Reykjanes - 24.06.1987, Page 10
REYKJANES
ÍO
Miðvikudagur 24. júní 1987
Tilraunafiski-
mj ölsv erksmiðj a
á Suðurnesjum
—gangsett í húsnæði Stranda hf.
HAFNIR: — Vonir standa til
að hægt verði að gangsetja
tilraunaverksmiðju á vegum
Rannsóknarstofnunar fisk-
iðnaðarins í húsnæði Stranda
hf. á þessu ári. Fengist hefur
33 milljón króna fjárveiting
til að koma húsnæði upp
fyrir þessa verksmiðju. Kem-
ur þetta fram í viðtali við
Grím Valdimarsson forstjóra
Rannsóknarstofnunar fisk-
iðnaðarins í Fiskifréttum.
Segir Grímur í viðtalinu að
lengi hafi verið gælt við þá
hugmynd að koma upp slíkri
tilraunaverksmiðju. Er
ætlunin að kaupa ný og af-
kastameiri tæki og einnig
þyrfti að byggja kæli- og
frystiklefa. Hugmyndin sé að
nýta jarðgufu til rekstursins.
Með tilraunafiskimjölsverk-
smiðjunni væri hægt m.a. að
gera tilraunir með gæðamjöl
og með verksmiðjunni væri
hægt að selja fiskimjölsfram-
leiðendum þá þjónustu sem
vantaði í dag.
Flugmódelaáhugamenn úr Reykjavík fjölmenntu á hinn glæsilega flugvöll um sl. helgi.
Reykjanesmynd: Hrós.
Vantai nýjan
rafgeymi?
Faröu ekki í ferðalagið rneð
lélegan geymi. Við höfurn
VARTA rafgeyma í bílinn og
bátinn.
Veitum alla þjónustu varð-
andi raímagnshleðslu í
bíiinn. Svo er ýmsiiegt til í
Rafbúð R.Ó. sem veii er að
skoða.
Komdu við á Hafnargötu 44.
Nœg bílastœði - fagleg
þjónusta.
Rafbúd R.Ó.
Sími 3337
Góð fceUsa
er gulli
betri
SGhEY
Sími 1616
Hafnargötu 54 - Sími 1616
,,Bestí flug-
módeíaflugvöll-
urinii á landinu á
Suðiiri»esjum“
—sögðu flugmódeláhugamenn úr Reykjavík, sem voru að leik á
glæsilegum flugvelli út við Garðsveg
KEFLAVÍK: — „Þetta er besti
flugmódelaflugvöllurinn hér á
landi/’ sögðu nokkrir Reykvík-
ingar úr Flugmódelafélaginu
Þyti, þegar þeir voru að leik á
glæsilegum flugmódelaflugvelli,
sem er utan vegar rétl við nýja
kirkjugarðinn á leiðinni út í
Garð.
Tveir Suðurnesjamenn, þeir
Gísli Hauksson (í Stapa) og
Vegna mikillar sölu að undan-
íörnu vantar nýlega bíla á
söluskrá og á staðinn.
Vorum ad íá cmhasendingu aí MÖZDU 323
og 626:
323 3ja dyra 1.3 l - verð 368.000,-
323 5 dyra 1.2 1 - verð 390.000,-
323 4 dyra sedan 13 1 - verð 410.000,-
323 sedan 1.5 1 - verð 445.000,-
626 4 dyra saloon - verð 479.000,-
626 5 dyra hatcbbach - verð 495.000,-
Verð eru samkvœmt verðskrá
11. júní 1987
Þorsteinn Hraundal lögreglu-
þjónn hafa byggt þennan flug-
völl upp og hafa þeir lagt mikla
vinnu í að halda honum í sem
bestu standi. „Það er nokkuð
undarlegt að aðeins tveir menn
hér á Suðurnesjum hafi flug-
módetflug sem áhugamál, þegar
svona frábær flugvöllur er hér á
svæðinu,“ sögðu flugmódela-
áhugamennirnir úr Reykjavík.
Þeir sögðust koma hingað
nokkrum sinnum yfir sumartím-
arm til að nota flugvöllinn, sem
er vel byggður og skemmtilegur.
Flugmódelin ná allt að 150
km hraða og er hreint ótrúlegt
hvað hægt er að láta flugvélarn-
ar gera. „Flugmódelin geta gert
ýmsar listir sem flugvélar geta
ekki,“ sagði einn af flug-
módelaáhugamönnunum, sem
sagði að flugmódelaflug væri
mjög skemmtileg íþrótt og til að
ná árangri yrðu þeir að æfa eins
og aðrir íþróttamenn.
Flugmódeláhugamennirnir
voru með ýmsar gerðir af flug-
módelum. Nýtískulegar orustu-
þotur, gamlar tvíþekjur og
einnig mátti sjá gamlar stríðs-
flugvélar, sem unnu ýmis afrek í
seinni heimsstyrjöldinni.
„Eins og í öðrum íþróttum er
byrjunarkostnaðurinn mestur.
Þá aðallega í sambandi við fjar-
stýribúnaðinn. Flugmódelin
sjálf eru ekki svo dýr, en við bú-
um þau yfirleitt sjálfir til eftir
teikningum. Það tekur þetta
tvær til þrjár vikur að smíða
eina flugvél. Auðvitað er alltaf
skemmtiiegast að fljúga flugvél-
um sem maður hefur sjálfur
smíðað,“ sagði einn af flug-
módelaáhugamönnunum.
Her a myndinni ma sja nokkur synishorn á flugmódelum við
hliðina á stærri flugvél.