Fréttir - Eyjafréttir - 09.11.2023, Qupperneq 10
10 | | 9. nóvember 2023
Það var vel mætt í Sögu og súpu
í Sagnheimum á sunnudaginn
þar sem Guðrún Erlingsdóttir
fékk til sín gesti til að rifja
upp upphafs gossins þann 23.
janúar1973. Tilefnið er að í ár
eru 50 ára frá goslokum. Með
henni voru Marinó Sigursteins-
son, Hallgrímur Tryggvason og
hjónin Sólveig Adolfsdóttir og
Þór Vilhjálmsson.
Áður en að spjallinu kom
sungu Stuðlar nokkur lög við
undirleik Kittyar Kovács sem
var vel við hæfi. Sjálf byrjaði
Guðrún með því að lesa upp úr
gosminningum Sigríðar Högna-
dóttur, sem var 16 ára í gosinu.
Áhugaverð frásögn ungrar
stúlku sem var í Eyjum mest allt
gosið við hin ýmsu störf.
Val Guðrúnar á viðmælendum
var ekki af handahófi því Mara
og Hallgrími var ætlað að lýsa
viðhorfi ungra manna í gosinu
en þá voru Þór og Dollý komin
með tvö börn, eins árs og sex
ára.
Mari fór aldrei frá Eyjum í
gosinu nema skreppitúra til
Reykjavíkur. Hann hafði frá
ýmsu skemmtilegu að segja.
Meðal annars þegar hann var
beðinn um að fara heim á Faxa-
stíginn og ná í föt fyrir fólkið
uppi á landi. Skaust heim, setti
föt í tösku sem voru smóking
af pabba sínum og rauður
sparikjóll af mömmu. Alveg
bráðnauðsynlegt við þessar
aðstæður.
Hallgrímur fór upp á land en
svaraði kallinu þegar auglýst
var eftir járniðnaðarmönnum úti
í Eyjum. Hann hafði frá ýmsu
skemmtilegu að segja en líka
því erfiða, þegar fólk horfði
á húsin sín verða hrauninu að
bráð. Fjölskylda Hallgríms átti
hús í Grænuhlíðinni sem pabbi
hans hafði byggt. Það fór undir
hraun og sagði Hallgrímur að
pabbi hans hefði aldrei sætt sig
við það.
Dollý fór að heiman með
börnin tvö, tvær bleyjur og pela
og um borð í Ásver VE þar
sem Þór var stýrimaður. Um
borð voru 180 manns og mikil
sjóveiki. Versta sjóferð sem
hún hefur nokkru sinni farið en
aldrei hefur henni liðið verr en
þegar hún stóð ein á bryggjunni
í Þorlákshöfn. Ásver á leið til
baka. Ekkert bakland og óvissan
algjör. Flóttafólk í orðsins
fyllstu merkingu.
Þór sagði trúnað við útgerðina
hafa verið mikla og ótrúlega en
í hönd fóru tíu dagar á flutn-
ingi á búslóðum frá Eyjum til
lands. Á meðan urðu konurnar
að bjarga sér sjálfar. Vertíðin
var ágæt en samskiptin við
fjölskylduna ekki mikil. Stefnan
var alltaf að flytja aftur heim til
Eyja og þau sjá ekki eftir því þó
allt hafi verið svart þegar heim
var komið og þjónusta lítil.
Gott framtak hjá Guðrúnu og
þakkarvert. Eitt púslið í þann
mikla sagnabálk sem til varð
þegar eldur kom upp á Heima-
ey 1973. Sögur 5000 Eyjafólks
sem í einni hendingu urðu
flóttafólk í eigin landi.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi
TRYGGVI Á. SIGURÐSSON
Vélstjóri
Vestmannaeyjum
Lést á dvalarheimilinu Hraunbúðum Vestmannaeyjum
31.október. Útförin fer fram frá Landakirkju föstudaginn
10.nóvember kl 13:00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Hollvinasamtök Hraunbúða.
Ólafur K. Tryggvason Björg Pétursdóttir
Hallgrímur Tryggvason Ásdís Sævaldsdóttir
Klara Tryggvadóttir
Kristný S. Tryggvadóttir Gretar Þór Sævaldsson
barnabörn og barnabarnabörn
Safnahelgin sannkölluð menningarveisla
Á föstudaginn í Sagnheimum
kynntu Benedikt Þór Eyþórs-
son, Bjarni Rúnar Kristjánsson
og Breki Georg Freysson
verkefnið, Húsin undir hrauni.
Það hafa þeir unnið með
aðstoð Frosta Gíslasonar í Fab
Lab. „Þeir félagar, sem eru tíu
og tólf ára gamlir eru miklir
áhugamenn um húsin sem eru
horfin. Þeir hanna og prenta
húsin út í þrívíddarprentara
af mikilli nákvæmni. Einnig
upplýstu þeir gesti um íbúa,
eigendur og hvað starfsemi
hefði verið í húsunum,“ sagði
Íris Róbertsdóttir bæjastjóri
um framtak þeirra félaga.
Í framhaldinu opnaði Íris
sýninguna, Til hafnar sem er
ljósmyndasýning af bátunum
sem sigldu frá Vestmanna-
eyjum aðfararnótt 23. janúar
1973. Sýningastjórar eru
Joe Keys og Vala Pálsdóttir.
Sýningin var hluti af framlagi
Vestmannaeyjabæjar sem var
heiðursgestur á menningarnótt
í ágúst síðastliðnum.
Húsin undir hrauni fram
í dagsljósið
Þessir frábæru drengir hafa
fengið að njóta sín í FabLab hjá
Frosta Gísla. Þeir eru Bjarni Rún-
ar Kristjánsson fæddur 2013.,
Benedikt Þór Eyþórsson f. 2011,
og Breki Georg Freysson f. 2011.
Fjölmenni var við opnun sýningarinnar, Til hafnar, sem Íris opnaði.
Myndir Íris Róbertsdóttir.
Sögur og upplifun
Eyjafólks í gosinu
Það var athyglisvert, stundum fyndið en líka harmþrungið að hlýða á frá-
sagnir þeirra sem sátu á palli. Hallgrímur, Marinó, Guðrún, Þór og Sólveig.
Stuðlar áttu sinn þátt í að gera
stundina eftirminnilega.
Í hópi gesta voru margir sem
upplifðu gosið.