Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.01.2023, Blaðsíða 18

Fréttir - Eyjafréttir - 19.01.2023, Blaðsíða 18
18 | | 19. janúar 2023 23. janúar 1973 Öll starfsemi Vinnslustöðvar- innar lagðist af og byrjað var að flytja vélar, tæki og tól í land. Verkið var stöðvað að undirlagi framkvæmdastjóra fyrirtækisins, Sighvats Bjarnasonar, gegn vilja stjórnar Viðlagasjóðs. 28. maí 1973 Stjórn Vinnslustöðvarinnar kom saman í Reykjavík og ræddi möguleika á að hefja á ný fisk- vinnslu á vegum fyrirtækisins í Eyjum. Í framhaldinu var farið að taka á móti fiski til söltunar. 23. október 1973 Fiskvinnsla til frystingar hófst á nýjan leik í Vinnslustöðinni. Fá orð og einföld framsetning á miklum tíðindum og dramatískum sviptingum á örlagatímum fyrir- tækis og byggðarlags. Öll helstu tæki og og vélar Vinnslustöðvarinnar voru með öðrum orðin fjarlægðar úr húsum fyrirtækisins og flutt til Reykja- víkur eftir að gosið hófst. Sighvati framkvæmdastjóra Bjarnasyni mislíkaði mjög ráðslagið og framkvæmdin. Í apríl 1973 fékk fékk hann stjórn fyrirtækisins til að samþykkja að stöðva niðurrif og brottflutning tækja, í and- stöðu við stjórn hins máttuga Viðlagasjóðs. Sighvatur taldi að náttúruhamförum myndi linna innan tíðar og mun fyrr yrði unnt að koma rekstri Vinnslu- stöðvarinnar í gang ef tæki og tól væru þar á sínum stað frekar en í geymslum fyrir sunnan. Bjartsýni framkvæmdastjórans smitaði stjórnarmenn fyrirtækisins. Strax í maímánuði 1973 var farið að huga að því að flytja tól og tæki aftur heim til Eyja og taka á ný við fiski og vinna hann þar. Sighvatur sjálfur og Guðmunda Torfadóttir, eiginkona hans, fluttu búferlum frá heimili sínu í Ási í verbúðir Vinnslustöðvarinnar og héldu þar til nær allan gostímann. Undir sama þaki bjuggu líka þeir sem unnu við að bjarga verð- mætum og ryðja vikri af þökum Vinnslustöðvarinnar. Fyrst um sinn var einungis tekið á móti fiski til söltunar en mánudagurinn 22. október 1973 markaði tímamót sem skráð eru á spjöld Vinnslustöðvarinnar. Þá var landað alls liðlega 10 tonnum úr Eyjabátunum Danska Pétri, Skuld og Hrauney til vinnslu daginn eftir. Einhverjir hnökrar voru í vinnsluferlinu til að byrja með en það voru verkefni til að leysa en ekki vesen til að pirrast yfir. Byrjað var að flaka í vélum fyrir hádegi og í vinnslusalnum voru 15 stúlkur við snyrtingu og tilheyrandi. Fiskinum var pakkað og honum komið í frost. Þarna fóru hjól atvinnulífsins að snúast hægt en örugglega eins og það myndi kallast á yfirlætislegu viðhafnarmáli. Hér hefur orða- lagið hins vegar raunverulega og innihaldsríka merkingu. Brotsjór á Þórkötlu GK varð örlagavaldur Víkur þá sögu til Fiskimjölsverk- smiðjunnar sem Vinnslustöðin og Fiskiðjan áttu í sameiningu. Har- aldur Gíslason var skrifstofustjóri fyrirtækisins og vel að merkja, í framhjáhlaupi: Halli Gísla er enn að, hálfri öld síðar, liðlega áttræð- ur. Hann mætir á kontórinn sinn í Vinnslustöðinni, ræðir við erlenda kaupendur í síma og selur mjöl og lýsi út og suður. Hann er elsti og langreyndasti maður í sínum bransa í allri veröldinni. Þegar Vinnslustöðin fagnaði sextugsafmæli árið 2006 leit Halli Gísla um öxl og rifjaði upp gostímann. Á vettvangi hans var líkt farið og í Vinnslustöðinni, stjórnendur lentu upp á kant við Viðlagasjóð um hvað gera skyldi. „Ég man vel eftir því að Þorsteinn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Fiskimjölsverksmiðjunnar, var harðákveðinn í að koma starf- seminni aftur í gang eins fljótt og auðið væri. Fyrirmæli voru gefin um að flytja tæki og tól úr fiskvinnslufyrirtækjum til Reykjavíkur, þar á meðal úr Fiskimjölsverkmiðjunni, en því neituðum við og komumst upp með það! Við fengum svo leyfi til að hafa 20-30 starfsmenn í eynni til að sinna björgunarstörfum en gæta í leiðinni eigna fyrirtækis- ins. Þar með höfðum við tæki og mannskap til að hefja mjöl- og fiskvinnslu ef slíkt tækifæri gæfist á annað borð.“ Tækifærið gafst og það mun fyrr en ætla mátti en kom ekki til af góðu. Loðnuskipið Þórkatla frá Grindavík fékk á sig brotsjó skammt frá Vestmannaeyjum og kom þar til hafnar 16. febrúar 1973 með fullfermi. Halli Gísla rifjar áfram upp: „Það vildi svo til að þennan dag var stjórn Viðlagasjóðs stödd í Vestmannaeyjum. Ég snaraðist á hennar fund og sagði að við vildum taka á móti farminum úr Þórkötlu og starta bræðslunni. Fát kom á Viðlagasjóðsmenn og Minningabrot tengd Vinnslustöðinni og Fiskimjölsverksmiðjunni Vonir vakna í birtu af bálinu 1. mars 1973. Gos í fullum gangi en í forgrunni sést reykur stíga upp frá Fiskimjölsverksmiðjunni. Bræðsla hafin í Eyjum! 24. febrúar 1973. Loðnu landað til bræðslu. Fyrsta loðnan eftir gos barst til Eyja 16. febrúar 1973. 30. maí 1973. Halli Gísla leyfði skegginu að vaxa villt þar til síðasta mjölfarminum var skipað út.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.