Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2023, Blaðsíða 10
10 | | 7. desember 2023
Bílaáhugamenn í Vestmanna-
eyjum eru fjölmargir, þegar
talið berst að rafbílaáhuga-
mönnum aftur á móti er eitt
nafn sem kemur fyrst upp í
hugann. Hér er að sjálfsögðu
verið að tala um Davíð Guð-
mundsson eða Davíð í Tölvun
eins og hann er betur þekktur.
Aldrei aftur bensínhák
Hann segist alltaf hafa verið
mikill bílaáhugamaður. „Ég, eins
og flestir á mínum aldri beið eftir
ökuskírteininu á miðnætti 17 ára
afmælisdagsins. Minn fyrsti bíll
var hinsvegar Vauxhall Viva,
sem ég lærði mikið af við að
brasa í. Ég hef átt bæði japanska
sparneytna bíla og svo einnig
ameríska eyðslumikla bíla. Átti
t.d. mjög skemmtilegan Dodge
Durango jeppa sem eyddi 44
lítrum á hundraði í innanbæj-
arakstrinum hér heima. Það tók í
budduna og þegar ég losaði mig
við hann, þá hét ég því að fara
aldrei aftur þá leið.
Fékk fyrstu Tesluna í Eyjum
Hvenær sástu fyrst fyrir þér að
eignast rafbíl? „Ég er rafmagns-
verkfræðingur að mennt, með
M.Sc.E.E. gráðu á veikstraum-
ssviði. Mitt fyrsta verkefni í
háskólanum í Álaborg í Dan-
mörku var t.d. að kanna fýsileika
á ölduvirkjun á vesturströnd
Jótlands. Ég hef fylgst með Tesla
frá upphafi, þegar þeir komu
fram með rándýra Tesla Roadster
bílinn 2008 og svo 2012 með
fjöldaframleidda Model S bílinn
sem boðaði byltingu í rafbílagerð.
Model S kostaði á bilinu 15-20
milljónir og því ekki á allra færi.
Eftir það tók við biðin langa eftir
Teslu á viðráðanlegu verði eins og
Elon Musk, aðaleigandi TESLA
hafði lofað. Árið 2017 var hægt
að leggja inn pöntun og 3 árum
síðar fékk ég draumabílinn Tesla
Model 3.“
Um var að ræða fyrstu Tesluna
í Vestmannaeyjum og er óhætt
að segja að Davíð hafi verið
ánægður með gripinn. „Í byrjun
september 2021 skipti ég svo yfir
í Tesla Model Y og seldi Hjalta
Enok ökukennara Model 3 bílinn,
þannig að ungmenni Eyjanna geta
nú lært á nýjustu rafbílatæknina.“
Kína að taka yfir markaðinn
Davíð segist fylgjast vel með
því hvað er að gerast í þessum
rafbílaheimi og þar sé ýmislegt
spennandi að gerast. „Þessi geiri
er afar spennandi og gríðarlega
margt að gerast. Því miður virðast
stóru framleiðendurnir vera að
sitja eftir, svipað og gerðist þegar
japönsku sparneytnu bílarnir
yfirtóku markaðinn. Nú sitja þeir
eftir ásamt risunum vestan hafs og
í Evrópu, því nú eru það kín-
verjarnir sem eru að taka völdin.
Í Kína eru yfir 300 rafbílafram-
leiðendur og er sá stærsti, BYD,
farinn að narta í hæla TESLA,
hvað fjöldann varðar.“
Bíllinn smíðaður utan um
tölvuna
Davíð segir þó að Tesla hafi yfir-
burði í þessum geira. „Tesla er að
sjálfsögðu í forystu og eru lengst
komnir hvað varðar tækni og
öryggi bílanna, en allar tegund-
ir Tesla bíla hafa fengið hæstu
öryggiseinkunn eftirlitsstofnana.
Nálgun TESLA var að byggja
bíl utan um tölvu og rafhlöðu, en
ekki að skipta bílvél út fyrir raf-
mótora. T.d. er tölvan í venjulegri
Teslu það fyrsta sem fer í grind
bílsins og svo fylgist tölvan með
öllu framleiðsluferlinu og lætur
vita ef eitthvað fer úrskeiðis.
Tölvan í Teslubílum er það öflug
að hún framkvæmir fleiri aðgerðir
á sekúndu, eða 10 TeraFLOPS
(10.000.000.000.000 Floating
Point Operations per second) sem
Með rafbíladellu
„Drottningarnar“ segir Davíð og á að sjálfsögðu við Tesluna og Suðurey.
” Þessi geiri er afar spennandi
og gríðarlega margt að
gerast. Því miður virðast stóru
framleiðendurnir vera að sitja eftir,
svipað og gerðist þegar japönsku
sparneytnu bílarnir yfirtóku
markaðinn. Nú sitja þeir eftir ásamt
risunum vestan hafs og í Evrópu,
því nú eru það kínverjarnir sem eru
að taka völdin.
SINDRI ÓLAFSSON
sindri@eyjafrett ir. is