Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2023, Side 4
4 | | 7. desember 2023
Kveikti á jólatrénu á Stakkó
E Y J A M A Ð U R I N N
Mikill fjöldi fólks var saman-
kominn þegar kveikt var á
jólatrénu á Stakkagerðistúni
þann 24. nóvember. Hefð hef-
ur skapast fyrir því að eitt af
jólabörnum okkar Eyjamanna
kveiki á trénu. Í ár var það
Eyjólfur Pétursson sem fékk
að kveikja á trénu en hann á
afmæli 27. desember og er því
alveg að verða 7 ára. Eyjólfur
er eyjamaður vikunnar.
Fullt nafn: Eyjólfur Pétursson
Fjölskylda: Mamma mín og pabbi
heita Margrét Þorsteinsdóttir og
Pétur Eyjólfsson.
Hefur þú búið annarsstaðar en í
Eyjum: Nei.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að horfa á í sjónvarpinu? Teikni-
myndir og Netflix.
Í hvaða bekk ertu? 2.KM.
Hvað ertu gamall? 6 ára er alveg
að verða 7 ára.
Aðaláhugamál? Lego, fótbolti og
handbolti.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Jólalög.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Leika við vini mína.
Hvað óttast þú mest? Ég er myrk-
fælinn.
Ertu að æfa eitthvað? Já, fótbolta
og handbolta.
Er gaman að eiga afmæli á jólun-
um? Já, mjög gaman.
Hvernig var að fá að kveikja á
jólatrénu? Geggjað gaman.
Hvað ætlar þú að gera um jólin?
Borða góðan mat, opna jólagjafir
, vera með fjölskyldunni minni og
halda upp á afmælið mitt.
Hvað langar þig í í jólagjöf? Nin-
tendo Switch og Lego.
Af hverju höldum við upp á jólin?
Vegna þess að Jesús fæddist á
jólunum og svo að jólasveinarnir
geti skemmt sér og gefið í skóinn.
Hver er uppáhalds jólasveinninn
þinn? Allir.
Eitthvað að lokum? Gleðileg jól.
E Y J Ó L F U R P É T U R S S O N
Eyjólfur Pétursson
Staðan á fasteignamarkaðinum í
Eyjum er nokkuð góð miðað við
aðstæður segir Halldóra Kristín
Ágústsdóttir fasteignasali hjá Hús
fasteignasölu. „Salan sveiflast þó
nokkuð. Í sumar var meiri eftir-
spurn eftir stærri eignum, enda
mikið af fjölskyldum að flytja til
Eyja, virkilega gaman að því. Upp
á síðkastið hefur verið ágæt sala
á minni íbúðum hjá mér en minni
hreyfing á stærri einbýlum. Það
sem virðist vera erfiðara núna eru
fyrirvararnir, og þá sérstaklega ef
það er fyrirvari um sölu á eign í
bænum. Staðan er bara allt önnur
þar, mun dýrari eignir og erfitt
fyrir fyrstu kaupendur að fá fjár-
mögnun sem hefur þá áhrif á allan
markaðinn.”
Hús sem nú er til sölu í Vest-
mannaeyjum er meðal annars
fallegt einbýlishús á Hólagötu 17.
Húsið er byggt árið 1947 og er
167,4 fm2. Búið er að endurnýja
eignina að hluta. Nýtt járn er á
þaki, gluggar endurnýjaðir fyrir
einhverjum árum og nýlegt parket
á hæðinni.
Hér til hliðar er nokkrar myndir af
eigninni sem er á vinsælum stað
í Eyjum.
Fjölskyldur flytja til Eyja
Hólagata 17 að vetri til.
Hlýlegt og nútímalegt eldhús.
Opin forstofa með nýlegu parketi.
Björt og rúmgóð stofa.
Í húsinu eru þrjú svefnherbergi. Hér
má sjá eitt þeirra.
Kisunum þykir herbergið afar
notalegt.