Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.01.2023, Page 9

Fréttir - Eyjafréttir - 19.01.2023, Page 9
19. janúar 2023 | | 9 Eyjamenn, sem komnir eru nokkuð yfir 50 ár í aldri, muna nær allir hvar þeir voru gosnóttina ægilegu 23. jan. 1973, hvernig hún leið og hvað þeir tóku sér fyrir hendur næstu daga. Þetta á við bæði um þá sem staddir voru í Vestmannaeyjum nóttina örlaga- ríku og líka hina sem voru annars staðar, við vinnu eða í skóla í Reykjavík eða erlendis. Margar slíkar frásagnir eru til, munnlegar og skriflegar. Óvæntur atburður og óvissa Stilling og æðruleysi Eyjamanna þessa nótt var einstætt, um það eru allir sammála sem í Eyjum voru. Enginn tapaði sér en margir voru dofnir, sumir hræddir. Fáir hugsuðu skýrt hvað skynsam- legast væri að gera, svo sem hvað skyldi hafa með sér er þeir yfirgæfu hús sín. Ekki nema von, svo óvænt var eldgosið austan í Helgafelli, örskammt frá byggð, og enginn vissi þá hvað biði Vest- manneyinga, hvort þeir kæmust heim næsta dag, eða kannski aldrei, hvort eigum þeirra mætti bjarga eða ekki. Og alger óvissa var þá um hvort gosið yrði langt eða stutt, háskalegt eða hættu- laust. Gosið breytti öllu í Eyjum Gosið raskaði byggðinni og lífi allra Eyjamanna. Meirihlutinn sneri aftur heim, nokkrir fljót- lega, aðrir seinna en sumir aldrei þótt gosinu lyki og búið væri að hreinsa bæinn að mestu leyti. Röskur þriðjungur af um 5200 íbúum settist að annars staðar, ekki síst Austurbæingar. Margir sem sneru aftur gátu gengið að eignum sínum, í misjöfnu ástandi þó, en aðrir, sem misstu hús sín, fluttu sig til innan bæjar eða byggðu sér ný hús vestur á eyju. Nýtt fólk flutti líka í bæinn eftir gosið. Sögur af gosnóttinni Frásagnir af gosnóttinni eru allar áhugaverðar. Atburðurinn var svo átakanlegur að þannig hlýtur það að vera. Sumar sögur eru mergjaðar og hrífa hlustand- ann eða lesandann. Margar eru áþekkar því að leið flestra var hin sama: niður á bryggju og með bátunum í Þorlákshöfn og þaðan í rútu til Reykjavíkur. En hver saga hefur sinn blæ og segir jafnframt eitthvað um sögumanninn og mennskt eðli við svo ógnvekjandi aðstæður. Einn flokkur gossagna er af þeim Vestmanneyingum sem dvöld- ust erlendis þessa nótt og fengu fregnir af gosinu og ástvinum sínum eftir ýmsum leiðum, seint eða snemma, oft meira og minna brenglaðar, og urðu sumir hverjir fyrir verulegu áfalli. Fjarskipti voru þá fábrotin á nútímavísu, hvorki farsímar né snjalltæki. Hefði sú tækni verið komin 1973 hefðu allir fengið fregnir af gosinu um leið, með hljóði og mynd, hvar sem þeir voru staddir á jarðarkringlunni, áreiðanlegar fréttir um að allir hefðu bjargast. Í þennan flokk gossagna mætti safna meira efni, sem er með vissu óskráð enn, því að þær sýna flestar hve sterk tengsl margt Eyjafólk hafði, og hefur enn, við heimabyggð sína. Úti á miðju Kyrrahafi Ein áhrifamesta frásögnin af þessu tagi er af skipshöfninni á Vestmannaey VE 54. Gosnóttina var hún á heimleið frá Japan með nýjan togara Bergs-Hugins, stödd á Kyrrahafi, miðja vegu milli Hawaii og Panama, á 50 daga siglingu sem þá var tæplega hálfn- uð. Allir átta skipverjarnir voru Vestmanneyingar nema einn. Af tilviljun heyrðu þeir fyrstu fréttir af atburðunum heima í útvarpsstöð að kvöldi 22. jan., þ.e. kl. 5 eða 6 að morgni hins 23. jan. heima í Eyjum. Fréttirnar voru óljósar í fyrstu en skýrðust og reyndust allar úr lagi færðar, Heimaey hefði sprungið („ex- ploded“) og sokkið, höfnin lokast, nokkrir menn farist o.s.frv. Má nærri geta hvernig mönnum um borð í Vestmannaey varð við og leið þar til þeim bárust hálfum sólarhring síðar sannar fregnir af gosinu og afdrifum Eyjamanna með viðtölum á útvarpsstöðinni við íslenska heimildamenn. Nóg var samt. Allir skipverjar héldu ró sinni og sumir áttu bágt með að trúa í fyrstu. Frásagnir skipverja hafa birst í ýmsum blöðum en hér er byggt á því sem Sverrir Gunn- laugsson segir mér. Gísli Pálsson frá Bólstað var við háskólanám í Manchester 1973 og segir frá því í bókinni Fjallið sem yppti öxlum (102.-105. bls.) hvernig hann fékk fyrstu fregnir af gosinu, og þá að eyjan væri að klofna og sökkva í sæ, og svo hvernig hin sanna mynd af atburðunum skýrðist smám saman fyrir honum næsta dag. Fleiri frásagnir af þessu tagi eru til á prenti. Helgi Bernódusson: Gosnótt í Georgíu Eldgosið í Eyjum um miðjan dag 23. jan. 1973 eins og það blasti við Torfa Haraldssyni úr Friðarhöfn. Um sama leyti voru greinarhöfundi í annarri heimsálfu sögð tíðindi frá Íslandi. Það væsti ekki um Rótarý-stúdentinn í Georgíu. Greinarhöfundur við hús Matt- ox-hjónanna sem sáu á vegum Rótarý-klúbbsins um Íslendinginn 1972-1973. Helgi Bernódusson AÐSEND GREIN:

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.