Stuðlaberg - 01.01.2012, Síða 22
22 STUÐLABERG 1/2012
Ástirnar vaka
og álftirnar kvaka
Hún smjattaði´ á klaka
og smælaði svaka
Hún sefur á sæng,
kjamsar kjúklingavæng
Þegar línurnar eru settar saman er leyfilegt
að bæta smáorðum (forliðum) framan við
þær til að tengja þær betur merkingarlega og
það má breyta hann í hún og öfugt og svo má
breyta nútíð í þátíð og öfugt. Þegar kom að því
að raða saman línum var tíminn reyndar bú-
inn og heilar limrur urðu því færri en til stóð,
en nokkrar þó. Hér eru dæmi:
Jóhanna hlakkar til jóla,
hana langar ei lengur í skóla.
Hún smjattaði´ á klaka
og smælaði svaka
og fór út að kaupa sér kjóla.
Á Bjarnfríði óx tröllsleg bóla.
Hana langar ei lengur í skóla.
Hún sefur á sæng,
kjamsar kjúklingavæng
og grætur og vill bara góla.
Védís hún vakti í gær
og um nóttina færðist hún nær,
því að ástirnar vaka
og álftirnar kvaka
og sjóarinn Sigurður hlær.
Í bekknum er fíflið hún Fjóla.
Svo er ég að tala um Óla.
En ástirnar vaka
og álftirnar kvaka
– og hann býður henni´ upp á kóla.
Aðferðin sem hér er notuð byggist á því að
leyfilegt er að hafa allar langlínur limrunnar
sérstuðlaðar. Þá kemur ekki höfuðstafur í 2.
línu heldur nýtt stuðlapar. Sama gildir um 5.
línu.
Á það skal bent að þessi kveðskapur er
afrakstur af tveimur kennslustundum og limr-
urnar settar saman í tímahraki í lokin. Miðað
við það er niðurstaðan alls ekki slæm. Efnis-
tökin mættu líklega vera heldur markvissari
á köflum en af framanskráðu er hins vegar
ljóst að grunnskólanemendur hafa eyra fyrir
stuðlasetningu, og sú staðreynd kom þeim
sem hér skrifar reyndar alls ekki á óvart.
Lesendur mega svo nota afganginn af
braglínunum og raða saman fleiri limrum.
Efniviðurinn er til staðar þarna á blaðinu.
RIA.
Ort fyrir ABC
Hagyrðingamót var haldið til
styrktar ABC-barnahjálp laugardaginn
3. nóv. sl. í húsnæði samtakanna að
Laugavegi 103. Hagyrðingar kváðust
á og skemmtu og svo gátu viðstaddir
keypt vísur og ákveðið sjálfir yrkisefn-
ið. Allur ágóði af samkomunni verður
notaður til að kaupa skólamáltíðir fyrir
skjólstæðinga ABC í Pakistan. Ákveðið
hefur verið að halda áfram með vísna-
söluna. Hægt er að hafa samband við
ABC (sími 419 0990) og panta vísu
eða vísur þegar tilefni gefast, svo sem
afmæli eða giftingar eða hvað sem vera
skal. Hagyrðingarnir taka svo við og
yrkja og ABC fær greiðsluna. Umrætt
kvöld varð einmitt til vísa um þetta:
Hér yrkjum við ljóð og leitum að orðum,
létt verður allt þetta kvæðaflan
ef vísurnar enda sem brauð á borðum
barnanna okkar í Pakistan.
RIA.