Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2023, Blaðsíða 11
7. desember 2023 | | 11
er margföld samanlögð reiknigeta
allra netþjóna hjá fiskvinnslufyrir-
tækjunum í Eyjum og Vestmanna-
eyjabæ. Tölvan verður öflugri og
öflugri og þegar að Tesla gefur
út uppfærslur á hugbúnaði, þá
má segja að maður „download“i
nýjum bíl í hvert skipti. Gríðarleg
þróun í gervigreind er lykillinn
að sjálfkeyrandi bílum og það er
styttra í það en margir halda.“
Davíð segir nýjustu tölur Sam-
göngustofu sýna yfirburði TESLA
á rafbílamarkaði. Þar kemur fram
að fjöldi hreinna rafbíla er kominn
yfir 27.000 á Íslandi og þar af eru
Teslur 6.315. „Tesla Model Y er
langvinsælasti rafbíllinn enda fá
menn mest fyrir peninginn í kaup-
um á honum. Model 3 er svo í 3.
Sæti á eftir hinum vinsæla Nissan
Leaf. Í Vestmannaeyjum eru 196
rafbílar, þar af 42 Teslur og 342
tengiltvinn bílar. Það ótrúlegt að
á Heimaey séu 2.264 bifreiðar í
umferð.“
Vill Vestmannaeyjar sem
tilraunasveitarfélag
Davíð segir bílana nota gervi-
greindina til fulls og því séu
möguleikarnir fjölmargir. „Teslur
eru með 9 myndavélar, 8 sem
fylgjast með umhverfinu utan
bílsins og 1 sem vísar inn á við
og fylgist með / lærir af öku-
manninum að keyra bílinn. Allar
Teslur eru nettengdar, þannig er
engin þörf á þjónustuskoðunum,
þar sem að bíllinn/tölvan lætur
bílstjórann vita ef eitthvað kemur
upp á. Fjöldinn á heimsvísu
er að nálgast 2 milljónir og er
gervigreindin hjá Tesla að safna
upplýsingum úr öllum þeim
bílum sem eigendur leyfa. Ég
sé fyrir mér að Vestmannaeyjar
gætu orðið fyrstir til að bjóða
upp á sjálfkeyrandi farartæki á
götum bæjarins, svona einskonar
tilraunasveitarfélag. Við ættum
m.a.s. að gera út á það að vera til-
raunasamfélag, þar sem við erum
ákveðinn þverskurður af þjóðinni.
Hér er höfn og flugvöllur (lítið
notaður), öll skólastig, þokkalega
fjölbreytt atvinnulíf, með flestar
gerðir af þjónustu og tómstundum
og stækkandi fjölþjóðlegt samfé-
lag. Ég sé fyrir mér, eftir einhver
ár, nokkrar sjálfkeyrandi sendibif-
reiðar með sæti fyrir 6-8 manns
sem færu rúntinn um Eyjuna og
fólk pantar far frá A til B með
Appi í gemsanum. Það gæti dreg-
ið úr þörf á bíl númer tvö á mörg-
um heimilum. Rafhlöður rafbíla
fara stækkandi og drægni eykst
og gera menn ráð fyrir að 500km
drægni sé ákjósanleg til að komast
hvert á land sem er án of margra
hleðslustoppa. Það eru rafhlöður
sem geymt geta 75-100kWst
(kíló-Watt-stundir). Svo kölluð
V2G tækni (Vehicle-to-Grid) er
svo á næsta leiti þar sem rafbíllinn
getur skilað orkunni til baka inn
á dreifikerfið. Lauslega útreiknað
gætu 100 Teslur haldið rafmagni
á öllum heimilum í Eyjum í um
eina klukkustund í venjubundnu
rafmagnsleysi.“
Gefið rafmagn fyrir eina og
hálfa milljón
Davíð tók upp á því í júní
árið 2020 að koma upp 11kW
heimahleðslustöð sem staðsett er
á bak við Strandveg 50, beint á
móti verslun Tölvunar. Stöðin er
opin öllum rafbílaaeigendum án
endurgjalds. Hvað rekur mann
í að setja upp rafhleðslustöðvar
fyrir almenning og borga sjálfur
reikninginn? „Það var nú bara
vöntunin á stöðvum. Þegar Tölvun
byrjaði að gefa rafmagn á fyrstu
stöðinni þá var ein stöð fyrir, uppi
við Hótel Vestmannaeyjar. Ég
frétti af rafbílaeigendum sem ætl-
uðu að nota helgi í Eyjum og voru
búin að panta á hótelinu en hættu
við þar sem að hleðslustöðin var
biluð. Það þótti mér ótækt og
ákvað að opna fyrir þessa fyrstu
stöð mína. TESLA þjónustumið-
stöðin fékk veður af þessu og
bauð okkur tvær stöðvar í viðbót
án endurgjalds. Þannig að við
settum upp þrjár heimahleðslu-
stöðvar eða svokallaðar TESLA
Destination Charging, stöðvar.
Ég hafði svo milligöngu um að
koma þremur slíkum stöðvum upp
á Básaskersbryggju, við ljósam-
astrið, þannig að þar eru þrjár
stöðvar sem bjóða fría hleðslu (í
boði Bæjarins/Herjólfs) á allar
gerðir rafbíla eins og hjá okkur.“
Davíð segir notkunina töluverða
á stöðvunum við Strandveg. „Við
vorum að skríða yfir 100.000
gefnar kWst og kostnaðurinn því
kominn í 1,5 milljónir. Við erum
að kanna möguleikann á að bjóða
valfrjálsa greiðslu 500kr til að
hafa fyrir kostnaði.“
Breytingar í kortunum
Frá og með næstu áramótum
munu skattaívilnanir tengdar
rafbílum falla úr gildi. Einnig er
stefnt að innleiðingu kílómetra-
gjalds fyrir notkun rafmagns-,
vetnis- og tengiltvinnbíla sem
hafa hingað til borið takmarkaðan
kostnað af notkun vegakerfisins.
Hvernig leggjast fyrirhugaðar
breytingar í Davíð? „Það hlaut að
koma að þessu. Auðvitað eiga all-
ar bifreiðar að greiða fyrir notkun.
Það er þó þjóðhagslega hagkvæmt
að nota okkar hreinu orku í stað
innflutts eldsneytis, en á móti
kemur að rafbílar eru almennt
þyngri en bensínhákarnir.“
Hvaða skref vilt þú sjá næst í
rafbílamálum á Íslandi? „Það
er náttúrulega FSD (Full Self
Driving) sjálfkeyrandi bílar. En
þá þarf hið opinbera að bretta upp
ermar og gera það mögulegt. Í
dag er það samkvæmt lögum og
reglum, bannað. Teslan býður upp
á þetta, en þó þannig að bílstjór-
inn þarf að halda í stýrið. Ég
nota þetta mikið á keyrslu milli
Landeyja og Reykjavíkur, Teslan
les öll hraðaskilti og hægir á og
gefur í eftir því. Hún er reyndar
vonlaus í íslenskum hringtorgum.
Einnig verður spennandi að sjá
V2G lausnina komast í gagnið
auk Robo-Taxi hugmyndar Musks
sem snýst um það að eigandi get-
ur „leigt út“ Tesluna sína á meðan
hann er t.d. í vinnu. Það myndi
virka svona svipað og Hopp raf-
skutlurnar, nema að bíllinn kæmi
sjálfur til notandans.“
Davíð hafði milligöngu um uppsetningu á hleðslustöðvum á Básaskersbryggju þar sem hægt er að hlaða
í boði Herjólfs.
Hleðslustöðin við Tölvun þar sem rafbílar hafa verið hlaðnir fyrir hálfa aðra
milljón í boði Tölvunar.
Davíð seldi Hjalta Enok ökukennara Model 3 bílinn, þannig að ungmenni
Eyjanna geta lært á nýjustu rafbílatæknina.