Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.01.2023, Qupperneq 14

Fréttir - Eyjafréttir - 19.01.2023, Qupperneq 14
14 | | 19. janúar 2023 Guðlaugur Gíslason, bæjarfull- trúi, bæjarstjóri og þingmaður var í framlínunni þegar gos hófst á Heimaey 23. janúar 1973. Guðlaugur sat ekki auðum höndum eftir starfslok og tók sig meðal annars til og vélritaði upp allar fréttir á Rík- isútvarpinu fyrsta sólarhring gossins. Fékk allar upptökur frá fréttastofunni og sló inn á ritvélina sína. Afrakstur upp á 130 síður sem Jón Haukur, sonur Guðlaugs færði Sagn- heimum í haust. Eyjafréttir fengu leyfi Jóns Hauks til að birta sýnishorn úr samantekt Guðlaugs en í heild eru fréttir Ríkisútvarpsins þessar fyrstu klukkustundir gossins mikilvæg heimild um þann ógnaratburð sem Heima- eyjargosið var. Gos hafið í Vestmannaeyjum Þulur í morgunútvarpi: Útvarp Reykjavík. Um klukkan tvö í nótt hófst eldgos í Heimaey. Mikið hraungos er úr sprungu, sem er í brekkunni ofan við Helgafell, að- eins ofan við byggðina. Sprungan liggur frá Kirkjubæ og allt suður að Skarfatanga, sem er rétt austan við flugbrautarendann. Og áfram er haldið: Að sögn Sigurðar Þórarinssonar jarð- fræðings rennur hraunið einkum til austurs í sjó fram, rétt norðan Flagnatanga. Sprungan er 1500 til 1800 metra löng og er samfellt gos úr sprungunni. Um kl. 22 í gærkvöldi urðu menn varir við jarðskjálfta í Vestmannaeyjum, en fæstir munu hafa búist við því, að eldgos væri á næsta leyti. En samkvæmt upp- lýsingum Sigurðar Þórarinssonar telur hann að ekki hafi gosið á Heimaey síðustu 4000 til 5000 árin. Fólk yfirgaf hús sín fljótlega. Konur, börn og gamalmenni fóru um borð í bátana í Vestmanna- eyjahöfn, sem nú eru á leið til lands og þyrla frá varnarliðinu flutti sjúklinga úr sjúkrahúsinu. Enginn er talinn í lífshættu í Eyj- um, talið er að milli 3000 til 4000 manns hafi nú yfirgefið Heimaey en íbúar þar munu vera milli 5000 til 6000. Flugvélar frá Flugfélagi Íslands fóru í nótt til Eyja og eru fyrstu vélarnar komnar með Vestmanna- eyinga til Reykjavíkur. Hálftómar flugvélar eru enn á flugvellinum í Vestmannaeyjum og eru Vest- mannaeyingar beðnir að hraða sér út á flugvöllinn þar sem völlurinn verður brátt ófær. Þetta er í nýrri orðsendingu frá Almannavörnum. Þá hafa bátar frá Þorlákshöfn og Grindavík farið til Vestmannaeyja og þrjú af skipum Eimskipafélags Íslands héldu í nótt til Eyja og verða þar laust eftir hádegið í dag. Almannavarnir ríkisins höfðu samband við sjúkrahúsin í Reykjavík, svo og öll hótelin, og hafa beðið starfsmenn að vera við öllu búna. Allmargir strætisvagnar munu flytja fólk frá Þorlákshöfn til Reykjavíkur og er Þrengslavegur- inn lokaður allri annarri umferð. Vandamenn brottfluttra Vest- mannaeyinga í Reykjavík eru beðnir að athuga það, að ættingjar þeirra frá Eyjum verða fluttir í Ár- bæjarskóla og Melaskóla fyrst um sinn. Eru vandamennirnir beðnir að vitja ættingja sinna þar. Allir mannflutningar til Vest- mannaeyja eru stranglega bannaðir og er skorað á eigendur einkaflugvéla að fara ekki austur í vélum sínum. Og svo er hér orðsending frá Landspítalanum: Von er á 30 til 40 sjúklingum til Landspítalans frá Vestmannaeyjum. Eru allar hjúkrunarkonur, sjúkraliðar og annað starfsfólk, sem aðstoð getur veitt, beðið að hafa samband við forstöðukonu spítalans. Almannavarnir beina þeim tilmælum til fólks að vera ekki að leita vandamanna sinna frá Vestmannaeyjum. Það er búið að flytja á milli 3000 til 4000 manns frá Vestmannaeyjum til lands og það er verið að flytja þetta fólk til Reykjavíkur. Milli 30 til 40 áætlunarbílar á vegum sérleyfishafa eru farnir til Þorlákshafnar til þess að flytja þaðan Vestmannaeyinga. Það get- ur leitt til þess, að sérleyfisferðir í nágrenni Reykjavíkur raskist í dag. Þulur: - Útvarp Reykjavík. Klukkuna vantar fjórar mínútur í átta og Vestmannaeyingar, sem koma til Þorkákshafnar eru beðnir að athuga það, að þeir geta fengið hressingu í Barnaskólanum og matstofum Meitilsins og Glettings áður en þeir halda til Reykjavíkur. Öll hús í Þorlákshöfn standa þeim raunar opin, samkvæmt upplýs- ingum sem fréttastofan fékk núna fyrir skömmu. Vilhelm G. Kristinsson, frétta- maður segir frá fundi Almanna- varnarráðs ríkisins og skýrði frá aðstæðum vegna eldgossins í Vestmannaeyjum. Það var kona í Eyjum, sem fyrst tilkynnti um gosið og hringdi í slökkviliðið þar sem hún hélt að eldur væri í húsi. Þegar svo fregnir bárust um gosið var Almannavarnarráð kvatt saman laust fyrir kl. þrjú í nótt. Fyrsti báturinn frá Eyjum lagði að bryggju í Þorlákshöfn um kl. 7.20 en þá voru 37 áætlunarbílar komnir þangað til þess að flytja fólkið til Reykjavíkur. Um kl. sjö var talið, að um 4000 manns hafi verið fluttir frá Vestmannaeyjum áleiðis til lands með skipum og flugvélum. Sigurður Þórarinsson // Jarðfræðingur: Gæti ekki haft heppilegri stefnu eða legu Næst var rætt við Sigurð Þórarins- son, jarðfræðing sem var nýkom- inn frá Eyjum með Birni Pálssyni flugmanni. „Þetta er heilmikið sprungugos og sennilega mjög svipað og gosin, sem við þekkjum frá 1963 til 1967 (Surtseyjargos- in). Má heita allt á þurru landi og er þess vegna hreint flæðigos. En Skráði allar fréttir Ríkisútvarpsins fyrsta sólarhringinn: Góð innsýn í það sem virkilega gerðist Magnús H. Magnússon, bæjarstjóri og Martin Tómasson í Höfn á nýja hrauninu 1973. Mynd Svavar Steingrímsson.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.