112 Reykjavík.
Það sem þarf að koma fram er nafn, heim-
ilisfang og póstnúmer, auk þess er gott að fá
kennitölu til að geta látið innheimta áskriftar-
gjaldið gegnum heimabankann.
Blaðið kostar í lausasölu kr. 900 og í áskrift
kr. 800 hvert tbl. Það kemur út tvisvar á ári.
Hægt er að greiða áskriftina inn á reikning
0324-13-000512, kt. 150144 7799.
ISSN 2298-2361
Efnisyfirlit
Enn er verið að yrkja ............................. 3
Hægri síður eflaust auðar .................... 5
Ástin er bak við allt ............................... 6
Við Guð ................................................... 9
Hvað velur unga fólkið? ....................... 10
Lífleg útgáfustarfsemi .......................... 12
Ný axarsköft ........................................... 14
Skorað á hagyrðinga .............................. 15
Haltu þinni beinu braut ....................... 16
Án ljóðsins er menningin sama og dauð . 18
Gæsirnar flugu í gær ............................. 21
Ort fyrir ABC .......................................... 22
Fuglarnir syngja fögur kvæði .............. 23
Ljósið þitt ................................................ 24
Margt fróðlegt rannsóknarefnið .......... 25
Braghendur ............................................ 26
Um aukaljóðstafi ................................... 27
Mælskuna menn elska .......................... 29
Um baksneiðubróður og nýhendu ..... 30
Hann lifði Ísland .................................... 32
Latur skrifar letingja ............................. 34