Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.01.2023, Síða 4

Fréttir - Eyjafréttir - 19.01.2023, Síða 4
4 | | 19. janúar 2023 Kæru Vestmannaeyingar nær og fjær! Borgarráð bauð Vestmanna- eyjabæ að verða heiðursgestur Menningarnætur í Reykjavík í ágúst 2023 í tilefni af 50 ára goslokaafmæli og langvarandi vinatengslum bæjarfélaganna. Undirbúningur er þegar hafinn og mikil tilhlökkun í loftinu. Fáir atburðir hafa styrkt tengsl Eyja og Reykjavíkur meira en gosið í Heimaey. Á einni nóttu gjörbreyttist veruleiki Eyjamanna þegar eldsumbrotin hófust og flytja þurfti um fimm þúsund flóttamenn, um 2,5% lands- manna á þessum tíma, á nokkrum klukkutímum til fastalandsins. Reykjavík tók eðli málsins sam- kvæmt við flestum þeirra. Þessi giftusamlega björgunaraðgerð er fordæmalaus í Íslandssögunni. Til að rifja upp söguna þá fundaði borgarráð 23. janúar 1973 og bókaði að ráðið„sendir Bæjarstjórn Vestmannaeyja og Vestmannaeyingum öllum sam- úðarkveðjur vegna þeirra alvar- legu atburða, sem nú hafa gerzt í Vestmannaeyjum. Borgarráð lýsir jafnframt ánægju sinni yfir því, hversu vel hefur tekizt með brottflutning íbúa Vestmannaeyja og að skipulag hjálparstarfsins skuli hafa tekizt jafn giftusam- lega og raun ber vitni um. Hefur skipulag almannavarna vel staðist þessa raun, en fjöldi sjálfboða- liða hefur í dag unnið við þetta hjálparstarf og vill borgarráð færa þeim sérstakar þakkir fyrir. Borg- arráð býður þá Vestmannaeyinga, sem til Reykjavíkur hafa komið, velkomna til borgarinnar, þó undir óskemmtilegum kringumstæðum sé. Borgaryfirvöld eru reiðubúin til allrar þeirrar aðstoðar, sem mögulegt er að veita, til að því fólki, sem nú dvelur hér, megi líða sem bezt og vænta þess að Reykvíkingar allir séu reiðubúnir til aðstoðar.“ Borgarráð samþykkti einnig á þessum fundi að bjóða bæjar- stjórn Vestmannaeyja aðstöðu í Hafnarbúðum fyrir bækistöð og skrifstofu, endurgjaldslaust. Hafnarbúðir urðu aðal samkomu- staður og upplýsingamiðstöð Vest- mannaeyinga í gosinu en Rauði krossinn flutti einnig starfsemi sína þangað. Gott samstarf Gott samstarf var á milli bæj- arstjórnar og borgaryfirvalda á gostímanum. Krefjandi áskoranir voru víða, sérstaklega þegar kom að húsnæðismálum. Oftar en ekki opnuðu borgarbúar heimili sín og tóku á móti einstaklingum eða fjölskyldum. Bæði þeir sem voru með tengsl við Eyjar og aðrir, þar til varanlegri lausnir komu til. Alls tók Reykjavíkurborg á móti hátt í fimm hundruð skólabörnum á einu bretti inn í skólakerfi borgar- innar. Borgarráð og bæjarráð Vest- mannaeyja funduðu saman 13. febrúar 1973 og fyrir fundinn var lagt fram minnisblað þar sem var að finna yfirlit yfir fyrirgreiðslu Reykjavíkurborgar og stofnana hennar við Vestmannaeyinga en hún var af ýmsum toga. Skipulag almannavarna tók miklum breytingum í kjöl- far eldsumbrotanna, ekki síst samstarf þeirra við vísindamenn. Eldgosið á Heimaey leiddi til þess að til varð hópur vísindamanna frá hinum ýmsum vísindastofunum sem fékk vinnuheitið Vísindaráð almannavarna. Hefur þessi hópur í gegnum tíðina verið almannavörn- um tiltækur til ráðgjafar um hina ýmsu þætti náttúruvísinda og nátt- úruvá sem hefur reynst ómetanleg í öllu almannavarnastarfi. Skírskotanir til samtímans eru miklar. Vegna innrásar Rússa í Úkraínu hafa ekki jafnmargir flóttamenn hrakist frá heimilum sínum í Evrópu frá seinni heim- styrjöld. Þótt þessum atburðum verði sannarlega ekki líkt saman þá endurómar samþykkt borgar- stjórnar um móttöku flóttafólks vegna hinnar hörmulegu innrásar í Úkraínu andann í bókun borg- arráðs vegna Vestmannaeyja- gossins. Ísland hefur aldrei tekið á móti jafnmörgu flóttafólki og síðasta ár erlendis frá. Líkt og áður er Reykjavík í forystu en mikilvægt er að öll sveitarfélög leggist sameiginlega á árar. Allir Eyjamenn sem upplifðu þessa örlagaríku nótt fyrir hálfri öld hafa einstæða sögu að segja. Gosminjasafnið Eldheimar í Vestmannaeyjum er afar áhrifaríkt og geymir mikla sögu. Heimildir um eldgosið eru í útvarps- og sjónvarpsviðtölum víða um heim, prentmiðlum, vísindagreinum o.fl. En vonandi kemur að því að heildstæð útgáfa verði tekin saman um sögu Vestmannaeyja- gossins. Reykjavíkurborg býður Vest- mannaeyinga nær og fjær hjartan- lega velkomna á Menningarnótt Reykjavíkurborgar 2023. Ágætu Eyjamenn, landsmenn allir. Við minnumst þess nú saman að hálf öld er liðin frá hamför- um sem dundu yfir byggðina á Heimaey. Eldgos hófst öllum að óvörum. Á einni nóttu og fram eftir degi tókst að forða íbúum frá þeirri ógn sem vofði yfir. Mildi var að vel viðraði þar og þá, flot- inn í höfn og flóttinn gekk vel. Frá upphafi gætti þess eindregna vilja að þau sem það vildu myndu snúa aftur, að líf myndi aftur ganga sinn vanagang í mikilvægri verstöð, mikilvægum bæ. Allan þann tíma sem gosið geisaði var barist við ógnvaldinn. Vissulega var tjónið gríðarlegt en dugn- aðarforkar björguðu þó því sem bjargað varð. Hinn mikla örlagadag fyrir fimmtíu árum mælti forseti Ís- lands til Eyjamanna og þjóðarinn- ar allrar. Kristján Eldjárn lét í ljós þá skýru von að mannlíf myndi aftur blómgast í Vestmannaeyjum. Hann minnti líka á þann einhug sem við Íslendingar búum yfir þegar að okkur er sótt, þegar nauðsyn krefur að fólkið í landinu standi saman. „Það þarf minna en þessi ósköp,“ sagði forseti, „til að Íslendingar finni að þessi fámenna þjóð er líkust stórri fjölskyldu sem veit að það sem á einn er lagt, það er lagt á alla.“ Þessi orð eru enn í góðu gildi. Gosinu lauk og því munum við fagna með virktum í sumar. Fólk sneri margt til baka og í Eyjum er sem fyrr öflugt samfélag. Nábýlið við náttúruöflin er óbreytt en nú ættum við að vera betur búin und- ir hvers kyns vá. Því ráða vísindi og aukin þekking en sem fyrr skipta eining og djörfung sköpum þegar vandi steðjar að. Íbúar þessa lands munu aldrei gleyma þeim hremmingum sem dundu yfir á Heimaey fyrir hálfri öld. Gleymum ekki heldur þeirri samstöðu sem þjóðin sýndi þá og gleymum ekki atbeina allra þeirra sem lögðu svo mikið á sig við björgunarstörf og endurreisn byggðar á eyjunni fögru. Ávarp forseta Íslands Guðni Th. Jóhannesson Stöndum saman þegar nauðsyn krefur Borgarstjóri Reykjavíkur Dagur B. Eggertsson Reykjavík og Vestmannaeyjar Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.