Stuðlaberg - 01.01.2012, Page 9

Stuðlaberg - 01.01.2012, Page 9
STUÐLABERG 1/2012 9 bókanna nema tveggja þeirra fyrstu. Nú sneri ég mér þangað. Þá kom í ljós að stjórn Ljóða- félagsins hafði nokkrum sinnum haft sam- band við Kristínu árin þar á undan og falast eftir ljóðum hennar til útgáfu án þess að vita að ég var með handritið. Samningar gengu því fljótt fyrir sig. Félagið tók að sér að gefa bók Kristínar út með þeim skilyrðum sem ég setti um frágang og eintakafjölda en nú þurfti ég ekki að ganga í ábyrgð fyrir kostnaðinum. Það var komið fram á árið 2008 þegar um þetta samdist og bókin kom svo út í september 2009, sex árum eftir að ég tók við handritinu á hlaðinu í Hlíð. Bókinni var valið nafnið Bréf til næturinnar. Og svo byrjaði fjörið. Stjórn Ljóðafélags- ins ákvað reyndar að láta prenta 400 eintök, treysti sér ekki í þessi 500 sem samið hafði verið um. Þar eru menn gætnir í fjármálum. Þessar 400 bækur hurfu svo á næstu tveimur mánuðum eða svo og þá varð að prenta meira. Önnur prentun hvarf á nokkrum vikum og þriðja prentun fór sömu leið. Aldrei var prent- að mikið í einu. Áhættusæknin var í lágmarki hjá Ljóðafélaginu. Núna er fimmta prentun í sölu og eitthvað eftir af henni, – ennþá. Salan er orðin nær 2.000 eintök en vegna þess hve lítið er prentað í einu hefur fjárhagslegur ágóði orðið minni en efni stóðu til. Ljóðafélagið hefur ekkert bolmagn til að kynna bækur og fylgja þeim eftir eins og gert er hjá stærri bókaútgáfufyrirtækjum. Ljóða- bók Kristínar hefur kynnt sig að mestu sjálf. Jákvæður ritdómur í Fréttablaðinu og góð um- fjöllun í Kiljunni hafa vissulega hjálpað til en fyrst og fremst selst bókin þó út á umræðuna. Ég hef ekki lengur tölu á öllu því fólki sem lýs- ir upplifun sinni af lestrinum, ræðir fjálglega um meistaratakta, dýpt og skáldlegt innsæi en segist svo ekki eiga orð; og ég skil það vel. Eftir allt það sem lýst er hér að ofan get ég tekið undir þetta. Ég á ekki orð. RIA. Við Guð Við skildum í „góðu“ Guð og ég, við gengum ei lengur sama veg og allt var til fjandans farið. Ég óþroskuð gekk honum ung á hönd, minn eigin vilja hann lagði í bönd - að skilja var skásta svarið. Hann lét mig um allt sem erfitt var, ég einsömul stríddi og þungann bar í amstri dagsins og ergi. Og þegar að mest ég þurfti við og þráði að stæði hann mér við hlið þá fann ég hann „fokking“ hvergi. Á kvöldin hætti hann að koma heim í kirkjunni hékk hann og var með þeim sem vildu til valda sér lyfta. Mér fannst komið nóg, ég skipti um skrá, í skotinu hann við dyrnar lá - ég lét mig það litlu skipta. Svo fann hann sér aðra - ég fegin var. Hann flutti út og nú býr hann þar sem á hann er treyst og trúað. Hann vildi láta óttast og elska sig - slíkt átti ekki beinlínis vel við mig, það afl getur eytt og kúgað. Það kom enginn annar í hans stað, að endingu tókst mér að skilja það - ein gat ég alveg staðið. Ég lærði að efla megn og mátt að meta lífið á nýjan hátt og tefla á tæpasta vaðið. Í mannfjölda stundum við mætumst nú en misst hef ég á hann alla trú og forðast frekar að sjá hann. Ég kemst af án hans og hann án mín og hvorugt dvelur við mistök sín - þó eitt sinn tryði ég á hann. Kristín Jónsdóttir á Hlíð, október 2011.

x

Stuðlaberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.