Reykjanes - 24.06.1987, Side 2
2
REYKJANES
■ Úljjcfandi: Reykjanes
blaðaúlgál'a
Rilsljóri: Sigmundur Ó
Sleinarsson (Simi 3696)
■ Artsloð virt ritstjórn:
Halldór L.eví Björnsson
Auglvsingar: Hrla Sveins-
dóllir
Innheimta: Erna Allreðs-
dóltir
| Rilsljórn, aiiglýsingar,
skrifstofa: Hafnargala 46,
Keflavik. Simi 4988.
H Selning, umbrol og prenlun:
Stapapreni
Miðvikudagur 24. júní 198 Jias É
■ Framkvæmdasjóðui ,,Vonbi verið n' —segir Guðjón Stefáns KEFLAVÍK: — Eins og Reykjanesið skýrði frá í síöustu viku hafa verið notaðar 18 milljónir úr svokölluöum Framkvæmdasjóði aldraðra. Þar af hafa 13 milljónir verið notaðar í almennan rekstur Keflavíkurbæjar. Á síðasta kjörtímabili var r aldraðra: rigði að otaður í son, fyrrum formaður bt starfandi nefnd sem sá um byggingu íbúða aldraðra í Keflavík. í þessari nefnd áttu sæti þeir Guðjón Stefánsson, sem var formaður, Kristinn Guðmundsson, Jón Ólafur Jónsson, Jón B. Kristinsson, frá Styrktarfélagi aldraðra og Óli Þór Hjaltason frá Félags- sjóðurinn 1 þennan h /ggingarnefndar íbúða fyrir aldraö bíói. Blaðið leitaði álits Guð- ingu fyrir jóns Stefánssonar á því að Nú hafa p framkvæmdasjóðurinn hafi sjóð verið verið notaður á þennan hátt. aukinnrekí „Það eru mér mikil vonbrigði sjóðs Ke að þessi sjóður skuli vera not- Guðjón. aður á þennan hátt. Þá með til- liti til hans upphaflega til- gangs, að stuðla að uppbygg- tiafi átt“ ►a í Keflavík aldraða í Keflavík. eningar úr þessum lotaðir til að dekka trarkostnað bæjar- flavíkur,“ sagði
Það er sannkallaður fiskmarkaður hjá máfinum þegar hann kemst í fiskafurðir á vörubílspöllum.
Ekki nægilega mikið
vatn í Sandgerði
fyrir laxeldisstöð?
SANDGERÐI: — Oskar Arna-
son, einn af eigendum Atlands-
la\, sem hefur sótt um lóð undir
laxeldistöð við Sandgerðishöfn,
hefur enn ekki fengið svar við
umsókn sinni.
Bygginganefnd Miðneshrepps
hel'ur frestad að taka umsókn
Óskars fyrir. Nefndin vill fyrst
fá ýmsar upplýsingar og láta
kanna hvað mikið vatn er til
staðar. Laxeldisstöð þarf mikið
vatn til starfsemi sinnar.
Kannað verður hvort hætta sé á
að vatnsfrek laxeldisstöð myndi
verða til þess að vatnsból annara
Mjólkurbikarkeppnin í knattspyrnu:
Fjögur liö frá
Suöurnesjum í
16-liða úrslit?
SANDGERÐI: — Mikil ánægja
braust út í Sandgerði þegar Ijóst
var að Reynir hafði dregist gegn
Stjörnunni úr Garðabæ í 3. um-
ferð bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu. Bæði liðin leika í 3.
deild. Möguleikar Reynismanna
á að tryggja sér sæti í 16-liða úr-
slitum, eru miklir. Þeir leika
gegn Stjörnunni í Sandgerði.
Reynir hefur aldrei náð að leika
í 16-liða úrslitum. Grindvík-
ingar voru ekki eins heppnir
með mótherja, þar sem þeir
mæta 2. deildarliði Selfoss.
Grindvíkingar fögnuðu því að
fá heimaleik gegn Selfyssingum.
Heimaleikur getur haft sitt að
segja.
Það getur farið svo að Suöur-
nesjamenn eigi fjögur lið í
16-liða úrslitum. Keflavík og
Víðir hafa þegar tryggt sér sæti.
aðila myndu þurrkast upp.
,,Það þarf að skoða ýmsa
þætti í þessu sambandi. Það er
ekki eins mikil vatnssæld hér í
Sandgerði og er í Grindavik og
Höfnum, þar sem laxeldis-
stöðvar eru,“ sagði Stefán
Bjarnason, sveitarstjóri Miðnes-
hrepps í stuttu spjalli við
Reykjanes
Dagstjarnan
sigldi á
bifreið
NJARÐVIK: — Dagstjarnan
KE sigldi á bifreið fyrir nokkru.
Var Dagstjarnan að fara á miðin
og var verið að snúa skipinu í
höfninni, þegar stefni þess rakst
í bifreið sem stóð mannlaus á
hafnarbakkanum. Urðu ekki
miklar skemmdir á bifreiðinni.
Fiskmarkaður!
Það er sannkallaður fiskmarkaður hjá rnáfinum þegar lian n
kemst í fiskafurðir á vörubílspöllum. Þá er þétt setinn pallurinn
og færri komast að en vilja, til að kanna þær afurðir sem er
boðið upp á hverju sinni. Máfurinn hefur engar áhyggjur af
meðalverði, eða hvort að hægt sé að fá 25% hærra verð fyrir
aflann, en það sem hefur verið skráð. Hjá honum setja ekki
fisksalar strik í reikninginn hvað verð varðar. Það eina sem þeir
vilja, er „fiskur á disk.“
Reykjanesmynd: Hrós.
Humarkvót-
inn að
verða búinn
KEFLAVIK: — Humarvertíðin
hjá bátum á Suðurnesjum hefur
gengið með afbrigðum vel. Það
er reiknað með að humarkvót-
inn, 2.500 tonn, verði kominn á
land um mánaðarmótin júní /
júlí. Ástæðan fyrir hvað vel hef-
ur gengið er hin mikla veður-
sæld sem hefur verið að undan-
förnu. Ekki einn einasti dagur
hefur dottið út hjá humarbát-
unum, vegna óveðurs.
Það hefur verið nóg að humri
Níutíu km
hraðí....
KEFLAVIK: — Hámarkshraði
hefur verið hækkaður á
Reykjanesbrautinni, frá Hafn-
arfirði til Njarðvíkur. Nú má
aka þessa vegalengd á 90 km
hraða. Hámarkshraðinn var 80
km.
á miðunum. 20-30 bátar hafa
gert út og hefur aflinn verið
verkaður i Sandgerði, Garði,
Keflavík, Njarðvík og Grinda-
vík.
Eftir að humarvertíðinni lýk-
ur fara flestir bátanna í slipp í
klössun.
Vinnuslys í
Sjöstjörn-
unni
KEFLAVÍK: — Vinnuslys varð
í Hraðfrystihúsi Sjöstjörnunnar
ht'. í Njarðvík. Maður sem var
að vinna við lyftara ásamt
öðrum, lenti með vinstri hendina
annað hvort í viftureim eða
viftuspaða. Missti maðurinn
framan af löngutöng vinstri
handar. Var hann fluttur á
Sjúkrahúsið í Keflavík þar sem
gert var að sárum hans.
Reykjanes
borið út í hús
í Keflavík
og Njarðvík
KEFLAVIK: — Akveðið
hefur verið að bera Reykja-
nes út í hvert hús í Keflavík
og Njarðvík eftir að blaðið
kemur úr sumarfríi, mið-
vikudaginn 12. ágúst.
Reykjanes auglýsir því ef-
tir blaðberum. Þeir sem hafa
hug á að bera blaðið út eru
beðnir að hafa samband sem
fyrst. Fljótlega verður byrjað
að raða blaðberum niður í
hverfi og götur.
Frá og með 12. ágúst, mun
Reykjanesið verða borið út í
hvert hús í Keflavík og
Njarðvík á tímabilinu kl.
16-18. Blaðið verður komið
á dreifingarstaði í Grindavík,
Vogum, Höfnum, Kefla-
víkurflugvelli, Garði og
Sandgerði upp úr hádegi á
midvikudögum.