Reykjanes - 24.06.1987, Page 3
REYKJANES
Miðvikudagur 24. júní 1987
3
Her er verið að vinna við steypuvinnu í einu af nýju kerjunum hjá Vogalax hf.
Reykjanesmyndir: Hrós.
Vilhjálmur Ketilsson:
, ,Er gengið í
sjóð aldraðra?“
—athugasemd við frétt
Villandi fyrirsagnir
í febrúar sl. skrifaði undirritaður at-
hugasemd í Reykjanesið vegna greinar
er birtist í Helgarpóstinu og fór fyrir
brjóstið á mörgum bæjarbúum. Á ný
finn ég ástæðu til þess að gera slikt hið
sama, en nú við fyrirsögn á forsíðu og
frétt á bls. 3 i Reykjanesinu.
Allir muna hvernig fyrirsögnin hljóð-
aði í HP: „50 milljónir vantar í bæjar-
sjóð.“ Mönnum fannst að ýmislegt
mætti úr henni lesa. Sumir lásu að 50
milljónir hefðu horfið úr sjóðnum,
aðrir að 50 milljónir vantaði til þess að
endar næðu saman i rekstri bæjarins
það árið. Nú birtist ein slík fyrirsögn
sem gefur ýmislegt til kynna: „Peningar
aldraðra notaðir til almenns reksturs
bæjarins“ Hvað skyldu menn hafa lesið
úr þessari fyrirsögn? Tók bæjarsjóður
peninga frá þeim öldruðu til eigins
reksturs eða var þetta bara lán úr Fram-
kvæmdasjóði aldraðra? Hvernig má
þetta vera spyrja bæjarbúar eflaust. Er
gengið í sjóði gamla fólksins? Spyr sá
sem ekki veit, en víst er að blaðið sá ekki
ástæðu til þess að útskýra málið í heild
sinni.
Framkvæmdasjóður
aldraðra
Á siðasta fundi Rafveitunefndar
Keflavíkur sem haldinn var með bæjar-
ráði Keflavíkur þann 15. mai 1986 eftir
að Hitaveita Suðurnesja hafði tekið við
öllum rekstri og búnaði rafveitunnar
samþykkti rafveitunefnd að leggja eft-
irfarandi til við Bæjarstjórn Kefla-
víkur: „Nú þegar Rafveita Keflavikur
hættir verði eignum hennar varið til
þjónustu við aldraða og myndaður
sjóður sem ber nafnið Framkvæmda-
sjóður Rafveitu Keflavíkur til þjón-
ustu- og húsnæðismála aldraðra.“ í
fundargerð bæjarráðs segir: „Bæjar-
ráð tók heilshugar undir tillögu raf-
veitunefndar um ráðstöfun þeirra fjár-
muna sem hún skilar af sér.“
Á bæjarstjórnarfundi 20. maí 1986
eru fundargerðir rafveitunefndar og
bæjarráðs samþykktar. Þá var og sam-
þykkt að fela formanni rafveitunefnd-
ar, bæjarstjóra og bæjarlögmanni að
gera tillögu að skipulagsskrá fyrir sjóð-
inn.
Hver á Sjóðinn?
í reglugerð um Rafveitu Keflavíkur
frá 1954 segir í 6. gr.: „Reiknishald og
í Reykjanesi
ráðstöfun tekna. Rafveita Keflavíkur
hefur sjálfstætt reiknishald og tekur
sjálf við greiðslum fyrir selda raforku
og öðrum tekjum. Skal tekjum hennar
fyrst og fremst varið til að standast
straum af öllum greiðsluskuldbind-
ingum hennar, svo sem afborgunum á
áhvílandi skuldum, vöxtum og öðrum
rekstrarkostnaði, þar með talið full-
nægjandi viðhald og endurnýjun virkja
og annað, sem nauðsynlegt er til að
tryggja öruggan rekstur rafveitunnar,
en tekjum, sem umfram kunna að
verða, ráðstafar hreppsnefnd (nú
bæjarstjórn).“
Hverjir skyldu svo eiga Fram-
kvæmdasjóð aldraðra?
Það liggur auðvitað í augum uppi að
bæjarbúar allir eiga sjóðinn. Að sjálf-
sögðu verða þessir fjármundir rafveit-
unnar notaðir í sjóðsstofnunina þegar
skipulagsskrá hans liggur fyrir. En það
er bæjarráð sem á síðasta orð í þeim
efnum.
Hver ráðstafar Sjóðnum
að eigin geðþótta?
Hvorki Garðar Oddgeirsson né Drífa
Sigfúsdóttir vilja kannast við það að
bæjarráði hafi verið tilkynnt að nauð-
syn hafi borið við að nýta fjármuni
sjóðsins í þágu bæjarfélagsins. Það var
gert í ágúst i fyrrasumar og síðar í byrj-
un desember. Þetta er ekki sérstaklega
bókað, en rætt, og það þótti eðlilegt að
ganga að þessari fjárhæð. Ástæðan
fyrir því var sérstaklega slæm staða
bæjarsjóðs um það leyti, sem þeim báð-
um var kunnugt um. Því hið „góða
bú“, sem Drífa talaði svo oft um í
fyrrasumar var ekki til staðar. Ef þeim
félögum Drífu og Garðari finnst að
sjóðnum hafi verið ráðstafað af eigin
geðþótta, þá var það gert i þágu bæjar-
búa og með vitneskju bæjarráðs. Varð-
andi endurskoðun fjárhagsáætlunar á
sl. hausti skal það áréttað hér að dregið
var úr þeim framkvæmdum sem hægt
var að fresta. Því miður var aðeins um
það að ræða að fresta framkvæmdum
við sundmiðstöð og dagheimili og var
það gert. Ef minnihlutafélagarnir geta
bent á aðra lausn, sem okkur yfirsást
ættu þeir að tilgreina hana.
Fréttafölsun Reykjaness
eða minnihlutans utn
Kirkjuveg 11
„Þar er ekki von á góðu sem tvær
tungur eru í einu höfði“ segir málshátt-
urinn. Þannig varð mér hugsað við
lestur síðasta tbl. Reykjaness. Hver sá
sem gaf upplýsingar um að peninga
vantaði til að halda áfram framkvæmd-
um við byggingu aldraðra við Kirkjuveg
11, veit lítt sem ekkert um þetta mál.
Vonandi er það ekki bæjarfulltrúi.
Vegna framkvæmda við Kirkjuveg 11
mun bæjarsjóður taka lán úr Bygg-
ingarsjóði verkamanna. Á fundi hús-
næðistjórnar 24. mars sl. var samþykkt
að heimila Keflavíkurbæ að hefja und-
irbúning að byggingu á 19 íbúðum fyrir
aldraða í Keflavík, sem lán verður veitt
úr fyrrnefndum sjóði. Lánsfé til fram-
kvæmdanna kemur til útborgunar í sem
næst jöfnum fjárhæðum á 18 mánaða
tímabili frá og með 1. júlí n.k., eftir að
gerður hefur verið sérstakur fram-
kvæmdalánssamningur þar að lútandi.
Eigendur íbúðanna munu síðan
standa skil af greiðslu lánsins ásamt því
að leggja fram 15% af andvirði íbúð-
anna. Þatinig að Framkvæmdasjóð
Rafveitunnar átti aldrei að þurfa að
nota þar. Ástæðan fyrir því að Kefla-
víkurbær hefur lagt þrjár milljónir i
vinnu við grunn og teikningar, var
aðeins til þess að flýta fyrir verkinu.
Framkvæmdir eru nú að hefjast við
þessa byggingu og að fullum krafti eftir
1. júlí.
Frá ritstjórn
í framhaldi af athugasemd
Vilhjálms Keíilssonar, viljum
við taka fram að við stöndum
við þá frétt sem hann vitnar í.
Fréttafölsun var ekki um að
ræða, enda leituðum við okkur
upplýsinga um inálið, m.a. var
rætt við Vilhjálm í greininni og
tvo bæjarfulltrúa Keflavíkur.
Ritstjórn.
Vogalax hf.:
Eldisrými
fyrir 2.5millj.
laxaseiða
-þegar búið er að reisa 28 ný eldisker
VOGAR: — Miklar
framkvæmdir eru nú hjá
Vogalax hf.. Er verið að
reisa 28 eldisker, sem
hvert er tæplega 160
rúmmetrar að stærð og
er eldisrými þeirra 140
rúmmetrar. Þegar fram-
kvæmdum við þessi ker
er lokið er eldisrými í
stöðinni fyrir 2.5 milljón
seiða.
Sveinbjörn Oddsson
sagði í samtaii við blaðið
að þó yrði byrjað með
1.7 milljónir seiða í ár.
Auk framkvæmda við
kerin hefur verið borað-
ar fjórar ferskvatnsholur
til viðbótar við þær hol-
ur sem fyrir eru. Nú er
verið að bora eina sjó-
holu. Sagði Sveinbjörn
að það væri gert til að
hægt sé að blanda
ómenguðum sjó við
vatni sem er notað til
eldisins.
Það er fyrirtækið
Lyngholt sf. í Vogum
sem sér um fram-
kvæmdir við byggingu
kerjana og er gert ráð
fyrir að framkvæmdum
Ijúki í haust.
150 þúsund
laxaseiðum
var sleppt
—sem er stærsta seiðamagn sem Vogalax
hefur sleppt í einu
VOGAR: — Seiðasleppingar á þessu ári hófust á föstu-
daginn hjá Vogalax hf., en þá var sleppt 150.000 seiðum.
Alls er ætlunin að sleppa um 450.000 seiðum í ár. Er það
stærsta seiðaslepping sem gerð hefur verið hjá Vogalax hf.
Má til samanburðar geta þess að á síðasta ári var sleppt 36.000
seiðum.
Að sögn Sveinbjarnar Oddssonar stöðvarstjóra munu þessi
seiði ganga upp í stöðina sem fullvanir laxar á næstu tveimur
árum. Gerði hann sér vonir að heimtur yrðu svipaður og á
síðasta ári, en þá voru heimtur um 10-12%. Þykir það gott
hlutfall hjá hal beitarstöð.