Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.01.2023, Blaðsíða 10

Fréttir - Eyjafréttir - 19.01.2023, Blaðsíða 10
10 | | 19. janúar 2023 Rótarý-stúdent Veturinn 1971-72 var ég við nám í Háskóla Íslands en kom heim til Eyja í jólafrí. Þriðja í jólum álp- aðist ég á fund Rótarý-klúbbsins sem gestur Haralds Guðnasonar bókavarðar. Fundurinn var haldinn á Hótel Hamri sem svo hét þá, í Tungu (áður Magnúsarbakarí) við Heimagötu 4. Veitingasalurinn var áður rúmgóð íbúð Sigmundar Andréssonar bakara og fjölskyldu hans en ég var þar tíður gestur á æskuárum. Eyjólfur Pálsson skólastjóri var forseti klúbbsins og á dagskrá var m.a. að tilnefna stúdent úr Eyjum sem umsækjanda um árs námsdvöl í Georgíuríki í Banda- ríkjunum næsta vetur á vegum „umdæmis 692“ þar vestra. Af einhverri rælni, og af því að ég var á staðnum, kallaði einhver nafn mitt. Já, því ekki það? Úr varð og gengið var frá umsókn minni í skrifstofu Eyjólfs í Gagn- fræðaskólanum á gamlársdag og nauðsynleg önnur gögn og skírteini send með. Leið svo og beið, ekkert fréttist frekar fyrr en komið var fram yfir páska 1972 að mér var tilkynnt með símtali að umsóknin hefði verið samþykkt og ég skyldi koma mér vestur upp úr miðjum ágúst. Ég hlýddi því og flaug vestur meðan þeir sátu að tafli, Fischer og Spassky, í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Allt gekk vel og ég var skráð- ur í lítinn einkarekinn háskóla, LaGrange College, í litlum bæ suðvestur af höfuðborginni Atlanta. Þar tóku Rótarý-menn vel á móti mér og allt gekk eins og í sögu um haustið og fram yfir áramót, mikið ævintýri og holl reynsla. Georgíuríki Georgía var eitt þeirra 13 ríkja sem stofnuðu Bandaríki Norð- ur-Ameríku 1789. Það er stórt land, hálfu stærra en Ísland, og frjósamt, íbúar voru 1973 um 5 milljónir, en eru nú nærri 11 milljónir. Georgía telst til Suðurríkjanna og stóð með þeim í borgarastríðinu upp úr 1860. Það er í „biblíubeltinu“ sem kallað er og þar þykja menn íhaldssamir og strangtrúaðir; kynþáttafordómar gagnvart blökkumönnum voru enn áberandi 1973. Georgía er í tímabelti með öðr- um ríkjum á Austurströndinni, þar er „eastern standard time“ (EST eða ET), klukkan er 5 stundum á eftir okkar á Íslandi en 4 á sumrin. Lexíur og kjúklingalæri Mánudaginn 22. jan. 1973 gekk allt eins og venjulega hjá mér þar vestra. Helgin hafði verið róleg. Ég fylgdist í sjónvarpi með innsetningarathöfn endurkjörins forseta í Washington á laugardeg- inum 20. jan. Þá var mikið um dýrðir í höfuðborginni Was- hington en hvorugur þeirra sem þá unnu embættiseiða, Nixon forseti eða Agnew varaforseti, lyga- laupurinn eða mútuþeginn, entust lengi í embætti þótt kosningasigur þeirra þá um haustið væri einn sá glæsilegasti í sögunni. Ég notaði sunnudaginn þessa helgi til gönguferðar um nágrennið en sat annars yfir lexíum mínum fyrir vikuna. Þennan mánudag sótti ég tíma í þeim greinum og námskeið- um sem ég var skráður í og sat síðdegis við lestur og verkefni í herbergi mínu á stúdentagarðin- um, Broadway House, eins og venjulega og skrafaði þess á milli við félaga mína. Kvöldmatur var reiddur fram fyrr en ég átti að venjast heima, þ.e. kl. 5. Maður var orðinn svangur aftur fyrir svefninn. En fljótt komst á sú venja að ég skytist með einum vina minna, Henry Wynn, út í sjoppu er leið á kvöld. Við keyptum eitt kjúklingalæri hvor og hrísgrjón á 25 cent, „quarter“ (fjórðung úr dollara). Krásina hituðum við á prímusi sem Henry hafði með sér að heiman frá Wa- ycross, smábæ í Suður-Georgíu. Roe vs. Wade Eftir hinn snemmframreidda kvöldmat í mötuneytinu fór ég oftast niður í lítinn sal á 1. hæð garðsins þar sem stúdentar söfnuðust saman, tóku skák eða spiluðu billjard og horfðu á kvöld- fréttir í sjónvarpi. Þrjár stöðvar náðu þá til alls hins víðáttumikla lands þar vestra, NBC, ABC og CBS. Skemmtilegast var að horfa á CBS kl. 6.30 með hinn fræga fréttalesara Walter Cronkite. Þegar útsending hófst var hann alltaf að koma sér í jakkann og laga sig til, eflaust til þess að sýna okkur áhorfendum hvað hann væri óstressaður. Og ekki brást hvernig Cronkite lauk fréttatímunum, þennan dag eins og aðra: „And, that‘s the way it is, Monday, Janu- ary 22, 1973. Good night.“ Síðdegis mánudaginn 22. jan. 1973 barst sú stórfrétt að Hæstiréttur Bandaríkjanna hefði kveðið upp einn frægasta dóm í sögu sinni, Roe vs. Wade, um að það væri andstætt stjórnar- skrá að sambandsríkin bönnuðu fóstureyðingar með lagasetningu á ríkisþingunum. Sjónvarpsstöðv- arnar unnu fyrir aðalfréttatíma sína ítarlega umfjöllun um þennan afdrifaríka dóm sem margir höfðu beðið eftir, jafnt baráttumenn fyrir rétti kvenna til þungunarrofs sem andstæðingar hans; málið klauf þjóðina þá eins og nú. Mikið fréttaefni á ferð. Johnson forseti deyr Nokkru fyrir kl. 6 um kvöldið var dagskrá sjónvarpsins rofin. Cronkite á CBS var kominn á skjáinn í beinni útsendingu og enn með símtól við eyrað. „Bíddu augnablik á línunni“ sagði hann og lagði tólið frá sér, horfði framan í sjónvarpsvélarnar og sagði alvörugefinn: „Okkur bárust rétt í þessu þær fréttir að Lyndon Johnson, fyrrv. Bandaríkjaforseti, hefði dáið úr hjartaslagi á búgarði sínum í Texas síðdegis í dag.“ Johnson var þá útslitinn maður eftir stjórnmálaþref frá tvítugsaldri og ærulaus eftir Víetnam-stríðið. Hann var aðeins 62 ára gamall. Þarna var komin önnur frétta- bomba þessa dags sem varð okkur því minnisstæður. Andlát forsetans fyrrverandi skyggði á allt annað og setti dagskrána úr skorðum. Allar þrjár stöðvarnar voru fullar af fréttum um málið, hver rak aðra, og allar með frétta- auka þar sem ævi forsetans var lýst og spekingar spjölluðu um hverju hann hefði komið í kring og hver eftirmælin yrðu. Höfuðið dofnar Ég hlustaði af lifandi áhuga á hvert orð sem sagt var í sjón- varpinu. Fréttaútsendingum þetta kvöld, 22. jan. 1973, lauk ekki fyrr en liðið var fram á 9. tímann, en þá var klukkan að ganga tvö að nóttu á Fróni. Hellist þá allt í einu yfir mig slíkur doði að ég nærri leið út af þar sem ég sat. Máttlítill og sljór brölti ég þó upp á herbergi eins og þungölvaður maður og hlunkaðist ofan í rúm og steinsofnaði, lá eins og rotaður selur. Einmitt á sömu mínútum, Setið yfir lexíum á stúdentagarðin- um. Pípur voru ekki algengar í Bandaríkjunum og þá sjaldan þær sáust voru þær notaðar til að reykja ýmislegt annað en tóbak. Patsy Cannon, stærðfræði-stúdent frá LaGrange í Georgíu. Hún sagði greinarhöfundi óvæntar fréttir af eldgosi á Íslandi að morgni 23. jan. 1973. Fyrsta fréttin um eldgosið í Vestmannaeyjum birtist þegar 24. jan. 1973 í stærsta dagblaði Georgíu, Atlanta Constitution. Þar var ýmislegt ónákvæmt og m.a. sagt að vísindamenn óttuðust að eyja spryngi og sykki í Atlantshafið. Henry Wynn frá Waycross í Georgíu, samstúdent og hjálplegur félagi. Í Georgíu féll léttur snjór einn dag í febr. 1973 og var þá uppi fótur og fit meðal stúdenta.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.