Stuðlaberg - 01.01.2012, Blaðsíða 11
STUÐLABERG 1/2012 11
kunnugt er, að vera snjallir hagyrðingar og
fara einkar vel með hefðbundið ljóðform. Þau
ljóð sem oftast komu fyrir voru Fjallgangan
eftir Tómas Guðmundsson og Slysaskot í Pal-
estínu eftir Kristján frá Djúpalæk. Bæði eru
þessi ljóð afar erfið í flutningi og því veldur
það nokkurri furðu að þau skuli vera valin svo
oft þegar svo mikið liggur við að vanda sig.
Þar hlýtur efnið að ráða nokkru – og formið.
Bent skal á að hér er aðeins tæpt á litlum
hluta þess sem fram kemur í grein Ingibjargar.
Þeim sem hafa áhuga á að kynna sér þetta mál
betur er bent á Hrafnaþing 3, 2006.
Í bandarískri könnun sem unnin var af
Ann Terry (1974)2 var gerð athugun á því
hvers konar ljóð nemendur kjósa helst að
vinna með og lesa upp. Þar kemur fram að
börn velja helst:
a) ljóð sem þau eiga auðvelt með að skilja
b) ljóð sem segja sögu
c) ljóð sem hæfa reynslu þeirra og þroska
d) ljóð sem eru úr samtímanum
e) ljóð sem eru glettin
f) ljóð sem fjalla um kunnuglega hluti
eða dýr
g) ljóð sem eru hefðbundin, með rími og
háttbundinni hrynjandi (stuðlasetning
tíðkast ekki þar)
h) ljóð sem höfða til persónulegrar
reynslu þeirra
Gaman er að skoða athugun Ingibjargar
B. Frímannsdóttur út frá þessum lista og
velta fyrir sér hvort eitthvað sé sameigin-
legt með grunnskólanemendum í Banda-
ríkjunum og hér heima á Fróni. Forvitnilegt
er að máta skáldin, sem þátttakendur í Stóru
upplestrarkeppninni völdu oftast á árunum
1996 til 2005, við liði a-h í upptalningunni hér
að ofan. Ef til vill eru börn beggja vegna Atl-
antshafsins ekki svo ólík þegar allt er skoðað.
Það skal þó ítrekað að margir þættir eru enn
ókannaðir hvað varðar ljóðasmekk íslenskra
grunnskólanema. En könnunin sýndi þó, svo
ekki varð um villst, að hefðbundnu skáldin
eru í efstu sætum þegar nemendur velja sér
ljóð til flutnings.
RIA.
1 Þessi stutta úttekt er byggð á grein Ingibjargar B.
Frímannsdóttur (2006): Slysaskot í Palestínu. Könnun
á ljóðavali keppenda í Stóru upplestrarkeppninni.
Hrafnaþing 3. Ingibjörg veitti ritstjóra góðfúslegt leyfi
til að birta örstuttan útdrátt úr greininni og eru henni
færðar bestu þakkir.
2 Terry, Ann. 1974. Children´s Poetry Preferences. A
National Survey of Upper Elementary Grades. National
Council of Teachers of English. Urbana, Illinois.
Svipmynd frá upplestri í austfirskum skóla.
Si
gu
rð
ur
A
ða
ls
te
in
ss
on